Dagdvöl & dagþjálfun

Flýtileiðir
Inngangur
Hvers vegna?
Dagþjálfun
Dagskrá
Spurt og svarað

Dagdvöl og dagþjálfun eru góður kostur fyrir eldra fólk sem býr heima en þarf félagsskap og stuðning til að viðhalda virkni og heilsu.

Sólvangur býður upp á dagdvöl fyrir einstaklinga sem eru búsettir í Hafnarfirði. Einnig er í boði sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá í formi heilsueflingar og afþreyingar. Boðið er upp á akstursþjónustu í og úr dagdvöl fyrir þá sem þurfa.

Sími

659 8208 Almenn dagdvöl

Sími

623 1443 Sérhæfð dagþjálfun

Netfang

dagdvol@soltun.is

Deildarstjóri

Guðbjörg Bergmundsdóttir

gudbjorgb@soltun.is

Dagdvöl eflir félagslega heilsu

Markmiðið með dagdvöl er að styðja aldrað fólk í að búa sem lengst á eigin heimili og rjúfa félagslega einangrun. Með dagdvöl er hægt að viðhalda og auka virkni og þannig efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Áhersla er lögð á sjálfræði, samveru og samvinnu.

Hægt er að fylla út umsóknareyðublað á Word-formi 
og senda okkur á dagdvol@soltun.is.

Sækja um dagdvölOpnast í nýjum glugga

Dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun

Sólvangur býður upp á sérhæfða dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun. Markmiðið með henni er að gera fólki kleift að búa sem lengst heima og viðhalda sjálfsbjargargetu. Þjónustan er sniðin að þörfum, áhuga og getu hvers og eins.

Fjölbreytt dagskrá

Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá — til dæmis félagsstarf, handavinnu, gönguferðir, léttar æfingar og hvíld. Gestum er boðið upp á morgunverð, heitan hádegisverð og síðdegiskaffi.

Spurt og svarað

Dagdvölin er niðurgreidd en gestir greiða 1.619 kr. fyrir hvern dag sem er innheimt með greiðsluseðli í netbanka. Innifalið í verði er akstur og máltíðir. Gestir í dagþjálfun greiða 3.000 kr. mánaðarlega í afþreyingarsjóð.

Gestir dagdvalar og dagþjálfunar eru beðnir um að tilkynna forföll í síma 659 8208 fyrir almenna dagdvöl og í síma 623 1443 fyrir sérhæfða dagþjálfun.

Gert er ráð fyrir 14 einstaklingum á dag í dagdvöl og 12 í dagþjálfun á Sólvangi.

Umsóknir fyrir sérhæfðu dagþjálfunina fyrir einstaklinga með heilabilun koma í gegnum minnismóttöku LandakotsOpnast í nýjum glugga.

Hægt er að fylla út umsóknareyðublað á Word-formiOpnast í nýjum glugga og senda á dagdvol@soltun.isOpnast í nýjum glugga.

Aðrar spurningar? Hafðu samband og við svörum þér við fyrsta tækifæri.

Hafa sambandOpnast í nýjum glugga

Önnur þjónusta í boði

Endurhæfing er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks í 4-6 vikna dvöl á Sóltúni Heilsusetri og er niðurgreidd að fullu.

Meira um endurhæfingu

Heimaþjónusta Sóltúns snýst um að einfalda daglegt líf fyrir eldra fólk og létta undir með aðstsandendum.

Nánar um heimaþjónustu
  • Heimaþjónusta
  • Endurhæfing
  • Dagdvöl
  • Vinnustaðurinn

Þjónustan

  • Heimaþjónusta
  • Endurhæfing
  • Dagdvöl
  • Hjúkrunarheimilin

    • Sóltún
    • Sólvangur

    Þjónusta

    • Að sækja um hjúkrunarrými
    • Að flytja og aðlagast
    • Þjónusta við íbúa

Starfið

  • Vinnustaðurinn

Sóltún

  • Sóltúni 2, 105 Reykjavík
  • soltun@soltun.isOpnar tölvupóst í nýjum glugga
  • +354 590 6000

Sólvangur

  • Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
  • solvangur@soltun.isOpnar tölvupóst í nýjum glugga
  • +354 590 6500

Nærandi samfélag

Hlutverk okkar er að auka velsæld með fjölbreyttri heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er á aukin lífsgæði og stuðning í daglegu lífi eldra fólks

Viltu fylgjast með starfinu?

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá tilkynningar, boð á viðburði og fréttir úr starfinu.

Skrá á póstlistaOpnast í nýjum glugga
Skrá á póstlistaOpnast í nýjum glugga

Stefnur

  • Jafnlaunastefna
  • Persónuverndarstefna
  • Mannauðsstefna

Þjónusta

  • Heimaþjónusta
  • Endurhæfing
  • Dagdvöl og dagþjálfun

Fyrirtækið

  • Um okkur
  • Netföng og símanúmer
Jafnlaunavottun

©️ 2026 Sóltún

Sóltún
kt. 600300-5390
Sólvangur
kt. 650310-0710
Jafnlaunavottun