Yfirlit
Táknróf Skilgreiningar
Markmið
með fjölskyldustefnu Sóltúns er að efla fjölskyldur í nútímasamfélagi. Sóltún leitast við að skapa
jákvæða fjölskyldustefnu með því hlúa
vel að fjölskyldunni
og skapa henni
þroskavænleg skilyrði. Sterk og jákvæð
fjölskyldustefna er liður í því að
auka starfánægju starfsmanna. Aukin ánægja starfsfólks skilar sér í betri
starfsanda og árangursríkara
starfi .
·
Sóltún
leitast við að jafnvægi ríki
milli fjölskyldulífs og atvinnu með
því að gefa
starfmönnum kost á sveigjanlegum vinnutíma eða annarri
hagræðingu á vinnutíma þar sem
því verður við komið.
·
Sóltún
býður fjölskyldum starfsfólks að borða hádegisverð í kaffiteríu heimilisins gegn niðurgreiddu verði í samráði við elshúsið hverju
sinni og á sérstökum dögum, s.s skötuveislur á þorláksmessu, þorramat, saltkjöt og baunir á sprengidag, og eru slíkar uppákomur auglýstar sérstaklega.
·
Sóltún
leitast við að taka tillit til breytinga á
persónulegum högum starfsfólks.
·
Starfsfólki Sóltúns er
heimilt að taka með sér börn
sín í vinnuna þegar sérstaklega stendur á og
í samráði við yfirmann sinn, svo fremi sem
það hafi ekki truflandi áhrif á þjónustu
við íbúa.
·
Samkomusalur
Sóltúns er starfsfólki til reiðu fyrir fjölskyldusamkvæmi
samkvæmt ákveðnum reglum.
·
Sóltún
styður við fjölskylduvænar skemmtanir á vegum starfsmannafélagsins.
Samþykkt á fundi
starfsfólks 03.02.2004 -MJ
© Öldungur hf.