Gæðakerfi Sóltúns byggir á heildarskipulagi og samhengi vinnuferla og verklagsreglna í samræmi við hugmyndafræði hjúkrunar og stefnukort heimilisins. Gæðakerfið samanstendur af viðurkenndum alþjóðlegum mats- og mælitækjum hjúkrunarfræðinnar, framsetningu á gæðastöðlum sem unnir eru af gæðateymum heimilisins og eftirfylgni þeirra. Mörg gæðateymi byggja á þverfaglegri teymisvinnu með aðkomu hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, djákna, þroskaþjálfa, félagsliða, næringar- og rekstrarfræðings og  lækna eftir því sem við á. Lyfjastefna Sóltúns tryggir gagnsemi, áreiðanleika og hagkvæmni lyfjameðferðar, en lyfjameðferð er umfangsmikill þáttur í læknismeðferð íbúanna.

Erindi um aðferðafræði gæðaumbótastarfs flutt á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

Hjúkrunarferlið ( The nursing process)

Einstaklingshæfð hjúkrunaráætlun er unnin  í samvinnu við íbúann og aðstandendur hans. Þar er notast við RAI-gagnasafnið og Gordon´s lyklana sem upplýsingasafn hjúkrunarferlisins ásamt líkamsskoðun, NANDA hjúkrunargreiningar, markmiðasetningu og framvindumat. Hjúkrunaráætlun er háð stöðugri endurskoðun  í tengslum við breytingar á heilsufari og árangursmati á veittri hjúkrunarþjónustu. Hjúkrun er heildræn og tekur mið af líkamlegum, andlegum og sálfélagslegum þörfum hvers íbúa. Öll hjúkrunarmeðferð skal byggð á traustum þekkingarlegum grunni. Gæðaeftirlit á einstaklingsbundinni hjúkrun felst í skoðun á hjúkrunaráætlun hvers íbúa, ásamt viðræðum við þá og aðstandendur þeirra í reglubundnum fjölskyldusamtölum, sem og neðangreindum mats- og mæliaðferðum. Hjúkrunaráætlunin er skráð í rafræna hjúkrunarskrá (SÖGU) íbúans og er útdráttur hennar varðveitt er hjá honum.

D 1.4.Gæðastaðall um skráningu hjúkrunar

Gæðastaðlar

Dysss´is (The Dynamic Standard Setting System) gæðastaðlar byggðir á hugmynda- og aðferðafræði Avedis Donabedians og Dr. Alison Kitson eru settir fram um lykilatriði í hjúkrun aldraðra s.s. geðheilbrigði, næringu, útskilnað, verkjameðferð, lyfjanotkun, notkun öryggisútbúnaðar, persónulega hirðingu, tannvernd, húðheilsu, hreyfingu, afþreyingu, og öryggi í eigin íbúð. Gæðastaðlarnir innihalda markmiðslýsingu þ.e. að hverju er stefnt, uppbyggingarviðmið þ.e. hvað þarf til að staðli sé náð, framkvæmdarviðmið þ.e. hvað þarf gera til að staðli sé náð, og árangursviðmið sem lýsa þeim árangri sem ná á, á mælanlegan hátt. Gæðastaðlarnir eru unnir af starfsfólki sem nota þá síðan sem leiðarljós í starfi, þeir eru skráðir og eru liður í aðlögun nýrra starfsmanna sem og til innra eftirlits á gæðum þjónustunnar.

Gæðastaðll um næringu                                     

Erindi um störf næringarteymis á ráðstefnu Sóltúns 17.janúar 2008 

Gæðastaðall um verkjameðferð

Erindi um störf verkjateymis á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

Gæðastaðll um forvarnir gegn byltum

Erindi um störf byltuteymis á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

Meðferð eftir skurðaðgerð í kjölfar lærbrots

Gæðastaðall um varnir gegn höftum

Erindi um störf teymis til varnar höftum á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

Leiðbeiningar um forvarnir gegn höftum

Gæðastaðall um þvaglekameðferð

Erindi um þvaglekateymið á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

Gæðastaðall meðferðar við lífslok

Skemi notaður í líknameðferð og við alvarleg veikindi

Erindi um störf líknarteymis á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

