Velheppnuð fjölmenningarvika í Sóltúni

 

Undanfarin ár hefur orðið mikil aukning í að fólk flytji búferlum milli landa og festa rætur þar. Ísland, eyja úti langt úti á hafi hefur heillað marga, sem flust hafa hingað undanfarin ár, og líkað vel, sagt landið fallegt og fólkið gott. En hvernig viljum við taka á móti fólki, hvernig viljum við kynna okkur? Það er heillandi að skoða það sem við eigum sameignlegt sem manneskjur, og hver er fjölbreytileikinn og hvernig getum við nýtt hann til að gera samfélagið innihaldsríkara og sterkara.

Við hér í Sóltúni eigum því láni að fagna að hafa fjölbreytta flóru starfsmanna.  Bæði hvað varðar menntun, reynslu og bakgrunn. Starfsfólkið okkar kemur ekki bara viðsvegar af landinu heldur líka frá öðrum löndum, nær og fjær. 

Það er enginn „bara starfsmaður.“ Hver og einn hefur mikið að gefa og ekki síður mikið að þiggja. Hvaðan ertu? Það er spurning sem gefur tækifæri til aukinnar þekkingar, reynslu og víðsýni ef talað er saman og menn gefa sér tíma til að hlusta.

Meðal annars þess vegna var tekið höndum saman og haldin fjölmenningarvika dagana 23. – 30. september.

Vikan hófst með fyrirlestri Guðbjartar Guðjónsdóttur meistaranema í mannfræði, „Að starfa í alþjóðasamfélagi“. Alla vikuna var svo eitthvað um að vera í tengslum við vikuna. Kaffimeðlæti frá mismunandi löndum, bakað af okkar erlenda starfsfólki.

Vikan endaði svo með hátíðardagskrá miðvikudaginn 30. sept.

Fjölbreytt dagskrá undir styrkri stjórn Þórdísar S. Hannesdóttur var sett upp sem kaffihús, þar sem fólk kom og tók tal saman yfir kaffibolla og meðlæti, sem að þessu sinni var frá Póllandi, Litháen og Íslandi.

Meðal efnis var fyrirlestur  sr. Irmu Sjafnar Óskarsdóttur,  “Fjölbreytileiki, menning, trú”.

 

Lucivic Dagný Damasin kynnti land og þjóð Filippseyjar í máli og myndum, einnig sýndi hún dans ásamt þeim Chona Cuares Millan og Cherry Lou Espiritu. 

 

               

 

 

Einnig fengum við að sjá Afrískan dans sem Carmela Concha Andema  sýndi  og allar skörtuðu þær hátíðarbúningum frá sínum heimalöndum. 

 

 

 

Og fleiri skörtuðu þjóðbúningi í tilefni vikunnar, þær Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir, Katrín Karlsdóttir og Guðmunda Steingrímsdóttir mættu allar í upphlut. Vöktu allir búningarnir mikla athygli viðstaddra.

 

Gleði, fróðleikur, fjársjóður og þakklæti eru orð sem hljóma í huga manns  þegar litið er til baka og reynsla fjölmenningarvikunar skoðuð.

Einlægar þakkir eru færðar öllum þeim er tóku þátt á einn eða annan hátt og gerðu fjölmenningarviku í Sóltúni þar með mögulega.