Heimili íbúa Á Sóltúni eru samtals 92 einstaklingsíbúðir, 12 sambýli, á þremur hæðum. Til að mæta einstaklingsbundnum þörfum aldraðra einstaklinga sem þarfnast langtímahjúkrunar og læknisþjónustu var leitast við að afmarka hjúkrunarheimilið í 12 sambýli, þannig að einstaklingar með sambærilegar þarfir samnýti ákveðinn sambýliskjarna.
Íbúðir í sambýli Á 1.hæð er eitt 4 íbúða og þrjú 8 íbúða sambýli. Á fyrstu hæð hjúkrunarheimilisins eru því samtals 28 íbúðir.
Á 2. hæð eru fjögur 8 íbúða sambýli sérstaklega ætluð öldruðum sem búa við minnisskerðingu Á annarri hæð hjúkrunarheimilisins eru því samtals 32 íbúðir.
Á 3. hæð eru fjögur 8 íbúða sambýli. Á þriðju hæð hjúkrunarheimilisins eru því samtals 32 íbúðir.
Íbúðirnar eru hannaðar til að mæta einstaklingsbundnum þörfum íbúa og skapa umönnunarfólki góða vinnuaðstöðu. Í hverri íbúð er baðherbergi með salerni, vaski og sturtu. Baðherbergin eru innréttuð þannig að tveir starfsmenn geta auðveldlega aðstoðað íbúann. Í íbúðum fyrir íbúa sem búa við verulega skerðingu á hreyfi- og sjálfsbjargargetu er loftfest lyfta sem liggur frá rúmi að salerni, handlaug og sturtu. Hægt er að stilla hæð handlaugar í hverri íbúð. Í hverri íbúð er læstur skápur fyrir lyf íbúans, verðmætaskápur, hirsla fyrir hjúkrunarskrá hans og öryggishnappur. Íbúi getur haft eigin síma, sjónvarp og tölvu hjá sér, en greiðir þá sérstaklega afnotagjöld. Pósthólf er fyrir framan hverja íbúð.
Sambýliskjarni Hverju sambýli tilheyrir sameiginlegur sambýliskjarni. Þar er sameiginleg setustofa og borðstofa ásamt eldunaraðstöðu, þar sem íbúar geta tekið virkan þátt í bakstri og matarundirbúningi. Stillanleg hæð er á borðplötu eldhúsinnréttingar og er öryggislæsing á rafbúnaði eldunartækja. Aðstaða til þjálfunar, afþreyingar og samveru er einnig í sambýliskjarnanum sem og í stærri þjálfunarsal og samkomusal heimilisins á 1. hæð. Ein hjúkrunarstöð er fyrir hver tvö sambýli og er hún staðsett í miðjum sambýliskjarnanum með útsýni til þeirra beggja. Ennfremur er vinnuborð með tölvutengingu í setustofu hvers sambýliskjarna sem íbúar og starfsmenn geta notað eftir þörfum.
Tölvur hjúkrunarheimilisins eru ekki ætlaðar aðstandendum eða börnum sem eru í heimsókn.
Sameiginlegt rými fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins Samkomusalur býður íbúum með aðstoð umönnunarfólks og aðstandenda upp á möguleika til að halda veislur, hittast og sinna hópstarfi tengdu sameiginlegu áhugasviði, standa fyrir uppákomum af ýmsu tagi, s.s. dansleikjum, leiksýningum, tónlistarflutningi, myndlistarsýningum, bingói og ýmiskonar fundum.
Samkomusalurinn er ekki leigður til veisluhalda annarra en íbúanna sjálfra og
starfsfólks samkvæmt sérstökum reglum. Í samkomusalnum er altari og eru guðþjónustur haldnar þar. Samkomusalurinn nýtist einnig sem kaffitería fyrir íbúa, aðstandendur og starfsfólk. Sjúkrabaðherbergi með nuddkerlyftubaði fyrir íbúana er á hverri hæð fyrir sig, sem og þvottavél og þurrkari og eru þau tæki á skolherbergjum.
