D.1 Lyfjagæðahandbók, útg. 0.2                                                                                          

 

 

 

Inngangur

Sóltún er hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem búið er að sjúkdómsgreina en þarfnast vistunar og meðferðar sem hægt er að veita utan almennra og sérhæfðra sjúkrahúsa. Íbúar Sóltúns koma fyrst og fremst frá sjúkrahúsum og í litlu mæli beint frá eigin heimili. Þeir búa að öllu jöfnu við fjölþætt heilsufarsvandamál. Sóltún setti fram lyfjastefnu fyrst heilbrigðisstofnana á Íslandi 15. janúar 2003. Árið 2005 vann Sóltún að gerð sameiginlegrar lyfjastefnu dvalar- og hjúkrunarheimila og samþykkti hana sem sína á fundi lyfjanefndar heimilisins 20. október 2005.

 

 

Lyfjastefna dvalar-og hjúkrunarheimila

 

 

Tilgangur

·        Að tryggja heimilisfólki dvalar- og hjúkrunarheimila nauðsynleg lyf til að bæta heilsufar, varna sjúkdómum, lina þjáningar og  koma í veg fyrir versnun sjúkdóma

·        Að koma í veg fyrir eða draga úr óþarfa aukaverkunum lyfja sem annars geta dregið úr lífsgæðum og færni

·        Að koma upp einföldum og samræmdum lyfjalista með það fyrir augum að leita hagkvæmra leiða við lyfjainnkaup með sem minnstum tilkostnaði

·        Að forðast milliverkanir lyfja eins og kostur er og ná þannig hámarksárangri lyfjameðferðar

 

Markmið eru:

a)  Að lyfjameðferð sé gagnleg

b)  Að lyfjameðferð sé örugg

c)   Að lyfjameðferð sé hagkvæm

 

    

Leiðir til að ná tilgangi og markmiðum

 

A     Gagnsemi 

 

·        Lyfjameðferð heimilisfólks skal metin reglulega m.t.t. heilsufars

·        Heimilisfólk með 9 eða fleiri ávísuð lyf skulu fá sérstaka athygli m.t.t. milliverkana, gagnsemi og afleiðinga aukaverkana á færni og lífsgæði a.m.k.x 4 á ári

·        Lyfjameðferð vegna langvinnra verkja  og miðlungs eða verri verkja skal endurskoðuð  mánaðarlega

·        Heimilisfólk á sterkum geðlyfjum, róandi lyfjum og svefnlyfjum skal metið reglulega m.t.t. árangurs lyfjameðferðar

o       vinna á markvisst að því að draga úr notkun svefnlyfja að staðaldri

o       lyf sem notuð eru gegn hegðunarvandamálum, verði almennt notuð tímabundið eða aðeins á meðan verið er að fást við vandann

o       beita skal fleiri meðferðarúrræðum en lyfjameðferð þar sem því er viðkomið

 

 

B   Örugg lyfjameðferð 

 

a) Lyf eru ávísuð af lækni heimilisins og á ábyrgð hans

b) Ávallt skal kannað hvort lyfjaofnæmi sé til staðar

b) Lyf skulu valin í samræmi við lyfjalista

c) Mælt er með þverfaglegri nálgun til bættrar notkunar lyfja

d) Hjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á framkvæmd lyfjagjafa

e) Lyfjanefnd heimilisins fer með reglubundið eftirlit á lyfjanotkun og lyfjakostnaði

f)  Lyfjafræðileg umsjón skal viðhöfð í hvívetna í samræmi við lög

g) Lyfjageymslur skulu vera tryggar. Lyfjafræðingur framkvæmir gæðaeftirlit með uppsetningu, aðgengi og umgengni í lyfjaherbergjum og fyrningu lyfjabirgða

 

C   Hagkvæm lyfjameðferð

 

a)  Nota skal lyf sem hagkvæmust eru í innkaupum samkvæmt lyfjalista, nema brýnar rökstuddar undantekningar kalli á annað

b)  Inntökutímar lyfja séu sem fæstir yfir sólarhringinn og lyf gefin á matmálstíma, nema brýn nauðsyn kalli á annað, svo sem frásogshraði og milliverkanir

c)   Lögum og reglum ber að fylgja og hlíta sem gilda um starfsemi dvalar- og hjúkrunarheimila

d)  Lyfjanefnd heimilisins fylgist með lyfjakostnaði og upplýsir fagfólk

 

Nothæfi

Stefna þessi tekur til þess starfsfólks sem hefur á einhvern hátt með lyfjameðferð á dvalar- og hjúkrunarheimilum að gera.  Starfsfólk og samningsbundnir viðskiptavinir heimilisins bera ábyrgð á framkvæmd þessarar stefnu.  Þessir aðilar njóta stuðnings framkvæmdastjórnar viðkomandi dvalar- og hjúkrunarheimilis sem hefur samþykkt þessa stefnu.

