|
Til baka
Sálgæsla og stuðningsteymi
Djákni sinnir sértækri sálgæslu íbúa á Sóltúni. Störf hans felast fyrst og fremst í stuðningi við íbúa, aðstandendur þeirra og starfsmenn. Stuðningsteymi er í Sóltúni og eru í því djákni
og hjúkrunarfræðingar heimilisins. Stuðningsteymið sérhæfir sig í að styðja íbúa og starfsmenn í erfiðum tilfinningalegum og andlegum málum.
Boðið hefur verið upp á sérstaka stuðningshópa fyrir aðstandendur. Prestþjónusta
er sótt til sóknarprests Laugarnessóknar og boðið er upp á guðþjónustur reglulega í samkomusal heimilisins. Þar er altari til staðar.
Djákni í Sóltúni |