Erindi um störf sárateymis á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

RAI-mat

Íbúar eru metnir með rafrænu RAI-mati, sem vistað er á miðlægum heilbrigðisvef í vörslu heilbrigðisyfirvalda, við komu á heimilið og hvenær sem meiriháttar breyting verður á heilsufari. Minnst eru gerð 3-4 RAI-möt á ári. RAI-mat gefur upplýsingar um heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa, reiknar út niðurstöður gæðavísa og þyngdarstuðul íbúa. Margvíslegir kvarðar (skalar) gefa niðurstöður um heilsufar og færni íbúa, sem og árangur þjónustunnar.

D 1.5.Gæðastaðall um skráningu hjúkrunar og þjálfunar  í RAI

Kvarði til að meta vitræna getu

Kvarði til að meta líkamlega færni við athafnir daglegs lífs og eigin umsjár

Kvarði til að meta getu til þátttöku í félagsstarfi/félagslífi

Kvarði til að meta alvarleika þunglyndis

Kvarði sem greinir hvort um verulega afturför er að ræða

Erindi um RAI mat á ráðstefnu Sóltúns 17. janúar 2008

 

Gæðavísar

Gæðavísar RAI-mælitækisins (Raunverulegur aðbúnaður íbúa ,,The Resident Assessment Instrument”) eru notaðir til að setja fram viðmiðunarmörk hjúkrunar á Sóltúni. Gæðavísarnir eru: Ný tilfelli brota, algengi dettni, algengi hegðunarvandamála gagnvart öðrum, algengi þunglyndiseinkenna, algengi þunglyndiseinkenna án meðferðar, algengi á notkun 9 eða fleiri lyfja, algengi þvag- og hægðaleka, algengi þvag- og hægðaleka án reglubundinna salernisferða, algengi þvagleggja, algengi hægðastíflu, algengi þvagfærasýkinga, algengi þyngdartaps, algengi sondugjafa, algengi vökvaskorts, algengi rúmfastra íbúa, notkun sterkra geðlyfja í öðrum tilfellum en mælt er með, notkun kvíðastillandi lyfja í öðrum tilfellum en mælt er með, stöðug notkun svefnlyfja eða oftar en tvisvar í viku, algengi daglegra líkamsfjötra/öryggisútbúnaðar, algengi lítillar eða engrar virkni, algengi þrýstingssára stig 1-4.

Reglulega er  fylgst með niðurstöðum gæðavísa í Sóltúni og þær notaðar til forgangsröðunar í stöðugu umbótastarfi sem fram fer á heimilinu. Sérstaklega er horft á árangur í samanburði við önnur sambærileg hjúkrunarheimili (benchmarking) hér á landi sem erlendis.  Stöðugt umbótastarf er í gangi þar sem nýjasta þekking er ávallt notuð til endurskoðunar á vinnuferlum í hjúkrun og þróunar á hjúkrunarmeðferð og nálgun viðfangsefna á hverjum tíma.

 Niðurstöður gæðavísa 2002-2009

Viðhorfskönnun

Stöðug viðhorfskönnun meðal íbúa og aðstandenda á hjúkrun er viðhöfð með notkun mælitækisins ,,Viðhorfskönnun til hjúkrunar, samskipta, umhverfis og annarrar þjónustu”

Niðurstöður viðhorfskönnunar 2009, hjá þeim sem gátu svarað

 

Starfsmannasamtöl og frammistaða starfsmanna

Gæði hjúkrunar eru ennfremur metin út frá frammistöðu starfsfólks, en starfsmannasamtöl byggð á hugmyndalíkani Habermas um þýðingu samtalsins og Merry Scheel um ,,The interactive nursing practice” og f rammistöðumat fer fram árlega. Stuðst er við útfærslu Önnu Birnu Jensdóttur á starfsmannasamtölum á öldrunarsviði Landspítala háskólasjúkrahúss, en útfærslan hefur verið notuð hérlendis  síðan 1988 og verið undir stöðugri endurskoðun. Útfærslan er notuð á heilbrigðisstofnunum víða um land, sem og sem forskrift hjá mörgum stofnunum  sveitarfélaga.

