30 ára og yngri nú heimilt að koma í heimsókn
13.09.2021 10:07Uppfærðar heimsóknarreglur frá Sýkingavarnarnefnd Sóltúns. Áfram er grímuskylda á Sóltúni fyrir alla nema íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur. Stilla ber heimsóknum í hóf og koma ekki fleiri en 1-2 í senn. Við biðlum til aðstandenda að: • Vera ekki í alrýmum heimilisins, þegar þeir koma í heimsókn, heldur fara beint inn á herbergi íbúa. Heimilt er að fara út í garð og mælt er með útivist ef veður leyfir. Staldrið þó ekki við á almenningssvæðum innanhúss. • Að forðast að fara með íbúa á mannfagnaði eða samkomur, en leyfilegt er að fara í bílferðir eða heimsóknir. • Fara í sýnatöku ef þeir eru að koma erlendis frá og ekki koma fyrr en neikvæð niðurstaða er komin. Þetta á einnig við við bólusetta aðstandendur. Við minnum jafnframt á eftirfarandi: • Munið að hafa grímu meðferðis, þó ekki taugrímu. Leyfilegt er að taka grímu niður inni á herbergi íbúa ef gestur er fullbólusettur. • Virða sóttvarnarráðstafanir og sýna ýtrustu varkárni. • Sinna persónulegum sýkingavörnum eins og handþvotti og handsprittun. • Virða 2ja metra regluna í samskiptum við starfsfólk og forðast að stoppa og spjalla. • Forðist snertingu við íbúa eins og kostur er. • Allir heimsóknargestir hlaði niður smitrakningarappinu í símann sinn. Vinsamlega EKKI koma í heimsókn: • Ef þú ert í einangrun eða sóttkví, eða ekki liðnir 14 dagar frá útskrift vegna Covid smits • Ef þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku. • Ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl). • Ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum og ert óbólusettur. Við fylgjumst náið með stöðu mála og upplýsum ykkur um leið og breytingar verða. Nýjar reglur hafa tekið gildi nú þegar eða frá og með 13.09.2021. Með vinsemd og virðingu, Sýkingavarnarnefnd Sóltúns
til baka