kl. –
Gulur dagur
Guli liturinn er litur sjálfsvígsforvarna og Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október.
Semikomman (;) er kennimerkið fyrir gulan september en táknið er víða notað til að sýna samstöðu með geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Það vísar til framhalds; seiglu og vonar.
Þennan dag ætlar Sóltúnsfjölskyldan að klæðast gulu og sýna þessum mikilvæga málstað samstöðu.