Gæðastaðall um framkvæmd starfsmannasamtala

Niðurstöður rannsóknar á vinnustaðamenningu og lærdómsumhverfi á Sóltúnsheimilinu

Álagsmælingar og þyngdarstuðull

Ársfjórðungslega  og oftar ef þurfa þykir er fylgst með hjúkrunarþörfum og hjúkrunarálagi með RUG (Resources Utilizations Groups) úrlestri og skoðunar á þyngdarstuðli heimilisins. Meðaltal á RAI mælingum yfir árið getur leitt til magnleiðréttinga á daggjaldi til starfseminnar eftir því sem umönnunarálag eykst eða minnkar. Notast er við 34 flokka reiknireglu byggða á bandarískum tímamælingum frá 1998 samkvæmt þjónustusamningi við HTR.

Niðurstöður þyngdarstuðla skv. RAI-mælingum  2006-2008

Innra gæðaeftirlit

Gæðaráð samanstendur af hjúkrunarforstjóra sem jafnframt er formaður ráðsins, og starfsfólki heimilisins. Hlutverk gæðaráðs er að meta gæði starfseminnar með skipulögðum og reglubundnum hætti, skrá úttektir og gera áætlanir um úrbætur.  Fjölmörg gæðateymi eru starfandi undir stjórn hjúkrunarstjóra gæðamála. og sjá þau um alla eftirfylgd með gæðaumbótastarfinu og miðla til annarra. Unnið er samkvæmt áætlun í skorkorti.Sjá erindi um störf gæðateyma hér að ofan.

Gæðakerfi læknisþjónustu

Við samning um læknisþjónustu er sértaklega gætt að gæðakerfi hennar sé lýst í samningnum svo meta megi árangur læknisþjónustunnar. Gæði læknisþjónustunnar verða einnig metin út frá niðurstöðum gæðavísa.Samningur er við öldrunarsvið Landspítala um læknisþjónustu.

Verksvið lækna LSH á hjúkrunarheimilum

Verksvið læknis á hjúkrunarheimili, grein í Læknablaðinu 3.tbl.95.árg.2009

Lyfjastefna og lyfjagæðahandbók

Sóltún var fyrsta heilbrigðisstofnunin hérlendis til að setja fram stefnu í lyfjamálum. Meginatriði stefnunnar er að lyfjameðferð sé gagnleg, örugg og hagkvæm. Sett var fram lyfjahandbók sem skilgreinir vinnuferla um reglubundið mat á árangri lyfjameðferðar.

 Lyfjagæðahandbók Sóltúns

Leiðbeiningar um verkjastillingu í líknandi meðferð

Gæðakerfi þjálfunar og sértækrar endurhæfingar

Sjúkraþjálfarar hafa lögverndað starfsheiti frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðaneytinu og starfa samkvæmt Evrópskum stöðlum um sjúkraþjálfun sem unnir voru af Evrópudeild heimssambands sjúkraþjálfara og samþykktir á aðalfundi þess í maí 2002. Í Evrópsku stöðlunum er fjallað um samvinnu og þagnarskyldu við sjúkling, skoðun og meðferð sjúkraþjálfara, greiningu sjúkraþjálfara á vandamáli sjúklings, meðferðaráætlun og framkvæmd hennar, mat á meðferð sjúkraþjálfara, samskipti við umönnunaraðlila og annað fagfólk, skráningu sjúkraþjálfunar, öryggi sjúklings, og símenntun sjúkraþjálfarans.

