|
Fréttir
7.1.2012
Íbúa og vinaráðið heiðrað á 10 ára afmælinu
Stjórn Sóltúns bauð íbúum og starfsfólki til móttöku í Sóltúni laugardaginn 7.janúar. Með þeim samglöddust gestir frá Velferðarráðuneyti, Landlæknisembætti,Landspítala og frá öðrum hjúkrunarheimilum. Til móttökunnar mættu
Öll fréttin
3.1.2012
Sóltún fagnar 10 ára starfsafmæli þann 7. janúar
Laugardaginn 7. janúar fagnar hjúkrunarheimilið 10 ára starfsafmæli sínu en fyrsti íbúinn flutti inn á heimilið þann dag árið 2002.Starfið hefur verið farsælt og hefur þjónustan við íbúana verið í öndvegi, ásamt því að gera heimilið að aðlaðandi starfsvettvangi. Allt uppbyggingarstarf hefur miðað að vellíðan íbúa, þróun hjúkrunar og annarrar þjónustu og fjölmörg nýsköpunarverkefni hafa verið unnin, sem litið hefur verið til. Sóltún þakkar árangur sinn frábæru starfsfólki sínu og sterkum stoðum.
Öll fréttin
24.12.2011
Gleðilega hátíð
Íbúar, starfsmenn og stjórn Sóltúns óska landsmönnun gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Öll fréttin
24.12.2011
Vel sótt jólaguðþjónusta
Um 70 manns, íbúar Sóltúns, ættingjar þeirra og starfsfólk sóttu jólaguðþjónustu í samkomusalnum á aðfangadag,fleiri fylgdust með stundinni sem var sjónvarpað innanhúss. Sóknarpresturinn okkar séra Bjarni Karlsson predikaði og leiddi guðþjónustuna ásamt Jóni Jóhannssyni djákna.Edda Anika Einarsdóttir las jólaguðspjallið og Örn Arnason söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Öll fréttin
6.12.2011
Nýtt fréttabréf með aðventudagskránni
Komið er út 5.tölublað af Fréttabréfi Sóltúns 2011. Það hefur meðal annars að geyma dagskrána á aðventunni í Sóltúni.Fréttabréfið
Öll fréttin
30.10.2011
Vel heppnuð árshátíð hjá STÖLD
Starfsfólk og makar þeirra skemmtu sér vel á árshátíð starfsmannafélagsins sem haldin var á Hótel Natura þann 29.október síðastliðinn. Glæsilegur kvöldverður var framreiddur af starfsfólki hótelsins og umgjörð öll hin besta.Veislustjórinn Stefán Helgi Stefánsson söngvari fór á kostum ásamt þeim Ólafi B. Ólafsyni og Ingibjörgu Aldísi Ólafsdóttur sópran. Einnig var boðið upp á heimatilbúið skemmtiatriði. Helgi Már Hannesson sá um að velja danstónlist af mikilli snilld.Happadrættisvinningarnir slógu í gegn. Starfsfólk á 2.hæð Sóltúns sá um alla skipulagningu og framkvæmd með miklum sóma.
Öll fréttin
20.10.2011
Öflugt starf hjá starfsmannafélaginu
Þann 19.október fjölmenntu starfsmenn og börn þeirra alls 59 manns á barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz sem er einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma. Mikil ánægja var með sýnguna.Galdrakarlinn í OZ er sígilt ævintýri um Dóróteu sem leggur upp í langferð til Gimsteinaborgarinnar handan regnbogans. Ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz er í tölu frægustu og útbreiddustu barnabóka heims.
Öll fréttin
14.10.2011
Haustfagnaðurinn vel heppnaður
Glæsilegur haustfagnaður var haldinn í tilefni að íslenskum dögum 13. október í Sóltúni. Íbúar buðu ættingjum sínum í hátíðakvöldverð og voru um 220 manns í mat. Á eftir var skemmtun í Gyllta salnum þar sem Ingibjörg Ólafsdóttir og Stefán Helgi Stefánsson sungu sig inn í hjörtu fólksins við undirleik Ólafs B. Ólafssonar.Myndir frá haustfangaði
Öll fréttin
13.10.2011
Svipmyndir frá íslenskum dögum
Íslenskir þemadagar hafa verið mjög vel heppnaðir. Starfsfólk, íbúar og ættingjar þeirra hafa lagst á eitt við að skreyta húsið í sögulegum anda. Endurminingar hafa streymt fram í hugann og sögur sagðar. Viðburðir hafa heppnast vel eins og myndirnar bera með sér.Svipmyndir frá íslenskum dögum
Öll fréttin
7.10.2011
Íslenskir þemadagar 10-14. október
Þemavikur eru vinsælar í Sóltúni. Þær létta lund og eru hin besta skemmtun fyrir íbúa, ættingja þeirra og starfsfólk. Í vor voru tékkneskir dagar, franskir dagar voru í október 2010 og fjölmenningarvika og gleði og hamingjuvika voru 2009. Árið 2008 voru írskir dagar og norsk þemavika var 2007. Færeyskir dagar og breskir dagar voru 2006, danskir dagar 2005 og amerískir árið2004. Nú verður landið okkar Ísland í aðalhlutverki.Þegar þemadagar eru þá er matseðill skipulagður í samræmi við þemað og húsið skreytt. Haldnir eru lista– og menningarviðburðir og veislur.Sjá dagskrána í nýjasta fréttabréfinu4.tölublað 2011
Öll fréttin
28.9.2011
Ný kartöfluuppskera í Sóltúni
Í kvöld verður boðið uppá nýuppteknar Sóltúnskartöflur – seinni uppskeran var tekin upp í morgun, jafnframt voru nýjar gulrætur úr garðinum sendar á öll sambýli fyrr í dag.
Öll fréttin
26.9.2011
Sóltún skorar **** í tékknesku gæðamati
Stjórnendahópur frá Sóltúni fékk niðurstöður tékknesks gæðamats á starfsemi heimilisins á fundi í Tékklandi 20/9 2011. Sóltún náði 886 stigum af 900 sem hefði gefið 5 stjörnur og er hæsta stigagjöf sem hægt er að ná. Í hjúkrunarþættinum skoraði hjúkrunarheimilið 5 stjörnur, en lítilsháttar breytingar þarf til að ná fimmtu stjörnunni í þremur þáttum varðandi húsnæði, samskipti og fæði. Á myndinni er Petr Krcál ráðherra velferðamála í Vysocina Region, Anna Birna Jensdóttir, Hildur Þráinsdóttir, Marta Jónsdóttir, Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir og Guðrún Björg Guðmundsdóttir frá Sóltúni, Hrönn Ljótsdóttir frá Hrafnistu Boðaþingi og starfsmaður ráðuneytisins. -Hópmynd
Öll fréttin
7.9.2011
Dagskrá símenntunar haustið 2011
Fræðslunefnd hefur gefið út dagskrá símenntunar fyrir haustið 2011.Október verður þemamánuður um lyfjastefnu og lyfjanotkun. Gæðamálum verður gerð skil sem og ýmsum meðferðum. Fjallað verður um sorg og sorgarferli. Sérstakur fræðsludagur starfsmanna um húmor og gleðina í lífinu verður síðan 3. nóvember og í byrjun aðventu verður fjallað um jólin sem tengslahátíð.Fræðslufundirnir eru á fimmtudögum kl. 13:30 í fræðslusal. Starfsfólk, íbúar Sóltúns og ættingjar þeirra eru hvattir til að nýta sér fræðsluna.Dagskrá símenntunar
Öll fréttin
23.8.2011
Málverkagjöf í minningu Jónasínu Jónsdóttur
Jónasína Jónsdóttir eiginkona Geirs Þórðarson sem búsett var í Sóltúni síðustu ár ævi sinnar hefði orðið 85 ára 23.ágúst 2011. Af því tilefni færði Geir og synir hans Sóltúni 16 málverk í þakklætisskyni fyrir afar góða umönnun.Sóltún færir þeim kærar þakkir fyrir hlýjan hug til starfseminnar og munu málverkin prýða veggi heimilisins til ánægju fyrir íbúa, ættingja þeirra og starfsfólk.Mynd frá afhendingunni
Öll fréttin
17.8.2011
Sóltún og Samtök tékkneskra hjúkrunarheimila
