|
Hér má finna upplýsingar um þá þjónustu frá eldhúsi, þvotta og
ræstingaþjónustu: Eldhús og fæði
Sóltún rekur móttökueldhús í Sóltúni 2. Móttökueldhúsið sér íbúum fyrir
morgunmat, eftirmiðdagskaffi, kvöldmat og kvöldkaffi. Hádegisverður er
keyptur með samningi við viðurkennt eldhús og er hann eldaður í móttökueldhúsi
Sóltúns. Móttökueldhúsið annast ennfremur fæði fyrir starfsfólk og veislur á vegum heimilisins fyrir íbúa og
aðstandendur. Yfirmaður eldhússins er Guðný Jónsdóttir
næringarrekstrarfræðingur. Markmið eldhússins
Matseðill 30.08 -05.09.2010
Matseðill 06-12.09.2010
Matseðill 13-19.09.2010
Matseðill 20-26.09.2010
Þvottur
Sóltún rekur lítið þvottahús í Sóltúni 2. Þar er þveginn einkaþvottur íbúa.
Ennfremur eru 4 þvottavélar í húsinu 1-2 á hverri hæð, þar sem þveginn er
einkafatnaður og geta íbúar tekið þátt í því eftir vilja og getu hvers og eins.
Aðstandendum er einnig velkomið að annast þvott á einkafatnaði ættingja síns.
Þvottur og leiga á almennu líni er samkvæmt samningi við viðurkennt þvottahús.
Yfirmaður þvottahússins er Guðný Jónsdóttir.
Markmið þvottahúss
Ræsting
Sóltún rekur ræstimiðstöð í Sóltúni 2, þar sem yfirumsjón er með allri
ræstingu heimilisins. Unnið er eftir ræstingaáætlun og virku gæðaeftirliti.Yfirmaður
ræstinga er Þórdís S. Hannesdóttir og flokkstjóri er Þórlaug Steingrímsdóttir.
Markmið ræstingar

|