Iðjuþjálfun
| Markmið iðjuþjálfunar er að viðhalda og bæta líkamlega, félagslega og vitsmunalega getu íbúa með markvissri íhlutun. Lögð er áhersla á að efla sjálfshjálp íbúa við eigin umsjá og að skapa þeim tækifæri til að takast á við verk og viðfangsefni sem vekja áhuga og veita gleði og lífsfyllingu. Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé milli íbúans, iðjunnar og umhverfisins. Einstaklingsmeðferð sem og hóptómstundaiðja er í boði í iðjuþjálfunarsal og í sambýlum. Þar er möguleiki á að fást við handíðir, bókband, vélprjón, léttar smíðar, spilamennsku og málun. Ennfremur eru skipulagðar ferðir utan heimilisins. Iðjuþjálfi er Hildur Þráinsdóttir og þroskaþjálfi er Finnbjörg Skaftadóttir. | ![]() |
Margvíslegir klúbbar og hópaþjálfun er starfrækt fyrir íbúa Sóltúns, þar á meðal eru:
Handverkshópar
Í iðjuþjálfun eru að jafnaði starfræktir 4 vikulegir handverkshópar.
Markmið hópanna er að mæta þörfum íbúa Sóltúns við að taka virkan þátt í fjölbreyttri iðju til að viðhalda færni sinni, veita tækifæri til að takast á við ný eða gömul hlutverk, upplifa sigra og ánægjulegar stundir í félagsskap við aðra íbúa og samstarfsfólk.
Í hópunum er boðið er upp á handverk af ýmsu tagi sem hefur verið aðlagað að færni og áhuga íbúa. Það sem helst hefur vakið áhuga er málun á tau, pappír, gler, silki, keramik og tré. Einnig smíða/fullklára ýmsa trémuni eða sauma hluti sem hafa notagildi fyrir íbúa, aðstandendur, Sóltúnsheimilið eða árlegu jólasöluna. Þeir íbúar sem ekki hafa færni/áhuga á handverki en njóta félagslegrar samveru eru einnig velkomnir.
Handverk: mánudaga og fimmtudaga kl.13 er þátttaka í hópnum opin öllum áhugasömum íbúum skv. mati iðjuþjálfa og viðkomandi íbúa í Sóltúni .
Hugar og listasmiðja: fimmtudaga kl.10 er hópur sem sérstaklega beinist að því að styðja íbúa 2.hæðar til þátttöku í ýmis konar iðju og listum.
Smíðar: Föstudaga kl.11 starfaði lítill hópur við trésmíðar af ýmsu tagi eða sinnti annarri iðju sem vakti áhuga þeirra.
Iðjuþjálfun styður við handíðir íbúa á 1.hæð og er leiðbeinandi Hansína Ólafsdóttir sjúkraliði og listamaður. Þeir tímar fara fram á sambýlum 1.hæðar á sama tíma og á iðjuþjálfunardeild (bæði fyrir- og eftir hádegi).
Prjónaklúbbur
Markmið klúbbsins er að bjóða upp á samveru í rólegu umhverfi á eftirmiðdögum við prjón, málun á tau, pappír eða annað sem hæfir hverjum og einum. Í hópnum er boðið upp á einstaklingsmiðaða aðstoð við þau verk sem hver og einn velur sér eftir áhuga og getu. Margir fallegir og nytsamlegir hlutir hafa orðið til í þessum tímum, má þar nefna prjónuð leikföng, peysur, skór og málaðar svuntur.
Prjónaklúbburinn starfar einu sinni í viku. Þarna skapast oft næði til félagslegrar samveru og gott andrúmsloft sem bæði er verkhvetjandi og færnisaukandi. Nokkrir þátttakenda sinna áfram prjónaskap utan klúbbsins, en koma svo á klúbbdögum og fá efni, leiðbeiningar og stuðning hver frá annarri.