Aðstaða utandyra Á 1. hæð er aðgengilegt út í garð, en þar er heitur pottur og garðskáli. Á 2. hæð er aðgengilegt út í öruggan þakgarð. Svalir eru út frá setustofum á hverri hæð. Frá sambýlum á 2. og 3. hæð er ennfremur stigi niður í afgirta garða. Garðar og þakgarður heimilisins eru skjólgóðir þar sem leitast verður við að árstíðabundnar breytingar gróðursins njóti sín. Þar geta íbúar sinnt léttri garð- og blómarækt, s.s. að setja niður blómalauka og rækta salat, rifs- og jarðarber.
Aðstaða til þjálfunar Sjúkraþjálfun er á 1.hæð. Þar er tækjasalur ásamt básum fyrir einstaklingsmeðferð. Þaðan er gengið út í garð heimilisins þar sem auðvelt er að fara í gönguferðir að garðskála ,,pavilion”, sem og að slaka á í heitum potti. Pottinn má einnig nota til vatnsleikfimi. Innangengt er úr sjúkraþjálfun í skiptiklefa og baðherbergi. Sjúkraþjálfarar Sóltúns eru Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir og
Rannveig E. Arnar. Með þeim starfar Halldóra K. Þórðardóttir sjúkraliði.
Nudd er hægt að panta í Sóltúni. Iðjuþjálfun er á 1.hæð innan við samkomusalinn. Í iðjuþjálfun er aðstaða til hvers kyns þjálfunar við iðju, s.s. föndur, bókband, sauma, vélprjón, smíðar, netavinnu, leðurvinnu, málun o.s. frv. Nokkrir klúbbar eru starfandi má þar nefna spilaklúbb, prjónaklúbb, endurminningaklúbb,
makaklúbb, sælkeraklúbb og garðyrkjuklúbb. Iðjuþjálfari er Hildur Þráinsdóttir
og þroskaþjálfi er Finnbjörg Skaftadóttir.
Aðstaða fyrir læknisþjónustu Á annarri hæð er heilsugæsla. Reiknað er með að læknir heimilisins vitji íbúa í íbúðum
þeirra nema þeir vilji frekar panta sér tíma á heilsugæslunni. Læknar heimilisins er
Eyjólfur Haraldsson og Friðný Jóhannesdóttir og Guðný Bjarnadóttir.Öldrunarlæknar Landsspítala, Landakoti gegna að auki
bakvaktarþjónustu. Aðstöðu er fyrir minni háttar tannheilbrigðisþjónustu á
2.hæð. Sóltún hefur milligöngu um aðstoð tannlæknis ef þarf.
Hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa Á 2. hæð rekur Ólöf Halldórsdóttir hárgreiðslustofu og Hildur Pálsdóttir fótaaðgerðarstofu. Snyrtifræðingar frá Snyrtistofu Eyglóar annast handsnyrtingu.
Reykingar Reykingaherbergi fyrir íbúa er á 3.hæð. Af öryggisástæðum er mælst til þess að íbúar noti reykherbergið til reykinga, en ekki íbúðir sínar. Samkvæmt lögum er gestum og starfsfólki með öllu óheimilt að reykja í Sóltúni eða á lóð þess.
Gistiaðstaða fyrir aðstandendur Gistiaðstaða er fyrir aðstandendur til að gista í styttri tíma ef þörf krefur. Þannig getur aðstandandi utan af landi eða í heimsókn erlendis frá gist í styttri tíma, sem og þeir sem vaka yfir íbúa með hrakandi heilsufar, hvílst.
Bankaþjónusta og verslun Enginn grundvöllur hefur reynst fyrir viðvarandi bankaþjónustu í Sóltúni.
Nýji Kaupþing veitir bankaþjónusta í Sóltúni ef margir íbúar í senn óska þess. Sjálfsali fyrir gosdrykkjasölu er á 2. hæð , hárgreiðslustofan annast sölu á snyrtivörum og ýmsum nauðsynjum til persónulegra þarfa.
Verslanir halda reglubundnar tísku-og sölusýningar á fatnaði í Sóltúni