Seinni bólusetning íbúa er 21. janúar
20.01.2021 14:17Það er komið að seinni bólusetningu íbúa Sóltúns við COVID-19 en hún mun fara fram fimmtudaginn 21. janúar. Reynslan sýnir að bólusettir einstaklingar eru líklegri til að fá meiri flensueinkenni við síðari bólusetningu en við fyrri en fylgst verður vel með öllum eins og áður. Viku síðar er talið að bóluefnið hafi náð fullri virkni og þá er þungu fargi létt af mörgum. Þeir íbúar sem ekki fengu fyrri bólusetningu í desember af einhverjum ástæðum, fá fyrstu bólusetningu sama dag. Heimsóknarreglur verða áfram óbreyttar. Við bíðum fyrirmæla varðandi breytingar á heimsóknarreglum frá samráðshópi almannavarna og hjúkrunarheimila um heimsfaraldur en ekki má búast við miklum afléttingum á sóttvörnum þar sem bólusetning starfsmanna hjúkrunarheimila hefur verið færð í forgangsröðun fyrir aftan Íslendinga 70 ára og eldri. Með kveðju, Sýkingavarnarnefnd Sóltúns
til baka