Samtök tékkneskra hjúkrunarheimila hafa mikinn áhuga á innleiðslu RAI mælitækisins og sótti í annað sinn á tveimur árum vinnusmiðju hjá Sóltúni um innleiðslu RAI mælitækisins og hvernig Sóltún notar mælitækið í gæðaumbótastarfi.Jafnframt fór fram gæðaúttekt á starfsemi Sóltúns, Hrafnistu Boðaþingi og Skógarbæ þar sem notast var við mælitæki sem hannað hefur verið í Tékklandi um ,,Kröfur og viðmið til hjúkrunarheimila”. Samvinnuverkefni Sóltúns og tékkanna er styrkt af norska sjóðnum "eea grants".Mynd af hópnum
Öll fréttin
11.8.2011
Gæði á hjúkrunarheimilum
Notast er við skilgreinda gæðavísa til að meta árangur hjúkrunar á hjúkrunarheimilum. Gæðavísar gefa starfsfólki og stjórnendum vísbendingar um það sem vel er gert og það sem betur má fara. Í Sóltúni er vakað yfir niðurstöðum gæðavísa og fjölmörg gæðateymi eru að störfum. Má þar nefna; byltuteymi, næringarteymi, sárateymi, þunglyndisteymi, teymi til varnar hvers kyns höftum, líknarteymi, verkjateymi og þvaglekateymi. Jafnframt eru starfandi sýkingavarnanefnd,fræðslunefnd, einkavarnanefnd, umhverfisnefnd o.s.frv. Landlæknisembættið á samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu að hafa eftirlit
Öll fréttin
9.8.2011
Vel heppnað fjölskyldugolfmót hjá STÖLD
Árlegt golfmót starfsmannafélagsins STALDAR var haldið á golfvelli Öndverðarness þann 9.ágúst síðastliðinn í blíðskapar veðri.Mótsfyrirkomulagið var punktakeppni með forgjöf.Í ár voru alls 12 manns sem spiluðu um starfsmannabikarinn, gullsleginn farandbikar og önnur vegleg verðlaun.Hörð keppni var einsog endranær en í 1.sæti var Þórir Kjartanson,í 2.sæti og þarmeð í 1.sæti um keppni um farandbikarinn (sem starfsmenn keppa um) var Stefán Birnir Stefánsson, í 3.sæti var Guðmundur Aldan Grétarsson.Nándarverðlaun voru veitt fyrir högg næst holu á par 3 brautum og voru þau Guðrún Björg Guðmundsdóttir, Guðný Jónsdóttir og Þórir Kjartanson næst holu.
Öll fréttin
14.7.2011
Söngskemmtun
Þann 14.júlí heimsóttu okkur þeir Böðvar Magnússon hljóðfæraleikari og Guðmundur Ólafsson söngvari. Eru þeim færðar kærar þakkir fyrir söng og undirleik.
Öll fréttin
6.7.2011
Grillveisla í góða veðrinu
Í hádeginu í dag bauð eldhúsið uppá grillveislu í fallega Sóltúnsgarðinum. Íbúar og starfsfólk og gestir snæddu úti í garði og á svölum sunnan megin. Á matseðlinum voru grillaðar lambalærissneiðar með bökuðum kartöflum, kryddsmjöri, hrásalati og Bernaisesósu. Í eftirrétt var boðið uppá ís og kaffi.Fólk naut svo sannarlega dagsins saman.
Öll fréttin
1.7.2011
Sóltúnsbíllin mikið notaður
Íbúar og starfsfólk Sóltúns hefur verið iðið við að skreppa í stuttar ökuferðir í sumar. Vinsælt hefur verið að aka út í Gróttu og niður á höfn. Þá hefur verið farið í heimsókn í nýja tónlistarhúsið Hörpu.
Öll fréttin
30.6.2011
Vel heppnuð sumarferð starfsmannafélagsins
Í lok júní stóð starfsmannafélagið STÖLD fyrir fjölskylduhelgarferð á Þingvöll.Farið var í göngur, leiki og notið útvistar saman. Um 40 manns tóku þátt og bauð
Öll fréttin
22.6.2011
Grillveisla í góða veðrinu
Í hádeginu var slegið upp grillveislu í fallega Sóltúnsgarðinum okkar. Eldhúsið töfraði fram grillpulsur, kartöflusalat og meðlæti sem smakkaðist afar vel þar sem íbúar, starfsfólk og ættingjar sem komu við næddu saman úti í sumarblíðunni. Ólafur B. ólafsson var mættur með harmonikkuna og söng fólk saman vinsæl lög. Frábært að fá loksins sumarið.
Öll fréttin
15.6.2011
Píanó gefið í Sóltún
Dætur Ingibjargar Jónasdóttur færðu Sóltúni píanó að gjöf til minningar um móður sína.Píanóið er staðsett í setustofunni á 3. hæð C. Sóltún færir þeim kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf.
Öll fréttin
1.6.2011
Stefán Helgi syngur reglulega í Sóltúni
Stefán Helgi Stefánsson söngvari hefur komið í
Öll fréttin
27.5.2011
Hressandi kvennahlaup
Í dag tóku íbúar og starfsfólk Sóltúns þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ. Um 60 konur, íbúar og starfsfólk gengu hring í fallega garðinum okkar og lét ekki smá úrkomu skemma fyrir sér. Þegar komið var í mark fengu þátttakendur verðlaunapening en auk þess gaf Ölgerðin Egils kristal og ÍSÍ Nivea kremprufur. Almenn ánægja var með framtakið.
Öll fréttin
25.5.2011
Kvennahlaup ÍSÍ í Sóltúni 27. maí kl. 11
Að venju taka konur í Sóltúni þátt í kvennahlaupi ÍSÍ. Hlaupið verður föstudaginn 27. maí kl. 11. Íbúar, starfsfólk og ættingjar eru hvattir til að taka þátt. Skráning er í Sjúkraþjálfun Sóltúns.myndir
Öll fréttin
24.5.2011
Guðrún Straumfjörð fagnar 100 ára afmæli sínu
Guðrún Straumfjörð er 100 ára í dag.Foreldrar hennar voru Jón Straumfjörð Jónasson frá Straumfirði á Mýrum og Ragnheiður Valby Jónsdóttir. Ævistörf Guðrúnar voru ýmis skrifstofu- og verslunarstörf, lengst af starfaði hún sem gjaldkeri hjá Skipaútgerð ríkisins.Eiginmaður hennar var Ólafur Þórðarson og sonur þeirra er Jón Þ.Ólafsson. Guðrún hefur búið í Sóltúni síðan 2005.Starfsfólk og íbúar í Sóltúni óska Guðrúnu innilega til hamingju með daginn.
Öll fréttin
24.5.2011
Slæm hjúkrun á ónefndu hjúkrunarheimili skv RÚV
Sóltún tengist ekki máli um slæma hjúkrun heilabilaðs manns sem býr á ónefndu hjúkrunarheimili í Reykjavík og fjallað hefur verið um í helstu fjölmiðlum undanfarna daga.
Öll fréttin
7.5.2011
Vinna með gæðavísa
Á fundi Landlæknisembættisins og Samtaka fyrirtækja í heilbigðisþjónustu sem haldin var á Grund föstudaginn 6.maí flutti Guðrún Björg Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri í Sóltúni erindi um hvernig starfsfólk vinnur í gæðateymum að bættu gæðum hjúkrunar Erindið
Öll fréttin
2.5.2011
Heilsueflingarmánuður fór skemmtilega af stað
Maí mánuður er árlegur heilsueflingarmánuður starfsfólksins í Sóltúni.Glæsileg dagskrá er í boði þar sem hugað er að andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu. Sóltún tekur þátt í Hjólað í vinnuna, og svo skemmtilega vildi til að liðið Gulræturnar frá Hjúkrunarheimilinu Sóltúni var dregið út í skráningarleik Rásar 2 og ÍSÍ. Í verðlaun fengu allir 9 meðlimir liðsins viðgerðasett, dekkjaþræl og vatnsbrúsa.
Öll fréttin
20.4.2011
Gleðilega páska
Íbúar og starfsfólk nutu þess í dag að sjá glæsilegu danspörin þau Alexander Björnsson og Ásdísi Sólveigu Jónsdóttir,Arndísi Ármann Halldórsdóttir og Björn Ármann Halldórson frá Dansfélaginu Hvönn dansa samkvæmisdansa í samkomusalnum.Kærar þakkir fyrir góða heimsókn.Á föstudaginn langa verður guðþjónusta í Sóltúni kl.14.Gleðilega páska.