Ljóða- og kvæðamannahópur
Tilgangurinn með ljóðahóp er að gefa íbúum Sóltúns sem unna ljóðlist og kveðskap tækifæri til að koma saman og takast á við efnið.
Þátttakendur hittast í sal iðjuþjálfunardeildar á mánudögum kl.13. Iðjuþjálfi sér um praktiska vinnu (ljósritun efnis o.þ.h.) en íbúar koma sjálfir með tillögur að efnistökum hverju sinni.
Tímar fara þannig fram að höfundur kvæða er kynntur í upphafi og jafnvel þær kringumstæður/sögusviðsem á við efnistök, þá skiptast menn á að lesa ljóðið upphátt yfir, ræða um skilning sinn á innihaldinu og bragarháttur/ljóðaform greint.
Sælkeraklúbbur
Upphaflegt markmið með klúbbnum var að bjóða áhugafólki um mat að koma að matargerð með einum og öðrum hætti og snæða saman. Þá hittist fólk yfir sameiginlegu áhugamáli sem hefur þýðingu, fær stuðning og tækifæri til að sýsla við matargerð, tilbreytingu/félagsskap við að njóta matarins saman sem og þau voru þátttakendur í að velja
Í klúbbnum eru að jafnaði átta íbúar Sóltúns og tveir starfsmenn. Oftast koma um 3-4 íbúar að sjálfri matargerðinni á meðan 2 aðrir hjálpa til við að leggja á borð. Fáeinir matgæðingar mæta svo þegar allt er tilbúið og njóta matarins og samverunnar.
Boccia-klúbbur
Markmið bocciahóps er að veita þeim íbúum sem áhuga hafa á íþróttum tækifæri til þátttöku, efla liðsheild og viðhalda jákvæðum keppnisanda. Auk ávinnings gegnum félagstengsl, stuðlar þátttaka að bættri einbeitingu og samhæfingu hreyfinga.
Spilað er vikulega á þriðjudögum klukkan 13 og hefur fastur kjarni hóps myndast. Íbúar eru skráðir í hópinn og mæta þeir að jafnaði.
Myndaðir hafa verið tveir bocciahópar, hraður og hægur. Skilyrði til þátttöku í hraðari hópnum er að menn þekki leikreglur og hafi líkamlega færni til að kasta sandbolta ákveðna vegalengd. Leikreglur í hægari hópnum hafa verið aðlagaðar að minni líkamlegri/vitrænni færni íbúa.
Haft hefur verið samband við önnur hjúkrunarheimili og starfsfólk þar hvatt til að taka upp boccialeiki og mynda lið á sinni starfsstöð. Skilyrði er að þátttakendur í báðum liðum hafi svipaða færni og iðki íþróttina sitjandi. Ekkert lið hefur enn gefið kost á sér sem mótherjar.
Boccialið íbúa keppti við sérvalið lið starfsfólks í Sóltúni í nóvember 2007. Liðin stóðu sig mjög vel, enda kröfugur stuðningshópur á bak við þau bæði. Lið íbúa sigraði í þetta skipti.
Sönghópur
Markmið með sönghópnum er að skapa tækifæri fyrir minnisskerta íbúa til þátttöku í söngstund í félagsskap við aðra söngelska. Að þátttakendur nái í gegnum sönginn að:
ü styrkja og efla trú á eigin getu
ü upplifa gleði
ü efla félagslega samveru
ü miðla af þekkingu sinni
Hópurinn hittist vikulega allt árið um kring, utan þess er stjórnendur hópsins taka sumarfrí. Í hverjum tíma er sungið linnulaust í um 40 mínútur, oftast gömul og þekkt sönglög af textablöðum sem þau hafa oftast verið með í að velja. Stöku sinnum er brugðið upp á sýningartjald tónlistarviðburðum af myndböndum/-diskum.
Viðgerðarhópur
Viðgerðarhópur hefur starfað í Sóltúni frá árinu 2002. Þátttakendur auk iðjuþjálfa eru íbúar Sóltúns sem áhuga hafa á því að starfa í þágu annarra.
