Tilslakanir á heimsóknarbanni frá 4. maí
22.04.2020 14:17Ágæti íbúi og aðstandandi Heimsóknir verða leyfðar inn á hjúkrunarheimilið Sóltún frá og með 4. maí næstkomandi með ákveðnum takmörkunum. Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní 2020. Vinsamlega kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur: 1. Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef: a. Þú ert í sóttkví b. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku c. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift. d. Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.). 2. Heimsóknartími er frá: kl. 14-16 daglega 3. Hægt verður að byrja að panta eftir næstu helgi. Hafið samband gegnum tölvupóstfangið soltun@soltun.is eða hringið í móttöku Sóltúns í síma 5906003 á dagvinnutíma og pantið heimsóknartíma. Tímum verður jafnað niður á íbúa og um húsið. Það verður haft samband við þig um hvenær þú færð tíma. Heimild til heimsókna, einu sinni í viku er veitt frá 4. maí. Ef vel gengur í baráttunni við veiruna, verður tíðni heimsókna aukin í annarri viku í tvisvar í viku til hvers íbúa. 4. Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningarappi almannavarna Rakning C-19 fyrir 4. maí 5. Hinkrið eftir starfsmanni á tilgreindum inngöngustað, hann fylgir ykkur til íbúa. M.a. verður notast við innganga um brunastiga til íbúa á efri hæðum til að takmarka umferð um almenningssvæði hússins. Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, gestum verður fylgt beint til íbúa og fylgt að útgöngudyr þegar þeir fara. 6. Athugið að heimsóknin er til ættingja þíns, staldrið ekki við til að ræða við aðra íbúa, ættingja eða starfsfólk. Notið símann til að fá upplýsingar hjá hjúkrunarfræðingi. 7. Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er. Aðrar breytingar sem verða frá 4.maí á starfsemi innan hjúkrunarheimila Iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, önnur þjálfun: Einstaklingsmeðferð verður fyrir íbúa og starfsfólk á heimilinu. Einstaklingar utan úr bæ mega ekki koma inn á heimili til þjálfunar fyrr en frekari tilslakanir verða. Í sal sjúkraþjálfunar er nauðsynlegt að halda 2ja metra reglunni áfram og hámarksfjöldi í sal miðast við að þessi regla haldi. Hópameðferð skal áfram vera takmörkuð við að einstaklingar í sama sóttvarnahólfi séu saman við æfingar. Hárgreiðsla og hársnyrting/fótaaðgerð og fótsnyrting: Er aðeins leyfð fyrir heimilismenn og starfsmenn á hverjum tíma. Einstaklingar utan úr bæ mega ekki koma inn á heimilið til að fá þessa þjónustu á sama tíma og íbúar eru í sama rými. Gæta þarf vel að aðskilnaði íbúa frá utanaðkomandi gestum. Almenna reglan er áfram að einstaklingar í sama sóttvarnahólfi fái þjónustu á sama tíma. ATHUGIÐ: Ef smit vegna COVID-19 aukast aftur, eða smit vegna annarra smitsjúkdóma, munu tilslakanir á heimsóknarbanni ganga til baka og reglur verða hertar á ný. Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri
til baka