Sóltún
     Aðbúnaður
     Hugmyndafræði
     Myndir
     Hlekkir
Þjónusta
     Hjúkrun
     Læknisþjónusta
     Sjúkraþjálfun
     Sálgæsla
     Iðjuþjálfun
     Eldhús
     Ræsting
     Þvottur
     Gæðamat
Umsóknir
     Atvinnutækifæri
     Hjúkrunarrými
Starfsfólk
     Símaskrá
     Starfslýsingar
     Stjórn
Fréttir og útgáfur
     Fréttabref
     Útgáfur
     Rannsóknir
     Heimsóknir

Umsóknir um íbúð og hjúkrunarþjónustu

Forsendur fyrir möguleika á hjúkrunarrými er að hafa gilt vistunarmat. Jafnframt er hjúkrunarheimilinu Sóltúni  fyrst og fremst ætlað að taka á móti öldruðum sjúklingum frá Landspítala samkvæmt þjónustusamningi við ríkið.

Vistunarmat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega hjúkrun og vistun á  hjúkrunarheimili. Þegar að því kemur að sækja um vist á hjúkrunarheimili þarf fyrst að sækja um vistunarmat til vistunarmatsnefnda í viðkomandi landshluta. Daggjöld til heimila eru ekki greidd nema vistunarmat liggi fyrir.

Hjúkrunarheimilið Sóltún er ætlað þeim öldruðum sem hafa gilt vistunarmat og eru á vistunarskrá. Heilbrigðisráðherra skipar samráðshóp sem tilnefnir þá 7 umsækjendur sem skulu hafa forgang að íbúðum heimilisins þegar þær losna. Samráðshópnum ber að tryggja þeim einstaklingum forgang sem metnir eru í mjög brýna þörf fyrir hjúkrun og eru það veikir, að þeir eru ófærir um að bíða eftir hjúkrunarrými í heimahúsi.  Sjúklingar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi hafa forgang að hjúkrunarrýmum í Sóltúni og ákvarðar öldrunarteymi spítalans hverjir fara í forgangshóp frá þeim. Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmisins ákvarðar hverjir fara í forgangshóp af þeim sem bíða vistunar í heimahúsi. Lokaákvörðun um úthlutun íbúða til umsækjenda sem metnir eru í forgangshóp er síðan hjá hjúkrunarheimilinu Sóltúni.

Samráðshópurinn er skipaður þremur aðilum, einum tilnefndum af Landspítala; Hildi Helgadóttir innlagnarstjóri LSH, einum tilnefndum af Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmisins, Unni Kristínu Sigurðardóttur hjúkrunarfræðingi, og einum frá hjúkrunarheimilinu Sóltúni, Önnu Birnu Jensdóttur.

Vistunarmat annast Vistunarmatsnefndir heilbrigðisumdæma. Vistunarmat er nú í gagnabanka heilbrigðisráðuneytis og er það sent með rafrænum hætti til Sóltúns. Upplýsingar um hvort vistunarmat hefur borist heimilinu veitir Unnur Kristín Sigurðardóttir Vistunarmatsnefnd, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík í  sími 5851302.

Allar upplýsingar um hvernig fyrstu skrefin eru þegar sækja á um dvöl á hjúkrunarheimili á Íslandi

Reglugerð um vistunarmat

Umsóknareyðublað um vistunarmat er á heimasíðu Landlæknisembættisins

Dvalarkostnaður árið 2010

Dvalarkostnaður á  hjúkrunarheimilum er greiddur með daggjöldum sem ákveðin eru af heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingaráðuneytinu hverju sinni. Daggjöldin sem greidd eru af Tryggingastofnun ríkisins til hjúkrunarheimila eru mishá eftir stofnunum.

Þátttaka vistmanna í dvalarkostnaði er tekjutengd og því misjafnlega há eftir tekjum hvers vistmanns. Ef mánaðartekjur vistmanns eru að jafnaði 65.005 kr. eða meira eftir skatta (greiðslur frá Tryggingstofnun ekki meðtaldar) tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem eru umfram það. Greiðsluþátttaka vistmanna verður þó aldrei hærri en 281.871.-kr. á mánuði. Greiðsluþátttakan hefst fyrsta dag næsta mánaðar eftir að vistunarmat tekur gildi.

Greiðslutilhögun

Við flutning á  hjúkrunarheimili falla lífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar til vistmannsins niður frá fyrsta degi næsta mánaðar. Einstaklingar með engar eða lágar tekjur geta átt rétt á vasapeningum. Fullir vasapeningar eru 41.895 kr. á mánuði. Vasapeningar eru tekjutengdir, lækka því með hækkandi tekjum.

Tryggingastofnun greiðir fullt daggjald til heimilisins. Ef vistmaður á að taka þátt í dvalarkostnaði innheimtir heimilið hans hlut og endurgreiðir hann til Tryggingastofnunar.

Þann 1. júlí 2009 voru gerðar lagabreytingar sem geta geta haft áhrif á útreikning á því hvort íbúi á hjúkrunarheimili á að taka þátt í greiðslu dvalargjalds.

Skv. 16.gr.,sbr.29.gr., laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum nr. 70/2009 um breytingu á 26.gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, og

 lög nr. 84/2008 um uppbót á eftirlaun sem voru felld niður með 27. gr.laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum nr. 70/2009.

Áfram veginn 2010 -Upplýsingarit fyrir eldri borgara