
Berglind Víðisdóttir, nýr framkvæmdastjóri hjúkrunar
Nýr framkvæmdastjóri hjúkrunar, Berglind Víðisdóttir, hefur hafið störf hjá Sóltúni og við bjóðum hana hjartanlega velkomna.
Hún leiðir nýtt svið, Heilbrigðissvið, og situr í framkvæmdaráði Sóltúns.
Berglind er hjúkrunarfræðingur (BSc) og lýðheilsufræðingur með meistaragráðu (MPH) og býr yfir áratugalangri og fjölbreyttri reynslu í heilbrigðis- og velferðarþjónustu, bæði í klínísku starfi, stjórnun og stefnumótun. Hún hefur gegnt lykilhlutverkum innan Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, unnið að sérverkefnum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og í sérhæfðri heimahjúkrun og líknarþjónustu, auk þess að taka virkan þátt í þróunar- og samráðsverkefnum á landsvísu.
Inga Eyþórsdóttir, sem hefur sinnt hlutverki framkvæmdastjóra hjúkrunar og stýrt heilbrigðis- og rekstrarsviði, mun samhliða þessari breytingu leiða nýtt Rekstrar- og þróunarsvið, þar sem áhersla verður lögð á vaxtar- og rekstrarverkefni þvert á starfsemina.