Sjúkraþjálfarar framkvæma skoðun á íbúa eftir að beiðni um sjúkraþjálfun hefur borist frá lækni heimilisins. Sjúkraþjálfari setur fram meðferðaráætlun í rafræna sjúkraskráningu (SÖGU) og vinnur markvisst eftir þeim markmiðum sem hann hefur sett varðandi þjálfun íbúans. Sjúkraþjálfarinn skráir framvindumat í SÖGU. Gæðaeftirlit á einstaklingsmiðaðri sjúkraþjálfun felst í stöðluðum prófum eins og t.d. Berg jafnvægisprófi auk huglægs mats sjúkraþjálfarans. Meðferðaráætlunin er því undir stöðugu endurmati til að tryggja að hún sé skilvirk og í samræmi við breyttar aðstæður og heilsu íbúans. Sjúkraþjálfarar framkvæma að auki RAI mat sem metur hjúkrunarþarfir og heilsufar íbúa á öldrunarstofnunum. Sjúkraþjálfari hefur náið samstarf við lækni, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa og aðra umönnunaraðila íbúans. Sjúkraþjálfunin er heildræn og tekur mið af líkamlegum, andlegum og sálfélagslegum þörfum hvers íbúa. Öll meðferð sjúkraþjálfara skal byggð á traustum þekkingarlegum grunni.  

Útbúið er sérstakt gæðaeftirlit sjúkraþjálfunar s.s.varðandi einstaklingsmeðferðir og hópleikfimi þar sem skrá er  haldin svo meta megi gildi og árangur þjálfunarinnar.

Samskonar gæðakerfi er svo meta megi árangur iðjumeðferðar af hálfu iðjuþjálfunar. Mat er m.a. birt  í skorkorti. Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfi eru virkir þátttakendur í þverfaglegri gæðateymisvinnu. Sjá erindi um störf gæðateyma hér að ofan.

Atvikaskráning

Skrá skal hvers kyns atvik og óhöpp sem verða á Sóltúni, svo sem byltur, slys sem íbúar, starfsfólk eða gestir verða fyrir, ofbeldi gagnvart íbúa og starfsfólki, stunguóhöpp, rangar lyfjagjafir, skemmdir á eigum íbúa og heimilis, þjófnað, o.s.frv. Atvikaskrá íbúa er skráð í Sögu og er tilkynnt til hjúkrunarstjóra sem ber ábyrgð á að gripið sé  til viðeigandi ráðstafana. Ennfremur heldur hjúkrunarforstjóri  skrá yfir kvartanir og viðbrögð við þeim.

Sýkingavarnir

Sýkingavarnir felast í því að vernda íbúa og starfsfólk fyrir smitandi sjúkdómum, fyrirbyggja útbreiðslu á smiti frá einstaklingum, og hafa til reiðu áætlun um aðgerðir vegna einangrun smitaðra, ónæmisaðgerða, sótthreinsunar o.s.frv. Sóltún starfar í samræmi við sýkingavarnaáætlun.

Sýkingavarnaáætlun Sóltúns        Dagskrá sýkingavarnaviku 7.-11.september 2009

Vökull- hjúkrunarvöktunarkerfi

Notað er öryggiskerfið Vökull, sem tryggir að íbúi geti kallað eftir aðstoð með hefðbundinni bjöllu, síma og með skynjurum ef viðkomandi getur ekki notað bjöllu. Kerfið er tengt gagnagrunni sem þýðir að hægt er að fylgjast regulega með svartíma í samræmi við skorkortið. Sóltún var fyrsta hjúkrunarheimilið utan Norður-Ameríku og Ástralíu til að taka Vökul í notkun sem er eitt fullkomnasta sinnar tegundar.

Öryggisstefna

Sóltún ver upplýsingaeignir Sóltúns og íbúa gegn öllum ógnum innri og ytri, af ásetningi eða vegna óhappa og slysni með því að fylgja öryggisstefnu sinni. Sóltún var fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að setja fram stefnu varðandi upplýsingaöryggi í samvinnu við Stika hf.

Ytra eftirlit

Opinberir eftirlitsaðilar fylgjast með starfsemi Sóltúns. Heilbrigðis- og vinnueftirlit koma í reglulegar skoðanir. Jafnframt gerir Ríkisendurskoðun úrtakskannanir og stjórnsýsluendurskoðun. Landlæknisembættið framkvæmir gæðaeftirlit og gerir m.a. áreiðanleikamat á RAI-mati. Bankastofnanir gera m.a.  áreiðanleikakannanir í tengslum við fjármögnunarsamninga stofnkostnaðar.