C. 3.  Starfsmannastefna

 


Yfirlit   Táknróf   Skilgreiningar

 

Sóltún leitast við að hafa á að skipa starfsfólki sem býr yfir bestu þekkingu og færni til starfa á sínu sviði, á hverjum tíma. Starfsfólkið skal búa yfir eiginleikum til að skapa umhyggjusamt, gefandi og uppbyggjandi andrúmsloft. Með því tekst að tryggja íbúum Sóltúns bestu mögulegu þjónustu. Í því skyni verður vandað til ráðningar starfsfólks með ofangreint í huga, með ráðningar samtölum, umsögnum og athugunar á menntunar- og starfsferli ásamt samskiptahæfni.  Við ráðningu verður lögð áhersla á aðlögun starfsmanna, með sérstöku aðlögunarferli þar sem leitast verður við að stilla saman strengi þá sem heimilið stendur fyrir og framlag hins nýja starfsmanns til þjónustunnar. Hugmyndafræði, markmiðum og leiðum til að ná þeim verður síðan fylgt eftir með reglubundnum starfsmannasamtölum þar sem starfsmaður og yfirmaður hans fara yfir alla þá þætti sem máli skipta til að árangri sé náð í þjónustunni við íbúa heimilisins og þátt hlutaðeigandi starfsmanns í því. Þannig er um að ræða forvarnarstarf, þar sem leitast er við með skipulögðum hætti að sjá vandamálin fyrir og gera umbætur áður en þau hafa áhrif á starfsemina. Ennfremur verður lögð áhersla á að starfsmenn fái reglubundið mat á eigin frammistöðu þar sem áhersla er lögð á styrkleika þeirra í starfi og hvernig þeir fái notið sín, og á uppbygginlegan hátt skoðaðir veikleikar í starfi sem taka þarf á og byggja upp. Leitast er við að upplýsingastreymi sé markvisst og að starfsmenn þekki réttar boðleiðir. Starfsmannahandbók með lykilupplýsingum verður aðgengileg á hverri hjúkrunarstöð og á innri veitu:  vefur/staff.

Helsti auður hjúkrunarheimilisins Sóltúns er mannauðurinn. Lykilatriði er að starfsfólki líði vel í starfi, fái tækifæri til njóta sín og leggja að mörkum til þróunar þjónustunnar, meginatriði er því að stöðuleiki sé í starfsmannahaldi og  taka vel á móti nýliðum. Starfslýsingar liggja fyrir um öll störf í Sóltúni,  ásamt aðlögunarprógrammi.

Lögð er áhersla á mikilvægi þess að starfsfólk virði siðareglur starfstétta og trúnað gagnvart íbúum og aðstandendum.

Fystu kynni sem starfsmaður fær af vinnustað skiptir miklu máli, bæði fyrir starfsmanninn og hjúkrunarheimilið.  Báðir aðilar hafa ákveðnar væntingar til samstarfsins sem nauðsynlegt er að samræma. Þess vegna er mikilvægt að aðlögun starfsmanns heppnist vel.

Það er mikilvægt að þeir sem eru ráðnir til starfa hjá hjúkrunarheimilinu þekki skráð og óskráð lög þess. Kynningardagsskrá og starfsaðlögunarprógramm liggur því fyrir þegar nýliði hefur störf.   Henni ber að fylgja eftir með því að einn starfsmaður (eins konar fóstri) taki að sér að koma starfsmanninum inn í starfið. Mikilvægt er að sá sem tekur að sér fóstrahlutverkið sé góð fyrirmynd og hafi náð góðri færni í starfi.

Markmiðið er að nýliðar fái markvissa og árangursríka aðlögun með því: a) að auðvelda honum að tileinka sér færni í umönnun íbúa Sóltúns, b) að tryggja að hann fái tækifæri til að nýta sér sem best þekkingu sína og hæfni, c) að stytta þann tíma sem þarf til að ná færni og öryggi í starfi og d) að starfsmaður tileinki sér skráðar og óskárðar reglur Sóltúns og e) að stuðla að starfsánægju.

 

AÐLÖGUNARFERLI

Um leið og starfsmaður er ráðinn til starfa fær hann útprentaða dagskrá af starfsaðlögunini, starfslýsingu, upplýsingar um  Sóltún og ýmsa bæklinga og fræðsluefni sem gefið hefur verið út af Sóltúni. Áður en hann tekur til starfa er honum úthlutaður leiðbeinandi sem sér um og ber ábyrgð á aðlöguninni. Starfsmaður starfar með honum eftir í eina viku. Eftir það tekur hann sjálfstæðar vaktir. Aðlögunin heldur áfram í 4 vikur og ber leiðbeinandi ábyrgð á henni á meðan. Gert er ráð fyrir viðtali við yfirmann eftir viku, 4 vikur  og svo eftir 3 mánuði.

MAT Á STARFSAÐLÖGUN

Aðlögunin er metin með því að skoða ýmsa mælikvarða sem meta hana. Ákveðið mælitæki er þá lagt fyrir viðkomandi í lok aðlögunar. Síðan eru niðurstöður skoðaðar og farið yfir þær. Athugið að aðlögunarprógram getur verið í stöðugri þróun. 

Móttaka og kynning nýliða skiptir mjög miklu máli. Hún styttir aðlögunartíma stafsmanna og kemur í veg fyrir óraunhæfar væntingar til starfsins. Rannsóknir sýna að rétt móttaka nýliða getur minnkað starfsmannaveltu um 9%. Einnig er skýr fylgni á milli starfsánægju og raunhæfra væntingar til starfsins.

Starfsaðlögunarprógramm Sóltúns byggir á verkefni sem Guðrún Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur í Sóltúni vann í framhaldsnámi sínu við Endurmenntunarstofnun H.Í. 2002.

 

HEIMILDASKRÁ

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir og Jóhanna Kristín Gustavsdóttir, 1999. Starfsánægja. Bókaklúbbur atvinnulífins.

Margrét Guðmundsdóttir, 1985. Starfsmannastjórnun. Almenna bókafélagið.

Wexley K.N., Latham G.P., Third Edition. Developing and training Human Resources in Organizations.

Einnig voru fengnar heimildir úr fyrirlestrum og stuðst við fyrri útgáfu á aðlögunarprógramm frá Sóltúni og Landspítala Háskólasjúkrahúsi.

 

© Öldungur 04/04/2003