Markmið með viðgerðarhópnum er að gefa íbúum kost á að sinna störfum sem höfðar til áhuga þeirra og fyrri hlutverka og um leið að koma heimilinu að gagni.
Ýmis verk hafa verið unnin gegnum tíðina, léttar viðgerðir á starfsmannafatnaði, lagfæringar á gardínum í íbúðum íbúa, hönnun og “framleiðsla” á hjálpartækjum eins og grjónapokum, hlífum við rúmgrindur o.fl.
Spilaklúbbur
Markmið klúbbsins er að bjóða þeim íbúum sem áhuga hafa á að spila sér til dægrastyttingar upp á aðstöðu í næði og góðu andrúmslofti. Spilahópurinn stuðlar jafnframt að því að efla samskipti íbúa innanhús. Þarna hafa þátttakendur tækifæri til að nýta fyrri þekkingu/færni og viðhalda keppnisandanum. Spilað er á eftirmiðdögum einu sinni í viku, spiluð er vist, bridges og jafnvel skák.
Gróðurklúbbur
Gróðurhópur hefur starfað í Sóltúni frá vormánuðum 2002.
Markmið með hópnum er að veita íbúum Sóltúns tækifæri til þátttöku í garð- og gróðurvinnu með einum og öðrum hætti. Þátttaka getur falist í að miðla af reynslu sinni, viðhalda fyrri hlutverkum við matjurta- og trjáræktun, endurvekja ný áhugamál, koma öðrum að gagni með starfi sínu.
Hópstarfið felst helst í því að sinna ræktun matjurta (sá, uppskera, hlú að jarðvegi), sinna plöntum í gróðurskála, fylgjast með lífríkinu í Sóltúnsgarðinum og heimsækja aðra garða. Einnig hefur hópurinn nytjað/nýtt afurðirnar, sultað berin og rabarbarann, soðið grauta, snætt safarík eplin, o.fl.
Gróðurhópurinn hefur notið góðs af heimsóknum grunnskólabarna úr Laugarnesskóla, sérstaklega við að sá og uppskera kartöflur.
Starfið er virkast frá vormánuðum og fram eftir hausti, en yfir kalda og dimma vetrarmánuðina hvílir hópurinn og safnar orku.
Frásögn um gróðurstarfið 2007 er að finna í Fréttabréfinu
Frásögn af gróðri og ræktun 2008 birtist í 3.tbl. Fréttabréfsins 2008
Endurminningarhópar
Í Sóltúni eru starfræktir þrír endurminningarhópar, einn á hverri hæð og hittist hver þeirra vikulega. Markmið hópanna er að veita íbúum tækifæri til upplifa jákvæðar tilfinningar á líðandi stundu sem og upprifjun á fyrri hlutverkum, lífshlaupi og áhugamálum. Íbúarnir skiptast á að bjóða þátttakendum inn í sína íbúð. Fundirnir stuðla að því að efla hlýja félagslega samveru og rjúfa einangrun.
Þátttaka í meðferðar prógrömmum iðjuþjálfunar:
Þegar nýr íbúi flyst í Sóltún framkvæmir iðjuþjálfi mat á færni, óskum og væntingum viðkomandi til þátttöku í hvers konar iðjuþjálfun í samræmi við þjónustusamning heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis við hjúkrunarheimilið. Samráð er um það verklag við lækna Sóltúns. Iðjuþjálfi og íbúi setja saman áætlun um þátttöku og metur iðjuþjálfi reglulega mat á ávinningi. Iðjuþjálfun getur verið einstaklingsmeðferð og/eða þátttaka í hópa- og/eða klúbbastarfi. Niðurstaða og framvindumat er skráð í sjúkraskrá. Iðjuþjálfi færir mætingar í þjálfun í mætingarkladda. Reglulega yfir árið tekur iðjuþjálfi saman fjölda mínútna í þjálfun og dagafjölda undangenginnar viku og færir til bókar í þann hluta sjúkraskrárinnar sem heitir gagnasafn um heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa á hjúkrunarheimilinu.