 

Takmark

Að lyfjameðferð heimilisfólks dvalar- og hjúkrunarheimila sé byggð á gagnreyndum upplýsingum.   Það er jafnframt takmark að tryggja eftir föngum gæði og öryggi lyfja og lyfjaþjónustu, standa að fræðslu um lyfjanotkun, stuðla að skynsamlegri notkun lyfja og halda lyfjakostnaði í lágmarki í samræmi við lyfjalög.

 

Fylgja skal og hlíta lögum og reglugerðum, m.a. eftirtöldum:

Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga 2000 nr. 77 23. maí

Lög um málefni aldraðra 1999 nr. 125 31. desember

Lög um réttindi sjúklinga 1997 nr. 74 28. maí

Læknalög nr. 53 1988

Lyfjalög nr.93 20 1994 með breytingum 2004

Hjúkrunarlög nr.8 1974

Reglugerð nr. 850/2002 um skömmtun lyfja í lyfjaöskjur

Reglugerð nr. 241/2004 um val, geymslu og meðferð lyfja í sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum

Sóttvarnarlög nr. 19/1997 ásamt síðari breytingum

Reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma ásamt síðari breytingum

 

Lyfjanefnd

Lyfjanefnd skal skipuð af framkvæmdastjórn viðkomandi heimilis og vera þverfagleg.  Læknir, hjúkrunarfræðingur og lyfjafræðingur sem búa yfir góðri faglegri þekkingu, með tiltrú á hugmyndafræði og ávinningi lyfjastefnu ásamt úrræðum til ákvarðanatöku skulu skipa nefndina.

 

Endurskoðun

Þessi stefna er undir ábyrgðarsviði framkvæmdastjórnar viðkomandi dvalar- og hjúkrunarheimilis. Hún er endurskoðuð árlega og oftar ef þörf krefur til þess að tryggja að hún samrýmist markmiðum með starfsemi og rekstri dvalar- og hjúkrunarheimila.

 

 

 

Reykjavík, 30.09.2005  

 

Lyfjanefnd dvalar- og hjúkrunarheimila innan Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.

Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri Sóltúns, hjúkrunarheimili

Andri Jónasson lyfjafræðingur Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

Hallgrímur Magnússon læknir Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili

Jón Eyjólfur Jónsson læknir Skógarbæ, hjúkrunarheimili

Soffía Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur Sóltúni, hjúkrunarheimili

 

 

 

© Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu 2005

       Dvalar- og hjúkrunarheimili

      

 

 

 

Lyfjanefnd hjúkrunarheimilisins Sóltúns skipa læknar, hjúkrunarfræðingar og lyfjafræðingur heimilisins.

 

Reykjavík, 20.10.2005        

Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri Sóltúns  

 

 

 

Ítarefni:

 

Landlæknisembættið - Lyf og lyfjaeftirlit

 

Á síðunni hér að neðan er að finna mikið af heimildum um óviðeigandi lyfjameðferð hjá öldruðum ("inappropriate drug therapy"). http://www.ascp.com/
public
/

Þetta er unnið af ASCP sem eru
samtök um 7000 Bandarískra lyfjafræðinga.

http://www.ascp.com/

Samtökin eru studd af lyfja- fyrirtækinu Bayer án þess að það hafi nokkuð með útgáfu eða fræðslustarf þeirra að gera.
[The American Society of
Consultant Pharmacists is
the national professional
association representing
nearly 7,000 pharmacists
who provide pharmaceutical
care services for America’s
senior citizens.]

Þeir sem hafa áhuga á enn
frekari upplýsingum er bent
á útgáfu WHO/EURO á "Drugs for the Elderly" sem var endurskoðuð 1997.
Hægt að panta hjá

http://www.who.dk/ch/pha