Sóltún
     Aðbúnaður
     Hugmyndafræði
     Myndir
     Hlekkir
Þjónusta
     Hjúkrun
     Læknisþjónusta
     Sjúkraþjálfun
     Sálgæsla
     Iðjuþjálfun
     Eldhús
     Ræsting
     Þvottur
     Gæðamat
Umsóknir
     Atvinnutækifæri
     Hjúkrunarrými
Starfsfólk
     Símaskrá
     Starfslýsingar
     Stjórn
Fréttir og útgáfur
     Fréttabref
     Útgáfur
     Rannsóknir
     Heimsóknir
Til baka

Sjúkraþjálfun                                     Sjúkraþjálfun safnar fyrir nýju hjóli


Markmið sjúkraþjálfunar er að viðhalda og bæta líkamlega færni og getu íbúa til sjálfshjálpar, sporna gegn afturför eftir því sem kostur er og  létta alla umönnun.

Mikilvægt markmið þjálfunar íbúa á hjúkrunarheimili er að vinna gegn vanlíðan sem fylgja langvinnum sjúkdómum og auka lífsgæði. Hjá flestum er því um styrktarþjálfun í langtímameðferð að ræða eða eins lengi og geta og vilji til þátttöku er til staðar.  

Sjúkraþjálfarar starfa í nánu samstarfi við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk. Sjúkraþjálfarar vinna að því að mæta þörfum íbúa á fjölbreyttan hátt. Starf hans er fjölbreytt:

  1. Þegar nýr íbúi flyst í Sóltún metur læknir þörf viðkomandi fyrir sjúkraþjálfun. Ef viðkomandi þarf vegna sjúkdómsástands síns einstaklingsþjálfun hjá sjúkraþjálfara ritar læknir beiðni þar um til sjúkraþjálfara. Sjúkraþjálfari metur þörf fyrir þjálfun  og setur fram markmið og meðferðaráætlun með íbúanum. Ef nýr íbúi hefur verið í umfangsmikilli sértækri þjálfun á fyrri vistunarstað sem nánast alltaf eru sjúkraþjálfunardeildir Landspítala, hafa læknar heimilisins og sjúkraþjálfarar með sér það samráð að sjúkraþjálfari fylgir fyrri meðferðaráætlun enda komi hún skrifleg með viðkomandi.
  2. Boðið er uppá fjölbreytt meðferðarúrræði í samræmi við þjónustusamning heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis við hjúkrunarheimilið. Þar er m.a. kveðið á um að allir íbúar skuli eiga kost á þátttöku í hópleikfimi, göngum, sundferðum o.s.frv. undir stjórn og skipulagi þjálfara. Mæting í þau þjálfunar prógrömm eru skráðar af sjúkraþjálfara eða starfsfólki hans í mætingarkladda. Samráð er um það verklag við lækna Sóltúns. Sjúkraþjálfari og íbúi setja saman áætlun um þátttöku og metur sjúkraþjálfari reglulega mat á ávinningi. Sjúkraþjálfun getur því verið einstaklingsmeðferð og/eða þátttaka í  hópþjálfun. Reglulega yfir árið tekur sjúkraþjálfari saman fjölda mínútna í þjálfun og dagafjölda þjálfunar undangenginnar viku og færir til bókar í þann hluta sjúkraskrárinnar sem heitir gagnasafn um heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa á hjúkrunarheimilinu.  Hópleikfimi fer fram tvisvar í viku í sambýliskjörnum og staðið er fyrir göngutúrum innan- sem utanhúss. Boðið er upp pott- og sundferðir þegar aðstæður leyfa með áherslu á vatnsleikfimi og slökun.
  3. Sjúkraþjálfarar taka þátt í teymisvinnu í þeim teymum heimilisins þar sem þekking þeirra nýtist vel. Þannig er sjúkraþjálfari í verkjateymi, byltuteymi og þunglyndisteymi.
  4. Sjúkraþjálfun sér um útvegun ýmissa hjálpartækja s.s. gönguhjálpartækja, stoðtækja, salernisupphækkana og teygjusokka.
  5. Sjúkraþjálfun veitir ráðgjör og fræðslu til íbúa t.d. varðandi skóbúnað, setstöður og hjápatæki. Jafnframt  leiðbeinir sjúkraþjálfari samstarfsfólki og nemendum varðandi starfsstellingar og vinnuvernd og tekur þátt í hvers kyns heilsu

 Sjúkraþjálfar eru Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir og Rannveig Einarsdóttir Arnar. Með þeim starfar Halldóra K. Þórðardóttir sjúkraliði.

 

Stoltar konur að loknu Kvennahlaupi 2008