Öll fréttin
18.4.2011
Fólk með sýkingar takmarki heimsóknir í Sóltún
Sýkingavarnarnefnd Sóltúns hvetur fólk með einkenni loftvega- eða iðrasýkinga til að takmarka heimsóknir í Sóltún þar til veikindi eru yfirstaðin. Ýmsar sýkingar eru í gangi í samfélaginu m.a. í loftvegum og Noroveirusýking og geta þessar sýkingar verið alvarlegar fyrir íbúa hjúkrunarheimila sem búa við langvinna sjúkdóma.
Öll fréttin
22.3.2011
Dagskráin fyrir tékknesku þemadagana
Í 1.tölublaðinu af Fréttabréfi Sóltúns 2011 er dagskráin fyrir tékknesku þemadaganaSjá glæsilegu dagskrána hér
Öll fréttin
18.3.2011
Lyfjaneysla íslendinga
Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarforstjóri Sóltúns fjallaði um lyfjaneyslu íslendinga í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.Greinin
Öll fréttin
17.3.2011
Tékkneskir dagar 23. -25. mars í Sóltúni
Á tékkneskum dögum verður dagskrá tileinkuð Tékkneska lýðveldinu. Sagt verður frá áhugaverðri námsferð starfsfólks Sóltúns síðastliðið haust, landi, þjóð og heilbrigðisþjónustu. Sýndar verða frægar kvikmyndir og tónlistarmyndbönd og góðir gestir koma í heimsókn og segja frá landinu. Opnað verður tékkneskt Café og matseðilinn verður tileinkaður þeirra vinsælustu réttum. Hápunkturinn verður síðan vorgleði með kvöldverðaveislu og tónlistarflutningi eftir þeirra þekktustu tónlistarmenn.
Öll fréttin
28.2.2011
Góð þátttaka meðal starfsmanna í Lífshlaupi ÍSÍ
Starfsmenn Sóltúns tóku þátt í lífshlaupi ÍSÍ annað árið í röð. Starfsmenn eru 205 og keppti heimilið því í flokki fyrirtækja með 150- 399 starfsmenn.Segja má að Sóltún hafi verið hástökkvari ársins, slík var aukning í þátttöku innan heimilisins og árangurinn á landsvísu.Í fyrra voru tvö lið skráð með innan við 20 þátttakendur. Í ár voru 10 lið skráð með alls 89 þátttakendum. Sóltún hafnaði í 5. sæti í ár varðandi daga með alls 1274 daga sem gerir hlutfall upp á 6,21 dag pr mann og 82042 mínútur sem gerir hlutfall upp á 400,2 mínútur pr. mann. Alls bætti Sóltún sig um 10 sæti.
Öll fréttin
23.2.2011
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söng í Sóltúni
Hvað er fegurra en þegar sumar tekur við af vori og allt er að springa út. Maður lygnir aftur augum og dreymir að maður svífi um loftin blá, liggur í fallegum grasbala eða situr í góðum sófa innan um sína bestu vini að njóta nærveru og fegurstu tónlistar.Þar vill maður dvelja lengur.Þannig stund gáfu þær Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, sópran og Hrefna Eggertsdóttir píanóleikari okkur hér í Sóltúni.Efnisskráin var fjölbreytt bæði innlend sem erlend verk og flutningur þeirra Þórgunnar Önnu og Hrefnu heillandi. Rödd hinnar ungu söngkonu sem senn lýkur burtfararprófi í söng er einstkaklega tær og falleg. Hér er á ferðinni einn af vonarneistum íslenskrar tónlistar.Við þökkum þeim Þórgunnu Önnu og Hrefnu af heilum hug fyrir gefandi stund og hinni ungu söngkonu óskum við alls hins besta.
Öll fréttin
22.2.2011
Sigrún Hjálmtýsdóttir söng fyrir íbúa Sóltúns
Þeir voru sem vorboðinn ljúfi söngtónleikar Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, sópran og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur, píanóleikara. Á sinn einstaka hátt fluttu þessir reyndu og einir af okkar fremstu tónlistarmönnum landsins fjölbreytta efnisskrá, bæði með innlendum og erlendum verkum, við mikla hrifningu áheyrenda.Þeim Sigrúnu og Önnu Guðnýju eru færðar alúðar þakkir fyrir ljúfa stund og fallegan tónlistarflutning.Vorið,tími vonar og vaxtar hljómaði svo sannalega í hjörtum okkar er fengum að njóta góðrar heimsóknar og samveru.
Öll fréttin
28.1.2011
Íbúar Sóltúns skemmtu sér vel á þorrablótinu
Þorrablót Sóltúns tókst með ágætum undir stjórn þorrablótsstjóranna Júlíönu Sigurveigu Guðjónsdóttur og Jóns Jóhannssonar. Íbúar buðu með sér ættingum sínum til þorrablótsins og voru yfir 180 manns í kvöldmat.Á samkomu í sal eftir matinn spilaði ólafur B. ólafsson á harmonikku, farið var með minni kvenna og karla, og Ingibjörg Ólafsdóttir sópransöngkona söng.
Öll fréttin
16.1.2011
Fólk með umgangspestir takmarki heimsóknir
Sýkingavarnarnefnd Sóltúns hvetur fólk með einkenni loftvega- eða iðrasýkinga til að takmarka heimsóknir í Sóltún þar til veikindi eru yfirstaðin. Ýmsar sýkingar eru í gangi í samfélaginu m.a. inflúensa, svínainflúensa og Noroveirusýking og geta þessar sýkingar verið alvarlegar fyrir íbúa hjúkrunarheimila sem búa við langvinna sjúkdóma.
Öll fréttin
10.1.2011
Dagskrá símenntunar veturinn 2011 komin út
Fræðslunefnd hefur gefið út fræðsludagskrána fram á vor. Fræðslan er á miðvikudögum kl. 13:30 og er opin starfsfólki, íbúum og ættingjum þeirra.Fræðsludagskrá
Öll fréttin
7.1.2011
Sóltún fagnar 9 ára afmæli
9 ár eru liðin síðan fyrsti íbúinn flutti á hjúkrunarheimilið. Starfsemin hefur verið farsæl og eftirspurn ávallt mun meiri en hægt hefur verið að mæta. Í búar koma fyrst og fremst frá Landspítalanum. Mikil festa hefur verið í starfsmannamálum sem hefur verið lykilatriði í árangri starfsins.Traustur mannauður og haldgóð fagþekking hefur stuðlað að auknum lífsgæðum íbúanna og getu til að takast á við þau fjölþættu og oft á tíðum flóknu heilsu- og félagslegu úrlausnarefni sem upp koma á hverjum tíma.Til hamingju með daginn.
Öll fréttin
22.12.2010
Gleðileg jól
Íbúar, starfsmenn og stjórn Sóltúns óska landsmönnun gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.Jólaguðþjónusta er í Sóltúni kl.14 á aðfangadag, séra Bjarni Karlsson sóknarprestur predikar og leiðir stundina ásamt Jóni Jóhannssyni djákna. Kristín Erna Blöndal og Örn Arnason syngja við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Öll fréttin
14.12.2010
Strengjasveit Sinfóníuhljómsveitarinnar
Tólf tónlistamenn úr Strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands léku í morgun tónlist tengda jólum fyrir fullum sal í Sóltúni. Þökkum frábæra heimsókn.