Mánudagar
kl. 11:00 Upplestur úr bókum (framhaldssögur)
kl.13:00 Ljóð og kveðskapur
kl. 13:30 Endurminningafundur 2.hæð (í vistaverum íbúa)
kl. 15:30 Prjónaklúbbur
kl. 15:30 Spilaklúbbur; vist, skák og bridge í kaffiteríu
Þriðjudagar
kl. 10:15 Boccia (hægur)
kl. 11:00 Söngur
kl. 13:30 Boccia (hraður)
kl. 15:30 Kvikmyndir sýndar í sjónvörpum dagstofa
Miðvikudagar
kl. 10:15 Kertagerð
kl. 10:15 Endurminningafundur 1. hæð (í vistaverum íbúa)
kl. 14:30 Handaæfingar
kl. 14:30 Endurminningafundur 3. hæð (í vistaverum íbúa)
kl. 15:30 Spilahópur í kaffiteríu
Fimmtudagar
kl. 10:00 Hugar- og listasmiðja
kl. 13:00 Handverkshópur
kl. 15:30 Kvikmynd sýnd í sjónvörpum dagstofa
(kl.14 bingó á 4 vikna fresti)
Föstudagar
kl. 11:00 Smíðar og viðgerðir
kl. 14:00 Gróðurhópur (á sumrin)
Bíósýning er í samkomusal einu sinni í mánuði, ýmist eru sýndar kvikmyndir eða óperur
samkvæmt auglýsingu hverju sinni
Tilfallandi tímar:
Stuðningur til að viðhalda færni við eigin umsjá, ferlimál, tölvunotkun og útvegun hjálpartækja, þátttöku í heimilishaldi og góðri vinnuaðstöðu.
Tölvunotkun:
Markmið með tölvukennslu er að veita íbúum tækifæri til að kynnast og takast á við nýja tækni og færa sér hana í nyt. Bæði til dægrastyttingar og efla samskipti íbúa innanhús sem utanhús.
Í tölvukennslu er boðið upp á einstaklingsbundna kennslu einu sinni í viku, tíminn sem hver og einn fær er frá 30 til 60 mínútur. Reynt er að hafa kennsluleiðbeiningar og efnistök sem mest við hæfi hvers og eins.
Útvegun hjálpartækja
Iðjuþjálfi útvegar, sér um aðlögun og eftirlit á hjólastólum til einkaafnota fyrir íbúa Sóltúns:
Auk þessa sinnir iðjuþjálfi léttari viðgerðum og breytingum á hjólastólum, en sendir þá til Hjálpartækjamiðstöðvar T.r. ef um stærri breytingar/viðgerðir er að ræða.
Árið 2007 notuðu 49 íbúar hjólastól að staðaldri eða 53% íbúa en 10 íbúar höfðu fengið úthlutaðan hjólastól til afnota við lengri vegalengdir.
Árið 2008 voru færri íbúar sem notuðu hjólastól að staðaldri eða 44% íbúa.
Það hefur mikla þýðingu að velja “réttan” stól fyrir hvern íbúa. Fylgja þarf líkamshlutföllum hans, velja stól sem styður við/eflir færni hans, t.d.huga að hæð á stól/borði við að matast, hæð frá gólfi/sessu við að aka sjálfur, sessa til varnar þrýstingssárum, stuðningur við bol/háls. Þyngd stóls skiptir máli ef íbúi ekur stólnum sjálfur; hægindahjólastólar geta stutt við aukin félagstengsl og fleira í þessum dúr þarf að huga vel að.
Ferðir utanhúss, til dæmis um nágrennið, kaffihús, ökuferðir, tónleikar, listasöfn, leikhús og fleira sem gefur íbúum Sóltúns tækifæri til að takast á við gömul/ný hlutverk, upplifa sigra og ánægjulegar stundir.