C.2.4.  Heilsueflingarstefna

 


Yfirlit   Táknróf   Skilgreiningar

 

  

 

Markmið Sóltúns er styðja við heilsueflingu starfsmanna sinna. Heilsuefling miðar því hafa áhrif á lífsstíl fólks og gera því kleift lifa heilsusamlegu lífi við heilnæmar aðstæður. Með heilsueflingarstefnu Sóltúns er leitast við  skapa skapa fólki félagslegar, menningarlegar og efnahagslegar aðstæður og umhverfi sem gera einstaklingum kleift auka hreysti og efla vitund og vilja til viðhalda heilbrigði.
Heilsuefling er nútímaleg stjórnunaraðferð sem miðar því efla heilbrigði og vellíðan  starfsfólks og koma í veg fyrir vinnutengt heilsutjón (s.s. slys, meiðsli, atvinnusjúkdóma og streitu).

Velgengni Sóltúns veltur á vel menntuðu, áhugasömu og heilbrigðu starfsfólki og vinnuumhverfið getur haft áhrif á heilsufar og sjúkdóma á margan hátt.

Heilsuefling dregur úr veikindakostnaði, eykur afköst  starfsfólks vegna betri heilsu og aukins áhuga þeirra, bætir starfsanda og samskipti á vinnustaðnum. Heilsuefling er fjárfesting til framtíðar.

 

 

Heilsuefling í Sóltúni felur í sér :

 

·        Starfsmannastefnu og stjórnunaraðferðir sem taka mið af því að starfsfólkið er auðlind og nauðsynleg forsenda velgengni heimilisins.

 

·        Sóltún stendur fyrir fræðslu um vinnustellingar og aðgerðir til að efla heilsu (virk vinnuvernd). Öll hönnun húsnæðis og val á tækjabúnaði tekur mið af vinnuverndarsjónarmiðum og til að fyrirbyggja álagseinkenni og stoðkerfisvandamál.

 

·        Sóltún býður upp á árlegar heilsufarsmælingar s.s. blóðþrýstingsmæling, blóðfitumæling, blóðsykur, beinþéttnimælingu og útreikning á kjörþyngdarstuðli. Jafnframt er  hjartalínurit í boði fyrir 50 ára og eldri. Ef  frávik greinast fær starfsfólk ráðgjöf um úrræði. Maí mánuður er heilsumánuður Sóltúns og verða mælingarnar auglýstar sérstaklega.

 

·        Sóltún býður starfsfólki sínu upp á bólusetningar gegn flensu á haustin.

 

·        Sóltún stendur fyrir öflugri símenntun fyrir starfsfólk, þar sem leitast er við að örva fólk til jákvæðra hugsana, sjálfstyrkingar og annars sem eflir andlegt atgervi og hugarró og styður við fólk í krefjandi starfi.

 

·        Sóltún hefur á að skipa stuðningsteymi sem aðstoðar starfsfólk í erfiðum málum sem tengjast starfinu. Í stuðningsteyminu er djákni og hjúkrunarfræðingur, læknir bætist í hópinn þegar þörf er. Lögð er áhersla á viðrunarfundi, þar sem fólk ræðir í trúnaði um erfiðar upplifanir og viðbrögð við þeim.

 

·        Starfsmannastefna Sóltúns styður virkra þátttöku bæði starfsfólks  í heilsueflingu. Í því skyni býður Sóltún starfsfólki sínu upp á líkamsræktarstyrki. Starfsfólk er sérstaklega hvatt til að taka þátt í vikulegri leikfimi íbúa í sambýlum Sóltúns og stunda hreyfingu með íbúum utandyra sem innan sbr. Ísland á iðið átakið. Gönguhópar eru virkir í Sóltúni og er stutt sérstaklega við félagslíf  starfsfólks og fjölskyldna þeirra í gegnum starfsmannafélagið.

 

·        Sóltún stuðlar að styrkingu á sjálfsímynd og vellíðan starfsfólks með því að bjóða upp á sérkjör á hárgreiðslu-, fótaaðgerða, snyrti-, og nuddþjónustu.

 

·        Sóltún notar vaktakipulagskerfi sem tryggir sveigjanleika og jafnvægi á milli starfs og frítíma.

 

 

Samþykkt á fundi starfsfólks 03.02.2004 - MJ

© Öldungur hf.