Öll fréttin
12.12.2010
Jólahlaðborðin á aðventunni
Boðið var uppá þrjú jólahlaðborð á aðventunnni. Það fyrsta var haldið 30. nóvember fyrir íbúa á 2.hæð, þar næst þann 2. desember fyrir íbúa á 1. hæð og að síðustu þann 7. desember fyrir íbúa á 3. hæð. Íbúarnir 92 buðu með sér samtals 86 ættingjum og vinum. Jón Jóhannsson djákni flutti hugvekju og jólalög voru sungin. Starfsmenn, ættingjar og sjálfboðaliðar lögðu hönd á plóg og buðu fram tónlistaratriði. Sóltúnseldhúsið bauð uppá glæsilegan jólahlaðborðsmatseðil.Matseðill og myndir
Öll fréttin
7.12.2010
EKKÓ-kórinn
EKKÓ-kórinn sem er kór Félags kennara á eftirlaunum heimsótti Sóltún og söng fyrir íbúa og starfsfólk undir stjórn Jóns Bjarnasonar. Ólöf Pétursdóttir íbúi í Sóltúni og fyrrum kórfélagi tók lagið með sínum gömlu félögum.Hjartans þakkir fyrir góða heimsókn.sjá mynd
Öll fréttin
17.11.2010
Kosning til stjórnlagaþings 18.nóv. kl. 13-16
Sýslumaðurinn í Reykjavík auglýsir kosningu utan kjörfundar til stjórnlagaþings sem fer fram hér á stofnuninni fimmtudaginn 18. nóvember nk. kl. 13-16 og er ætluð vistmönnum/sjúklingum.Heimilt er að hafa útfylltan hjálparkjörseðil með sér á kjörstað til að auðvelda kjósendum kosninguna og er æskilegt að vistmenn/sjúklingar hafi slíkan seðil með sér.
Öll fréttin
24.10.2010
Geir Ólafsson og félagar skemmtu íbúum Sóltúns
Geir ólafsson söngvari bauð íbúum og starfsfólki í Sóltúni á tónleika í samkomusalnum sunnudaginn 24. október. Hann mætti með tónlistarmennina Jón Páll Bjarnason, Guðmundur Steingrímsson og Gunnar Hrafnsson í salinn. Úr varð hin besta skemmtun þar sem íbúar tóku virkan þátt í söngnum sem Geir og félagar hrifu þá með sér í með skemmtilegri og heillandi framkomu sinni. Kærar þakkir fyrir frábært boð.
Öll fréttin
13.10.2010
Stelpan frá Stokkseyri heimsótti Sóltún
Í samverustundum íbúa á 1. hæð eru áhugaverðar bækur lesnar. Nú líður senn að lokum þeirrar bókar sem átt hefur hug okkar og hjarta undanfarnar vikur. Enda ekki undarlegt, því bókin “Stelpan frá Stokkeyri – saga Margrétar Frímannsdóttur” er heillandi bók og vel skrifuð. Á notalegan hátt fær lesandinn að fara með í ferðalag. Ferðalagið er lífshlaupið sjálft frá barnæsku til fullorðinsára, gleði þess og sorgir, sigrar sem ósigrar. Á afar einlægan hátt og af virðingu við sig, fjölskyldu sína og umhverfi sitt nær og fjær segir Margrét Frímannsdóttir lífssögu sína. Þar birtist kona sem býr yfir miklum styrk og ríkri réttlætiskennd.Það var gæðastund að fá Margréti Frímannsdóttur í heimsókn í samverustund síðastliðin mánudag hingað í Sóltún og eiga samtal við hana, njóta nærveru hennar og finna áhugann og kraftinn sem brennur í hjarta hennar sem aldrei fyrr.
Öll fréttin
8.10.2010
Frönsk þemavika verður 13. til 15. október
Á hverju ári hafa verið haldnar þemavikur sem ávallt hafa reynst hin besta skemmtun. Í fyrra var fjölmenningarvika í september og gleði og hamingjuvika í maí. Árið 2008 voru ,,Írskir dagar” í maí, og ,,Norskir dagar” voru í sama mánuði árið 2007. Færeyskir dagar voru í september 2006 og ,,Breskir dagar” í mars sama ár. Árið 2005 voru ,,Danskir dagar” í nóvember og ,,Amerískir dagar” í apríl 2004.Nú verða,,Franskir dagar"Dagskráin
Öll fréttin
5.10.2010
Sláturgerð í Sóltúni
Síðastliðinn mánudag 4.október hittist iðinn hópur íbúa og starfsmanna á iðjuþjálfunarsal og vann að sláturgerð, fylltu vambir að góðgæti og saumuðu fyrir. Starfsfólk eldhúss hafði áður útbúið innvolsið sem að miklu leyti samanstóð af innmat og blóði og heyrðust ýmsar hugmyndir um hvernig best væri að blanda það; þykkt/þunnt, blandað rúsínum eða jafnvel með viskídreitli. Slátur hefur verið tekið á hverju hausti frá árdögum Sóltúns. Sumir mæta galvaskir til leiks með uppbrettar ermar, aðrir biðjast undan og telja sig fullsadda af sláturverkum - ámóta og uppvaskinu!
Öll fréttin
4.10.2010
Kanelbullens dag
Í tilefni af Kanelbullens dag (sænsk hefð) 4.oktober kom Eva-Maria Baldursson, félagsliði, með kanelsnúða sem hún hafði búið til og bakaði þá hér fyrir íbúa og starfsfólk á 2. hæð þar sem hún starfar. Ilmandi bökunarlyktin lagði um húsakynni og bragðgóðir volgir snúðar runnu létt niður.
Öll fréttin
23.9.2010
Uppskerudagur
Í okkar fallega garði hefur gróðurinn sprottið sem aldrei fyrr og í dag 23.september ætlum við að taka upp kartöflur og gulrætur, lokahnykkurinn þetta sumarið. Garðurinn hefur verið gjöfull; auk ofannefndra tegunda höfum við uppskorið gullfallegar og bragðgóðar rófur, eigum nokkurt magn af niðurskornum rabbarbara í frysti sem nýtist í sultugerðina, fengið spínat og fleiri káltegundir og ýmsar kryddjurtir sem enn gefa af sér. Rifsberjarunnarnir virðast vera ná sér á strik eftir 2 erfið ár, gáfu nægilegt magn af berjum til að leggja í 1 flösku af jólasnafs.... og blessað eplatréð með sín epli: í dag útdeilum við 6 stórum heimaræktuðum eplum á sambýlin :-) smá biti handa hverjum íbúa.
Öll fréttin
20.9.2010
Sýkingavarnarvika 2010 hefst í dag
Hefst í dag með fyrirlestri í sal kl 13:30. Efni dagsins verður “þrif á súrefnisvélum og sogtækjum”.Möppur með ýmsum fróðleik verða kynntar og fær hver vakt eina slíka.
Öll fréttin
15.9.2010
Fræðsludagur starfsmanna vel heppnaður
Fræðsludagur starfsmanna fór fram miðvikudaginn 15. september 2010. Anna Jóna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í jákvæðri sálfræði, fjallaði um hvernig jákvæður vinnustaður er byggður upp. Jákvæð sálfræði snýst um að finna það sem fólk gerir rétt en ekki rangt. Hún byggist á þeirri trú að fólk vilji: Lifa innihaldsríku lífi, rækta það besta í eigin fari og bæta eigin upplifun af kærleika, vinnu og gleði. Einnig var fjallað um dyggðir og styrkleikar og hvernig einstaklingar geta fundið leiðir til að þekkja styrkleika sína.
Öll fréttin
30.8.2010
Dagskrá símenntunar komin út
Fræðslunefnd hefur gefið út dagskrá símenntunar fyrir haustið 2010. Fræðslunefndina skipa Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri, Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir sjúkraþjálfari og Jón Jóhannsson djákni..Dagskráin
Öll fréttin
12.8.2010
Anna Laufey Gunnlaugsdóttir 100 ára í dag
Anna Laufey Gunnlaugsdóttir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag með fjölskyldu og vinum hér í Sóltúni.Hún fæddist 12.ágúst 1910 að Ytri-Mástöðum í Svarfaðardal en bjó lengst af í miðbæ Reykjavíkur. Eiginmaður hennar var Kristján Elíasson frá Aratungu í Staðarsveit og eignuðust þau fjögur börn. Anna var mikil saumakona og kunststoppari. Starfsfólk og íbúar í Sóltúni senda Önnu árnaðaróskir í tilefni dagsins.
