Á þorrablóti íbúa í Sóltúni 5. febrúar síðastliðinn veitti Öldrunarráð Íslands og hjúkrunarheimilið Sóltún vinum Sóltúns í Gerðubergi viðurkenningu fyrir sjálfboðin störf. Hálfi ári fyrir opnun Sóltúns hófu eldri borgarar í Gerðubergi undirbúning að því hvernig þeir gætu stutt við starfið í Sóltúni. Hugmyndin var m.a. sótt til ráðstefnu sem haldin hafði verið af vinnuhópi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um ímynd þess að starfa  með öldruðum.

 

Text Box:  Frá opnun heimilisins hafa vinirnir veitt íbúum félagskap og stuðning þegar hátíðir eru, s.s. guðþjónustur, þorrablót, vorgleði, tónlistarviðburðir o.s.frv.

Liðsauki þeirra er ómetanlegur fyrir þá sem ekki hafa aðstandendur til að gleðjast með, og þurfa styrka hönd til að halda í og njóta með það sem í boði er hverju sinni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarforstjóri, sjálfboðaliðarnir Steinunn Auðunsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir, og Guðrún Karlsdóttir ásamt Guðrúnu Jónsdóttur forstöðumanni  Félagsstarfs eldri borgara í Gerðubergi.