Sóltún
     Aðbúnaður
     Hugmyndafræði
     Myndir
     Hlekkir
Þjónusta
     Hjúkrun
     Læknisþjónusta
     Sjúkraþjálfun
     Sálgæsla
     Iðjuþjálfun
     Eldhús
     Ræsting
     Þvottur
     Gæðamat
Umsóknir
     Atvinnutækifæri
     Hjúkrunarrými
Starfsfólk
     Símaskrá
     Starfslýsingar
     Stjórn
Fréttir og útgáfur
     Fréttabref
     Útgáfur
     Rannsóknir
     Heimsóknir

Við leggjum áherslu á:

Sjálfræði einstaklingsins, virðingu fyrir einkalífi, athafnasemi, tilhlökkun og að öryggi og vellíðan sé í fyrirrúmi.  Til að ná því er starfsemin í stöðugri endurskoðun gegnum virkt gæðaeftirlit á öllum sviðum þjónustunnar.

Hugmyndafræði og markmið
Hugmyndafræði hjúkrunar og heimilisins Sóltúns hefur umhyggju fyrir einstaklingnum í fyrirrúmi, þar sem sjálfræði hans er virt í allri umönnun. Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers íbúa er ráðandi um leið og öryggiskennd sem hlýst af sambýli og sólarhringshjúkrunarþjónustu er náð. Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefnið í hverju sambýli með áherslu á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins.

Markmið heimilisins er að hjúkrun og önnur þjónusta sé veitt á faglegan og ábyrgan hátt. Heilsu-farsmat þarf að vera heildrænt, hjúkrunaráætlun skráð og háð stöðugri endurskoðun með það að markmiði að auka og viðhalda sjálfsbjargargetu íbúa og getu hans til að laga sig að breyttum aðstæðum. Öryggi íbúa og vellíðan er í fyrirrúmi ásamt því að viðhalda sjálfsmynd og sjálfsvirðingu þrátt fyrir hrakandi heilsufar og færnitap. Hjúkrun byggist á hjúkrunarfræðilegum kenningum, reynsluþekkingu og þeim ramma sem innri og ytri aðstæður setja heimilinu. 

Stefnukort

Stefnumótun

Gildi Sóltúns

 

 

Hjúkrunarheimilið Sóltún stefnir ávallt að því að vera í fremstu röð meðal hjúkrunarheimila. Markmiðið er að veita íbúum ávallt bestu mögulega þjónustu á hverjum tíma og vera aðlaðandi starfsvettvangur, þar sem hæft starfsfólk er í hverju starfi. Allir þættir varðandi hönnun húsnæðis og val á hús- og tækjabúnaði hefur miðast við það. Starfsemi, húsnæði og aðbúnaður allur verður því ávallt háð sífelldri endurskoðun þar sem nýjar hugmyndir og þekkingarþróun verða hafðar að leiðarljósi