Öll fréttin
6.8.2010
Golfmót Sóltúns 2010 haldið í Gufudal 5. ágúst
Golfmót Sóltúns 2010 sem var fjölskyldumót var haldið í Golfklúbbi Hveragerðis 5.ágúst. Spilaðar voru 18. holur í 4 hollum og var tilhögun mótsins punktakeppni með tilliti til forgjafar hvers og eins. Vinningshafi var Þorsteinn Sigurðsson sem spilaði á 32 punktum. Fékk hann glæsilegan 3G farsíma frá Vodafone og gjafakörfu frá Ekrunni í verðlaun.Myndir af vinningshöfum
Öll fréttin
6.8.2010
Stórsöngvari gleður íbúa Sóltúns með tónleikum
Fimmtudaginn 5. ágúst hélt Jónas Guðmundsson, tenór við óperuna í Wiesbaden, tónleika fyrir íbúa, starfsmenn og aðstandendur í samkomusalnum. Jónas er af frægum tónlistarmönnum komin en hann er barnabarn Þuríðar Pálsdóttur söngkonu. Koma hans og söngur vakti mikla lukku. Meðal þess sem Jónas söng voru hinar ýmsu aríur, Hamraborgin og lag eftir afa sinn, Pál Ísólfsson.sjá mynd
Öll fréttin
21.7.2010
Grillveisla í sumarblíðu
Miðvikudaginn 21. júlí var haldin grillveisla í Sóltúni. Borð og stólar voru borin út og nutu íbúar og starfsmenn góða veðursins úti í garði og á svölum heimilisins. Boðið var upp á grillaðan kjúkling og ís í eftirrétt til að svala hitanum, enda dagurinn einn af hlýrri dögum sumarsins.myndir
Öll fréttin
24.6.2010
Páfagaukur heimsótti Sóltún
Miðvikudaginn 23. júní kom óvæntur gestur í heimsókn í Sóltún. Lítill grænn og gulur páfagaukur flaug inn og lenti á höfði starfsmanns. Vakti hann kátínu hjá starfsmönnum og íbúum og var komið fyrir í lánsbúri. Lýst var eftir eigendum fuglsins á hinum ýmsu útvarpsstöðum og sem leiddi til þess að þeir höfðu samband daginn eftir.
Öll fréttin
15.6.2010
Kvennahlaup ÍSÍ, Sjóvá og Sóltúns
Hress hópur íbúa,ættingjar þeirra og starfsfólk tók þátt í árlegu kvennahlaupi ÍSÍ, Sjóvá og Sóltúns í blíðskaparveðri. Formlega tóku þátt um 42 konur, við bættust síðan 30 þeim til aðstoðar og samfylgdar. Herrarnir tóku á móti hópnum og afhentu viðurkenningamedalíu, síðan var lagið tekið undir berum himni.myndir
Öll fréttin
13.6.2010
Norrænir næringarrekstrarfræðingar
Dagana 11. og 12. júní var árlegur stjórnarfundur norrænna félaga næringarrekstrarfræðinga haldinn á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Þátttakendur í norræna samstarfinu eru frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Íslandi. Þetta er í 3ja sinn sem fundurinn er haldinn hér á landi en hann er haldinn til skiptis í löndunum þó aðeins 7. hvert ár á Íslandi. Fundurinn í ár fjallaði um verkefni sem félögin hafa unnið að síðast liðið ár, auk þess sem komið var á framfæri ýmsum hugðarefnum þess lands sem heldur fundinn.Öll fréttin
Öll fréttin
11.6.2010
Tékkar í námsheimsókn á Íslandi
Í vikunni hafa þau Jirí Horecky, Petr Hladik, Miroslav Cermak, Martin Jezek, Renata Kainrathova, Martin Zarsky og Jirí Prochazka verið 2 daga á vinnufundum í Sóltúni þar sem fjallað var um skipulag öldrunarþjónustu og framtíðaruppbyggingu. Skipst var á upplýsingum, hugmyndum og aðferðum. Sérstaklega var fjallað um lagaumhverfi og regluverk, RAI aðferðafræðina, rafræna skráningu sjúkraskrár, þjónustu við heilabilaða, heimaþjónustu, hlutverk fjölskyldu í umönnun og umönnunarbætur.Skipulag hjúkrunarheimila og gæðaviðmið, kröfulýsingar, aðgengi og eftirlit voru jafnframt tekin fyrir.
Öll fréttin
3.6.2010
Danskir hjúkrunarfræðingar heimsækja Sóltún
Danskir hjúkrunarfræðingar sem voru á Íslandi í tilefni af 20. Norrænu ráðstefnunni í öldrunarfræðum heimsóttu Sóltún. Markmið heimsóknarinnar var að kynna sér nýjungar í þjónustu við eldri borgara, rafræna sjúkraskrá og hagnýtingu RAI mats til gæðaumbótastarfs.Fyrir hópnum fór Kiddy El Kohly hjúkrunarforstjóri sem unnið hefur með NORD-RAI hópnum.Síðan hélt hópurinn út á landsbyggðina og heimsóttu þær bæði Ás í Hveragerði og Skjólgarð á Höfn í Hornafirði.Hópurinn með Önnu Birnu
Öll fréttin
27.5.2010
Sumarblómin gróðursett og útigrillveisla
Íbúar og starfsfólk notuðu góða veðrið og gróðursettu sumarblóm í ker og grænmeti í matjurtagarðinn. Á eftir var slegið til grillveislu og hádegismaturinn snæddur úti í garði. Ólafur B. Ólafsson harmonikkuleikari mætti á staðinn og spilaði fyrir fólkið.myndir
Öll fréttin
1.5.2010
Heilsueflingarmánuður tileinkaður sjálfseflingu
Sjálfsefling – þín ábyrgð eru einkunnarorð Heilsueflingarmánaðar starfsfólksins í Sóltúni árið 2010. Öll eigum við dýrmætan auð að varðveita. Þessi auður ert þú, fjölskylda þín og vinnustaður. Það ber að hlúa að þessum auði, allt árið um kring. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra. Þess vegna er Sóltún starfsmannavænn vinnustaður með starfsmanna- og fjölskyldustefnu.Í maímánuði er hinn árlegi “Heilsumánuður Sóltúns” þá tökum við á sérstakan og sýnilegan hátt saman höndum um að gera þennan mánuð að sérstökum heilsueflingarmánuði. Við brjótum upp daglegt mynstur, reynum eitthvað nýtt, fræðumst og sækjum fram til nýrra dáða á vettvangi líkamlegrar og andlegrar heilsu.
Öll fréttin
23.4.2010
Nýtt fréttabréf komið út
Fréttabréfið fjallar um leiðbeiningar um viðbrögð vegna öskumisturs, sýkingarhættu og sérstaka varúð sem heimsóknargestir þurfa að hafa í huga ef þeir eru með sýkingu. Sagt er frá innra starfi og söfnun sjúkraþjálfunar fyrir þjálfunarhjóli.1.tbl.9.árgangur 2010
Öll fréttin
7.4.2010
Trén blómstra í gróðurskálanum
Bæði kirsuberjatréð og eplatréð eru í fullum blóma í garðskála Sóltúns. Í sól nær oft að verða yfir 20 gráðu hiti inni í skálanum sem er vinsæll staður að heimsækja meðal íbúa og starfsfólk.myndir
Öll fréttin
26.3.2010
Vel heppnuð góugleði
Góugleðin 26. mars var ákaflega vel heppnuð. Hún hófst með því að borðstofur og samkomusalur heimilisins voru skreyttar og fallega var lagt á borð og fólk klæddist sínu fínasta pússi. Kvöldverðaveisla íbúa og gesta þeirra hófst síðan klukkan 18. Á matseðlinum var steikt lambafille með púrtvínssósu, léttsteiktu grænmeti á salatbeði og kartöfluturni. Í eftirrétt var pekanpæ með þeyttum rjóma. Dúóið Trúton tróð upp í samkomusalnum eftir kvöldverðin og tók þekkt íslensk lög og bítlalög. Síðan komu Dísirnar hennar Guðmundu og sungu fyrir veislugesti.myndir
Öll fréttin
25.3.2010
Göngugarpar æfa fyrir sumarið
Hressir starfsmenn Sóltúns og þrír hundar þeirra fóru á Helgafell í Mosfellssveit miðvikudaginn 24. mars síðastliðinn í blíðskapar veðri.
