C.2.9 Stuðningsteymi Sóltúns
![]()
Hlutverk og markmið
Stuðningsteymi Sóltúns
sérhæfir sig í að styðja starfsmenn í erfiðum tilfinningarlegum og andlegum
málum sem hafa veruleg áhrif á líðan þeirra og/ eða starfsgetu.
Stuðningur og aðstoð við
einstakling byggir á virðingu og trúnaðartrausti, þar sem starfsmaður
stuðningsteymisins gætir fulls trúnaðar og þagmælsku, sinnir málum af
fagmennsku og trúverðugleika og viðheldur hæfni sinni til starfa.
Starfsmaður
stuðningsteymisins ber skylda til að mæta einstaklingi á jafnréttisgrundvelli
óháð skoðunum hans, trú, þjóðerni litarhætti, kynferði eða kynþætti.
Ef starfsmaður
stuðningsteymisins treystir sér ekki, á faglegum grundvelli, til að sinna máli,
má hann víkja sæti á meðan tiltekið mál er til umfjöllunar og láta aðra
starfsmenn teymisins um að sinna því.
Starfsmaður stuðningsteymis
skal gera einstaklingi grein fyrir þagnarskyldu, en undantekning frá
þagnarskyldu má einungis gera af brýnni nauðsyn eða samkvæmt lagaboði ef
upplýsingarnar kunna að varða ógn eða öryggi við aðra manneskju.
Mál sem teymið tekur til
umfjöllunar eru ekki persónutengd og nöfn starfsmanna eru ekki skráð við
úrvinnslu þeirra.
Starfsmenn stuðningsteymis Sóltúns
Í stuðningsteymi Sóltúns eru
starfandi þrír starfsmenn; hjúkrunarfræðingur, djákni og læknir heimilisins sem
er fyrst og fremst til ráðgjafar.
Aðgengi að stuðningsteyminu
Hægt er að leita til
stuðningsteymisins í heild eða einstaka starfsmanna þess ýmist munnlega eða
skriflega. Einstaklingar og hópar geta sent formlega beiðni til djákna á
skrifstofu djákna, 3. hæð eða með tölvupósti á stuðningsteymi.
Erindi eru metin og tekin
fyrir eins fljótt og auðið er.
Skylda stuðningsteymisins er
fyrst og fremst við þá sem leita til stuðningsteymisins eftir aðstoð eða
ráðgjöf vegna erfiðleika eða áfalla sem tengjast starfi og starfsumhverfi.
Einstaklingi sem leitar til
stuðningsteymisins er boðið upp á eitt eða fleiri viðtöl, eftir þörfum.
Ef leita þarf út fyrir
stuðningteymi eftir faglegum stuðningi mun teymið í samráði við þann sem til
þess leitar koma erindi einstaklings í áframh
Þegar leitað er til
stuðningsteymis vegna samstarfsörðugleika eða álags á hæðum (L-um), stendur
starfsfólki viðkomandi hæða til boða einn eða fleiri stuðningfundir með
fulltrúum stuðningsteymisins.
Meðferð mála
Frumskylda stuðningsteymis
Sóltúns er við þá einstaklinga sem leita til stuðningsteymisins eftir aðstoð
eða ráðgjöf sem tengjast erfiðleikum eða áföllum í starfi og/eða
starfsumhverfi.
Þegar leitað er til
stuðningsteymisins vegna álags eða samstarfsörðugleika á hæðum, stendur
starfsfólki viðkomandi hæða til boða einn eða fleiri fundir, eftir þörfum, með aðilum stuðningsteymisins.
Mál sem stuðningsteymið tekur
til umfjöllunar eru ekki persónutengd og nöfn starfsmanna eru ekki skráð við
úrvinnslu þeirra.
Stuðningsteymið skipa:
Kynnt á starfsfólksfundi
02.04.2004/endurm.2.03.2009
©Öldungur hf.