C.2.8.  Jafnréttisáætlun  

 


Yfirlit   Táknróf   Skilgreiningar

 

  

Markmið

 

Markmið jafnréttisáætlunar Sóltúns er stuðla jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan Sóltúns, ennfremur minna stjórnendur og starfsfólk heimilisins á mikilvægi þess allir fái notið sín án tillits til kynferðis. Sóltún telur mikilvægt nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla.

Í öllu starfi Sóltúns verður unnið gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar kvenna og karla í þjóðfélaginu. Jafnréttismál og leiðir til vinna jafnri stöðu kynjanna verði virkur þáttur í starfsmannastefnu Sóltúns.


Sóltún leggur áherslu á eftirfarandi:

Launajafnrétti

 

Við ákvörðun launa skal þess gætt kynjum ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.  Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt, sbr. 14. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.

 

Auglýsingar og upplýsingagjöf

 

Í auglýsingum eru störf ókyngreind og þess gætt hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsinga.


Stöðuveitingar og störf

 

Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar.
Þess verði gætt við úthlutun verkefna, tilfærslu í störfum, tækifæra til axla ábyrgð og framgangs í störfum einstaklingum ekki mismunað vegna kynferðis.


Starfsþjálfun og endurmenntun

 

Tryggt verði konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til sækja námskeið er haldin eru til auka hæfni í starfi eða undirbúnings öðrum störfum.


Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs

 

Leitast er við gera starfsfólki kleift samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.


Starfsandi og líðan starfsmanna

 

Allt starfsfólk eiga rétt á því komið fram við þá af virðingu og þeir sæti ekki einelti kynferðislegri áreitni*.

 

Einelti er ekki liðið í Sóltúni. Slík tilvik eru meðhöndluð skv. ákveðnu ferli sem er skráð og viðurkennd af stéttarfélögum.

* Kynferðisleg áreitni er skilgreind svo í 17. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 :

Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

 

 

 

Samþykkt á fundi starfsfólks 03.02.2004 – MJ

©Öldungur hf.