Öll fréttin
18.3.2010
Dansskemmtun
Dansparið Ásdís Sólveig Jónsdóttir og Alexsander Björnsson úr dansfélaginu Hvönn í Kópavogi dönsuðu ballrom og latin dansa fyrir íbúa Sóltúns.Þau voru að stíga sín fyrstu skref í dansinum en þau byrjuðu að dansa saman í janúar síðastliðnum. Mikil ánægja var með dansatriðið þeirra og allir dáðust að fallegum dansbúningum og flottri frammistöðu. Alexsander er sonur Lilju í eldhúsinu og hefur verið heimagangur í mörg ár og glatt okkur með nærveru sinni.myndir
Öll fréttin
15.3.2010
Ánægjuleg helgistund í Sóltúni
Það má segja að það verið vinafundur, þegar félagar í kór Vogaskóla komu í heimsókn með kennar sínum Ágústu Jónsdóttur, sl föstudag. Slík var eftirvæntingin og hún var gagnkvæm. Syngjandi gengu þau í hús og syngjandi kvöddu þau. En stærsta stundin var þó söngurinn í helgistundinni, sannkallaður englasöngur sem umvafði góða hugvekju Ingigerðar Önnu Konráðsdóttur djáknakandidats og fyrrum starfsþjálfunarnema í Sóltúni. Eldhúsið bauð upp á súkkulaðiköku sem var annáluð.
Öll fréttin
8.3.2010
Syngjandi feðgin í Sóltúni
Íbúar og starfsfólk Sóltúns fengu ánægjulega heimsókn s.l. föstudag frá Ólafi Beinteini Ólafssyni og dóttur hans, Ingibjörgu Aldísi. Feðginin tóku nokkur skemmtileg og vel valin lög og má þar m.a. annars nefna ,,Það er svo glatt á góðra vina fundi”, ,,Alparós” og ,,Í Birkilundi”. Hlustendur unu sér vel við ljúfu tónanna sem voru hvort tveggja við íslensk eða erlend lög og ýmist spiluð á harmonikku eða píanó. En hlustendur fengu ekki einungis að hlýða á söng. Ólafur hafði samið ljóð til íbúanna eftir síðustu sumarferð Sóltúns og las það upp við frábærar undirtektir. Orkuveita Reykjavíkur gerði söngskemmtunina mögulega og bíða nú allir spenntir eftir næstu heimsókn söngelsku feðginanna.mynd
Öll fréttin
16.2.2010
Karlakór í heimsókn
Karlakórinn gamli fóstbræður komu og sungu nokkur lög undir stjórn Árna Harðarsonar. Frábær heimsókn sem fólk kunni vel að meta. Kærar þakkir.kórinn
Öll fréttin
28.1.2010
Íbúar Sóltúns blótuðu þorra
Íbúar Sóltúns ásamt ættingjum sínum og starfsfólki komu saman á þorrablóti 28. janúar. Blótið hófst með borðhaldi þar sem dýrindis þorramatur frá SS var á borðum og að sjálfsögðu hákarl og brennivínssnaps. Haukur Sveinbjarnason tók á móti fólkinu í samkomusalnum með ljúfri tónlist, Jón Jóhannsson djákni flutti Minni kvenna og Guðrún Jónsdóttir Minni karla. Karlakórinn Kátir karlar mættu og heilluðu fólk með söngsyrpu undir stjórn Gylfa Gunnarssonar. Síðan tók Sigurður Guðmundsson gítarinn og stjórnaði fjöldasöng.Blótstjóri var Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir.
Öll fréttin
7.1.2010
Sóltún á 8 ára starfsafmæli í dag
Íbúar og starfsfólk fagna 8 ára starfsafmæli Sóltúns í dag. Starfið hefur verið farsælt, þökk sé öflugum, traustum og samhentum starfsmannahópi og þjónustusamningi sem setur hag íbúanna í öndvegi.
Öll fréttin
3.1.2010
Fræðslunefnd auglýsir dagskrá veturinn 2010
Fræðslunefnd Sóltún kynnir glæsilega símenntunardagskrá fyrir veturinn 2010. Fundirnir eru á miðvikudögum kl. 13:30 í fræðslusal Sóltúns.Þeim er jafnframt útvarpað um hjúkrunarheimilið. Fræðslufundirnir eru opnir starfsfólki, íbúum og ættingjum þeirra. Lykillin að árangri í þjónustu í Sóltúni byggir á þekkingu og reynslu starfsfólksins. Sóltún er því lærdómsfyrirtæki sem stöðugt leitast við að tryggja íbúum sínum bestu mögulega þjónustu byggða á gagnreyndum aðferðum og þekkingu sem studd er af rannsóknarniðurstöðum. Fræðslunefndina skipa J.Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri, Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir sjúkraþjálfari og Jón Jóhannsson djákni.Dagskráin
Öll fréttin
1.1.2010
Gleðilegt nýtt ár 2010
Sóltún óskar íbúum, ættingjum þeirra og starfsfólki sem og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári.Kveðja
Öll fréttin
24.12.2009
Gleðilega jólahátíð
Stjórn og starfsfólk Sóltúns óskar íbúum og ættingjum þeirra og samfélaginu öllu gleðilegra jólahátíðar.
Öll fréttin
16.12.2009
Kátir karlar og tónlistarfólk frá Seltjarnarnesi
Kórinn Kátir karlar og börn úr tónlistarskóla Seltjarnarness heimsóttu Sóltún og glöddu íbúa og starfsfólk með söng og tónlist. Takk fyrir komuna.myndir
Öll fréttin
15.12.2009
Jólasalan tókst vel
Stór hópur íbúa tekur virkan þátt í skapandi starfi í iðjuþjálfun, má þar nefna kertagerð og hannyrðir hverskonar. Í desember er haldin jólasala sem ávallt er vel sótt. Boðið er uppá heitt súkkulaði með randalínum og smákökum og jólalög eru sungin.myndir
Öll fréttin
15.12.2009
Strengjahljóðfæraleikarar sinfóníunnar í Sóltúni
Strengjahljóðfæraleikarar sinfóníunnar spiluðu fyrir íbúa og starfsfólk í samkomusalnum. Það er frábær aðventugjöf að fá slíka tónlistamenn í heimsókn. Kærar þakkir.myndir
Öll fréttin
14.12.2009
Litróf heimsótti Sóltún
Hópur úr listasmiðjunni Litróf í Fella og Hólakirkju sem starfar með 9-15 ára gömlum börnum komu og sungu nokkur jólalög af nýútkomnum geisladiski. Þau kynntu íbúum og starfsfólki athyglisvert starf listasmiðjunar ásamt Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna.myndir
Öll fréttin
10.12.2009
Jólahlaðborð íbúa á 3.hæð og ættingja þeirra
Um 7o manns komu saman á glæsilegt jólahlaðborð íbúa á 3.hæð og ættingja þeirra. Stúlkur úr Gradualekór Langholtskirkju hrifu gesti með söng sínum og Jón Jóhannson djákni flutti hugvekju.myndir
Öll fréttin
9.12.2009
Hansína Ólafsdóttir gefur myndir á 1. hæð Sóltúns
Hanína Ólafsdóttir sjúkraliði og myndlistamaður hefur látið af störfum hér í Sóltúni en hún hefur starfað hér frá upphafi.
Öll fréttin
9.12.2009
Jólahlaðborð íbúa á 1. hæð og ættingja þeirra
Á jólahlaðborð íbúanna á 1. hæð mættu 70 manns. Veislustjóri var Jón Jóhannsson djákni. Svanhvít Sigurðardóttir söngkona söng með glæsibrag og dóttir hennar Ingrid kjartansdóttir píanóleikari lék undir. Ánægja var með veisluhöldin.myndir
Öll fréttin
8.12.2009
Framtíðarsýn í öldrunarþjónustu
Nýlega stóð Félag stjórnenda í öldrunarþjónustu FSÍÖ fyrir ráðstefnu um framtíðarsýn í öldrunarþjónustu. Meðal framsögumanna var Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri í Sóltúni. Auk hennar fluttu erindi Árni Páll Árnason félags-og tryggingamálaráðherra, Helga Hansdóttir öldrunarlæknir, og Jón Björnsson sálfræðingur.Erindi Önnu Birnu
Öll fréttin
8.12.2009
Jón Kr. Ólafsson velunnari Sóltúns
Á undanförnum árum hefur Jón Kr.Ólafsson söngvari á Bíldudal hlúð að starfseminni í Sóltúni með reglubundnum gjöfum. Margar myndir prýða veggi heimilisins sem hann hefur gefið,m.a. útsaumuð mynd af ,,Drottinn blessi heimilið".Jón hefur einnig fært okkur bækur, tónlist og gleði. Eru honum færðar kærar þakkir fyrir hlýjan hug til Sóltúns.myndir
Öll fréttin
7.12.2009
Söngfuglar bestu þakkir, ávallt velkomin.
