
Hafnarfjarðarbær í samstarf við Sóltún Heima
Hafnarfjarðarbær er nú í samstarfi við Sóltún Heima um að veita 40 eldri einstaklingum í Hafnarfirði styrktarþjálfun heima. Markmiðið er að efla fólk til að geta búið lengur heima hjá sér og eiga auðveldara með daglegar athafnir. Sóltún Heima notar DigiRehab æfingakerfið sem var þróað af dönskum sjúkraþjálfurum með það að markmiði að hjálpa eldra fólki við að stunda líkamsrækt sem að öðrum kosti gæti ekki eða vildi ekki sækja í slíkt utan heimilisins. Þessi styrktarþjálfun getur haft afar góð áhrif á lífsgæði fólks og við hlökkum til að sjá eldri Hafnfirðinga styrkjast og eflast.