
Breytingar á stjórn Sóltúns heilbrigðisþjónustu
Gunnar Sigurðsson hefur tekið við sem stjórnarformaður Sóltúns heilbrigðisþjónustu. Hann tekur við af Önnu Birnu Jensdóttur, fyrrum forstjóra, stofnanda og stjórnarformanni. Anna Birna lætur samhliða breytingunum af stjórnarsetu og Sigríður Gunnarsdóttir tekur sæti í stjórn félagsins.
Anna Birna hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu SóItúns frá stofnun. Hún var forstjóri Öldungs hf. frá 2001 til 2022 og hefur verið stjórnarformaður undanfarin fjögur ár. Undir hennar forystu hefur SóItún verið leiðandi í þróun einstaklingsmiðaðrar öldrunarþjónustu, gæðastjórnunar og faglegs starfs á hjúkrunarheimilum.
,,Það hafa verið forréttindi og gefandi að vinna að uppbyggingu öldrunarþjónustunnar með frábæru samstarfsfólki í Sóltúnsfélögunum. Framtíðin er björt með öflugu stjórnendateymi og frábæru starfsfólki sem tekið hefur við kyndlinum með metnaði, fagmennsku og umhyggju að leiðarljósi." -Anna Birna Jensdóttir.
Gunnar gekk til liðs við stjórn SóItúns árið 2025 og tekur nú við formennsku stjórnar. Hann býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun, fjármálum, heilbrigðisþjónustu og uppbyggingu fyrirtækja, bæði á Íslandi og í Bretlandi.
Gunnar sat í stjórn Cornerstone Healthcare Group, sem rekur sérhæfða hjúkrunarþjónustu fyrir einstaklinga með flókna öldrunartengda sjúkdóma í Bretlandi, frá 2018 til 2024. Þá starfaði hann áður sem framkvæmdastjóri og síðar forstjóri hjá Baugur Group hf. og sem framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi.
,,Það hefur verið mér mikil ánægja að setjast í stjórn Sóltúns og vinna með þeim öflugu stjórnendum og stjórnarmönnum sem þar eru að þeim mikilvægu samfélagslegu verkefnum sem félagið vinnur að á hverjum degi. Þörfin á þjónustu félagsins hefur aukist mikið á undanförnum árum með sama hætti og við höfum séð í nágrannalöndum okkar og ég hef upplifað í störfum mínum í stjórn Cornerstone Healthcare í Bretlandi. Það eru stór og aðkallandi verkefni á þessum vettvangi framundan og ég er spenntur að fá að taka þátt í þeim með því frábæra teymi sem Sóltún hefur yfir að búa." - Gunnar Sigurðsson
Sigríður Gunnarsdóttir tekur sæti í stjórn SóItúns heilbrigðisþjónustu en hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun í heilbrigðisþjónustu, kennslu og rannsóknum. Sigríður starfar sem forstöðumaður Krabbameinsskrár og rannsóknarseturs hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Hún er prófessor í krabbameinshjúkrun við HáskóIa Íslands og forstöðumaður fræðasviðs í krabbameinshjúkrun á Landspítala.
Á árunum 2012-2022 starfaði Sigríður sem framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala þar sem hún bar meðal annars ábyrgð á faglegri þróun hjúkrunar, gæða- og öryggismálum, menntun, starfsþróun og vísindastarfi.
,,Ég er mjög spennt fyrir því að fá að taka þátt í því mikla uppbyggingar- og þróunarstarfi sem er framundan hjá Sóltúni. Fyrirsjáanleg er mikil fjölgun í hópi aldraðra og ljóst að þjónustuþörf mun aukast verulega. Það er því mikil áskorun að byggja upp fjölþætt úrræði sem mæta ólíkum þörfum þessa hóps. Ég vonast til að þekking mín og reynsla muni nýtast í því verkefni og styðja við starf Sóltúns sem byggir á traustum grunni og einkennist af metnaði og framsækni." - Sigríður Gunnarsdóttir
Á þessum tímamótum er einnig haft eftir Höllu Thoroddsen, forstjóra SóItúns heilbrigðisþjónustu:
,,Anna Birna hefur undanfarin 25 ár haft mótandi áhrif á Sóltún með fagmennsku, framsýni og metnaði fyrir bættri öldrunarþjónustu að leiðarljósi. Við þökkum henni fyrir einstakt framlag sitt til fyrirtækisins og til öldrunarþjónustu á Íslandi. Á sama tíma er mikill fengur fyrir Sóltún að fá Gunnar Sigurðsson í nýtt hlutverk innan stjórnarinnar og að fá Sigríði Gunnarsdóttur inn í stjórn félagsins. Gunnar hefur þegar kynnst starfsemi Sóltúns vel og býr yfir mikilvægri reynslu. Sigríður kemur þá inn í stjórnina með mikilvæga þekkingu og reynslu úr heilbrigðiskerfinu, á sviði stjórnunar, hjúkrunar, rannsókna og fræðslu. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar félagsins undir nýrri forystu stjórnar."