Birta og gleði skein af hverju andliti þegar þau komu í Sóltún. Hér var á ferðinni kórinn Söngfuglarnir, undir stjórn og undirleik Margrétar Sigurðardóttur.Það var greinilegt að söngurinn, félagsskapurinn og ekki síst það að geta glatt aðra með söng gaf þeim óendanlega mikið. Það birtist einmitt svo vel í flutningnum, sem líkt og lyftu áheyrandanum upp á vængjum söngsins og ferðuðust um loftin blá, til fjarlægra landa og heim aftur. Kórinn sem starfað hefur í liðlega 20 ár og telur á fimmta tug félaga er hluti félagsstarfsins á Vesturgötu 7. Þarna voru á ferð auðfúsugestir sem glöddu okkur með söng sínum og nærveru, góður orðrómur var gerður að heimsókninni meðal þeirra fjölmörgu sem sóttu tónleikanna.myndir
Öll fréttin
4.12.2009
Aðventustemning
Jólahlaðborð 2. hæðar var haldið, 3. desember síðastliðinn, með glæsibrag. Gestir íbúa voru 37. Vel var úti látið af góðum mat og þjónusta eldhúss til fyrirmyndar.Jón Jóhannsson, djákni, flutti jólahugvekju. Stefán Stefánsson óperusöngvari söng og skemmti við mikinn fögnuð nærstaddra. Samsöngur íbúa, aðstandenda og starfsfólks tóks einnig vel í lokin. Góð og notaleg stemning einkenndi borðhaldið og létu gestir vel að góðri jólastund í upphafi aðventu.myndir Öll fréttin
2.12.2009
Ánægjuleg heimsókn frá Laugarneskirkju
Barnakór Laugarness komu gangandi í heimsókn þrátt fyrir að kalt væri í veðri. Þau sungu jólalög undir stjórn Huldu Guðrúnar Geirsdóttur og séra Hildur Eir Bolladóttir sóknarprestur sagði sögu og flutti bæn. myndir frá heimsókninni
Öll fréttin
27.11.2009
Aðventudagskráin komin út
Fallegt jólatré lýsir upp skammdegið við aðalinngang Sóltúns. Aðventudagskráin hefur verið gefin út og birtist í nýjasta Fréttabréfinu. Dagskráin er ekki tæmandi og verða uppákomur og skemmtanir auglýstar á heimasíðunni. 4.tbl.2009
Öll fréttin
27.11.2009
Hugað að jólaskreytingum
Aðventustemmingin er komin í Sóltúnið. Íbúar og starfsfólk er byrjað að skreyta húsið, og njóta tilbreytingarinnar sem tilheyrir á aðventunni.myndir
Öll fréttin
24.11.2009
8. íbúaþingið haldið í Sóltúni 26.11.2009 kl.14
Næsta fimmtudag verður 8. íbúaþingið haldið í Sóltúni. Þá gera stjórnendur íbúum og ættingjum þeirra grein fyrir stöðu mála í öllum þjónustuþáttum. Tekið er á móti fyrirspurnum fyrir þingið og á þinginu og verður leitast við að svara þeim. Fjallað verður um það sem er efst á baugi, m.a. fjölbreytta dagskrá fyrir komandi aðventu og hátíðir.
Öll fréttin
18.11.2009
90 ára afmæli félags hjúkrunarfræðinga á Íslandi
Hjúkrunarfræðingar Sóltúns komu saman og áttu góða kvöldstund í tilefni að 90 ára afmæli félags hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Hjúkrunarheimilið Sóltún óskar hjúkrunarfræðingum til hamingu með daginn
Öll fréttin
14.11.2009
Árshátíð starfsmannafélagsins vel sótt
Starfsfólk og makar þeirra skemmtu sér vel á árshátíð starfsmannafélagsins sem haldin var í Skútunni þann 14.nóvember. Veislustjórar voru Guðný Jónsdóttir, Þórdís S. Hannesdóttir og Þórlaug Steingrímsdóttir. Hljómsveitin Úlfarnir léku fyrir dansi og skemmtiatriði voru heimatilbúin af starfsfólki.
Öll fréttin
22.10.2009
Sláturgerð í Sóltúni
Á haustin hafa íbúar og starfsfólk sameinast í sláturgerð og kunni fólk vel til verka. Undirbúningur var í höndum Sóltúnseldhússins og iðjuþjálfunar.skemmtilegar myndir
Öll fréttin
15.10.2009
Stærri mannfögnuðum frestað í sýkingavarnarskyni
Sýkingavarnarnefnd Sóltúns hefur ákveðið að guðþjónustu sem vera átti á morgun og haustfagnaði íbúa sem vera átti 22.október verði frestað til varnar útbreiðslu á svínaflensu.Starfsfólk Sóltúns verður bólusett gegn svínaflensu á næstu dögum að tilmælum Sóttvarnarlæknis, en heilbrigðisstarfsfólk er í Markhópi I, forgangshóp. Helstu ástæður þess eru: Að vernda sjúklinga gegn því að starfsmenn beri smit á milli. Til þess að starfsmenn sjálfir veikist ekki og geti sinnt mikilvægum störfum sínum og til að starfsmenn geti verndað fjölskyldur sínar með því að bera ekki smit frá sjúkrastofnunum og heim til sín.Ættingjar og aðrir heimsóknargestir ættu ekki að koma í heimsókn í Sóltún, hafi þeir einkenni um flensu.
Öll fréttin
7.10.2009
Velheppnuð fjölmenningarvika í Sóltúni
Undanfarin ár hefur orðið mikil aukning í að fólk flytji búferlum milli landa og festa rætur þar. Ísland, eyja úti langt úti á hafi hefur heillað marga, sem flust hafa hingað undanfarin ár, og líkað vel, sagt landið fallegt og fólkið gott. Um 12% starfsfólks Sóltúns er ef erlendum uppruna, nýlega stóð heimilið fyrir fjölmenningarviku sem var mjög vel heppnuð.Sjá nánari frásögn og myndir
Öll fréttin
25.9.2009
SFH samkomulag við Eflingu samþykkt
Í dag var talið í atvkæðagreiðslu um samkomulagið um breytingar á kjarasamningi Eflingar-stéttarfélags við SFH Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, en Sóltún er í hópi þeirra hjúkrunarheimila sem eru aðilar að SFH. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni samþykkti samkomulagið.
Öll fréttin
23.9.2009
Fjölmenningarvikan að hefjast
Nú er dagurinn,fjölmenningarvikan að hefjast.Við heilsumst meðal annars á Pólsku “Dzien dobry” og á Filippieysku “Magandang araw”. Kl.13:30 verður Guðbjört Guðjónsdóttir mannfræðingur með fyrirlesturinn, “Að starfa í alþjóðasamfélagi”. En ekki nóg með það, íbúum og starfsfólki er boðið uppá heimbakað kaffibrauð, í dag. Það eru þær Chona Cuares Millan og Lucivic Dagný Damasin frá Filippseyjum sem bjóða með kaffinu á 1. og 3. hæð. Á 2. hæð er það Anna Kaszczyssyn frá Póllandi sem býður uppá með kaffinu á annarri hæðinni.
