
Gjöf frá Styrktarsjóði Sóltúns
Styrktarsjóður Sólvangs gaf á dögunum hjúkrunarheimili Sóltúns á Sólvangi tvö TurnAll snúningskerfi.
Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður Sóltúns Sólvangi og Dagbjört Baldursdóttir, sjúkraþjálfari, tóku við gjöfinni fyrir hönd Sóltúns Sólvangi af Lovísu Árnadóttur og Dórótheu Sigurjónsdóttur frá Styrktarsjóðnum.
TurnAll snúningskerfið snýr einstaklingum rólega í rúmi samkvæmt tímaskema án þess að mikið rask verði. Þessi snúningur er nauðsynlegur til að koma í veg fyrir eða minnka líkur á legusárum.
Einnig verndar það starfsfólk sem oft reynir mikið á bak, háls og axlir þegar snúa á einstaklingum í rúmi.
Við þökkum Styrktarsjóði Sólvangs kærlega fyrir þessa dýrmætu gjöf sem mun koma sér afar vel fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins en fyrir eru 4 slík kerfi í notkun á heimilinu💛