Öll fréttin
5.9.2009
Golfmót starfsfólks
Golf nýtur vaxandi vinsælda meðal starfsfólks Sóltúns. Haldið var golfmót 3. september á Korpúlfsstöðum. Leikurinn var hinn skemmtilegasti og sigurvegari Soffía Björg Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur.myndir
Öll fréttin
1.9.2009
Dagskrá símenntunar komin út
Fræðslunefnd hefur gefið út dagskrá símenntunar í Sóltúni haustið 2009. Fræðslufundir eru vikulega á miðvikudögum kl.13:30 í fræðslusal.Starfsfólk, íbúar og ættingjar þeirra eru hjartanlega velkomnir á fundina.sjá dagskrá
Öll fréttin
25.8.2009
Sóltúni færðar góðar gjafir
Guðrún Jónsdóttir færði Sóltúni fallega húsmuni úr dánarbúi Ingibjargar Daníelsdóttur Níelsen fyrir hönd ættingja hennar þeirra Halldórs Hlífar Árnasonar, Braga Árnasonar, Árna S. Daníelsonar og Davíðs M. Daníelssonar.Eru þeim færðar kærar þakkir fyrir að taka með þessum hætti þátt í uppbyggingu heimilisins.frá afhendingu gjafarinnar
Öll fréttin
12.8.2009
Auknar forvarnir gegn sýkingum
Nú þegar inflúensufaraldur vofir yfir hér á landi, hefur Sóltún aukið viðbúnað og hvers kyns sýkingavarnir. Í andyri Sóltúns eru upplýsingar um forvarnir vegna inflúensu og handspritt fyrir heimsóknagesti.Sýkingar geta komið upp með jöfnu millibili á hjúkrunarheimilum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Afleiðingar sýkinga fyrir aldraða sjúklinga eru oft verri en fyrir þá sem yngri eru og heilsuhraustir og því mikilvægt að vinna gegn smiti. Fjöldi mismunandi smitefna geta valdið sýkingum og smitleiðirnar eru margar.Algengasta smitleiðirnar eru hendur en aðrar smitleiðir eru vel þekktar m.a. Loftborið smit, úðasmit og örveru menguð matvæli. Hornsteinn í forvörnum gegn sýkingum er góður handþvottur og almennt hreinlæti. Sýkingavarnarnefnd hefur ákveðið að efna til sýkingavarnarviku til að skerpa á þekkingu og umgengisreglum. Dagskrá sýkingavarnarviku
Öll fréttin
29.7.2009
Tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing
Staða hjúkrunarfræðings er laus til umsóknar,um er að ræða kvöld-, helgar- og næturvaktir frá 15. ágúst 2009. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri í síma 5906322.
Öll fréttin
2.7.2009
Gjafir til Sóltúns
Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Félagsstarfsins í Gerðubergi og Elín Daðadóttir komu færandi hendi í Sóltún. Heimilinu var færð mynd sem unnin var af Auðunni Víði Péturssyni í félagsstarfinu 2008. Mynd unna af Fanney Magnúsdóttur (harðangur og klaustur) og mynd saumaða af Guðrúnu Jónsdóttur 1966. Einnig var heimilinu færðir fallegir dúkar úr dánarbúi Ingibjargar Daníelsdóttur Níelsen f.7.maí 1915, d.24.janúar 2009, fyrir hönd ættingja.Gefendum eru færðar kærar þakkir fyrir.Afhendingin
Öll fréttin
30.6.2009
Glæsileg sumarferð starfsfólks
Starfsmannafélagið STÖLD stóð fyrir sumarferð helgina 26.-28.júní. Haldið var með rútu að Skógum þar sem 27 manns af 34 þátttakendum gengu af stað yfir Fimmvörðuháls niður í Þórsmörk. Gist var í Básum og notið útivistar yfir helgina. Frábær helgi eins og myndirnar bera með sér.svipmyndir úr ferðinni
Öll fréttin
25.6.2009
Ársskýrsla 2008
Komin er úr ársskýrsla 2008. Þar er stiklað á stóru um helstu þætti starfseminnar.Vefútgáfa
Öll fréttin
16.6.2009
Fréttabréf 2.tbl.2009 komið út
Útgefið er 2.tbl.8.árgangs af fréttum úr Sóltúni.Í fréttablaðinu er m.a. fjallað um öryggismál og gjöf íbúa heimilisins til uppbyggingarstarfs fyrir ungmenni á vegum Rauða Kross Íslands.2.tbl.2009
Öll fréttin
10.6.2009
Metþátttaka í kvennahlaupi ÍSÍ, Sjóvá og Sóltúns
Frábært veður og sólskin mættu um 100 þátttakendum úr hópi íbúa, ættingja þeirra og starfsfólks í kvennahlaupinu í morgun. Þemað á 20 ára afmæli kvennahlaupsins er heilbrigt hugarfar og hraustar konur.Inntakið er að láta sér líða vel og láta ekki kröfur um staðalímyndir ræna sig gleðinni.Ólafur B.Ólafsson gladdi þátttakendur með harmonikkuleik. skemmtilegar myndir
Öll fréttin
4.6.2009
Breyting á eignarhaldi og ný stjórn
Íslenska heilbrigðisþjónustan ehf.,hefur keypt öll hlutabréf Öldungs hf., af Frumafli, félagi Jóhanns Óla Guðmundssonar. Að nýja eigendahópnum koma Anna Birna Jensdóttir og Íslensk fjárfesting ehf.,sem er félag í eigu Þóris Kjartanssonar og Arnars Þórissonar. Við stjórnarformennsku tekur Þórir Kjartansson. Meðstjórnendur eru Arnar Þórisson og Gunnar Thoroddsen.Varamaður í stjórn er Anna Birna Jensdóttir.Engar breytingar eru áætlaðar í starfsemi eða rekstri hjúkrunarheimilisins.
Öll fréttin
28.5.2009
Uppskeruhátíð heilsu-og gleðimánaðar
Starfsfólkið bauð íbúum og ættingjum þeirra uppá vöfflur með rjóma á uppskeruhátíð í tilefni að lok heilsu-og gleðimánaðar í maí. Sagt var frá heilsumánuðinum og kynntar voru niðurstöður frá vinnustofum sem fóru fram víða á heimilinu meðal íbúa og starfsfólks. Ungir gestir sýndu samkvæmisdansa og síðan var sungið saman. Að lokum var föndrað við ;;Gogginn" sem sérstaklega var útbúinn að þessu tilefni.myndir og Niðurstöður
Öll fréttin
27.5.2009
Grillveisla og gróðursetningardagur
Íbúar, ættingjar þeirra og starfsfólk naut blíðviðrisins með grillveislu og snætt var úti í garði. Á matseðlinum voru grillaðir hamborgarar með köldu kartöflusalati, sósum, grænmeti og íspinnar í eftirrétt að hætti Sóltúnseldhússins, sannkallaður sólarkostur. Hross komu í heimsókn og dúettinn Sambandið spilaði og söng.Svipmyndir frá veislunni
Öll fréttin
25.5.2009
Námsheimsókn frá University of Iowa
Hjúkrunarfræðingarnir Ann L. Bossen og Janet Specht prófessor frá Iowa University heimsóttu Sóltún ásamt 6 nemendum 25.maí. Fengu þær kynningu á starfseminni og sérstaka kynningu á notkun upplýsingatækni og störfum gæðateyma í hjúkrun.mynd af hópnum
Öll fréttin
18.5.2009
Boccia stundað út í garði
Íbúar hafa notið yndislegra sumardaga með útiveru. Bocciatíminn var meira að segja færður út í garð við mikla lukku.Mynd
Öll fréttin
14.5.2009
Nemendur úr Suzukitónlistarskólanum léku á píanó
Nemendur úr Suzukitónlistarskólanum hér í næsta nágrenni, Sóltúni 24, færðu með sér sumargleði til íbúanna þegar þau komu og léku á píanó undir stjórn Þórunnar Huldu Guðmundsdóttur. Það er orðin fastur liður að nemendur skólans komi í Sóltún, öllum til mikillar ánægju.Mynd frá tónleikunum
Öll fréttin
14.5.2009
Yfirmaður Sóltúnsseldhússins í stjórn MNÍ
Guðný Jónsdóttir næringarrekstrarfræðingur og yfirmaður eldhússins í Sóltúni var kosin í stjórnm MNÍ (Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands. Stjórnina skipa auk hennar Herdís Guðjónsdóttir, Ragnheiður Guðjónsdóttir, Helen Williamsdóttir Gray og Sigríður Ásta Guðjónsdóttir. Varamaður er Rósa Jónsdóttir.
Öll fréttin
13.5.2009
Kertahópur Sóltúns færir börnum gjöf
Íbúar Sóltúns sem eru í kertahópnum, ákváðu að í þetta sinn skyldi ágóði að því fé sem safnaðist gegnum jólasölu og kertagerð renna til íslenskra barna. Berglind Rós Karlsdóttir frá Reykjavíkurdeild Rauða krossins kom og tók á móti söfnunarfénu kr.50.000,-. Berglind er forstöðukona Ungmennadeildar Rauða krossins í Reykjavík og hefur hún umsjón með námskeiðum sem kallast Mannúð og menning, sem börnum á aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára verður boðið að taka þátt í í sumar. Þátttaka á námskeiðin er ókeypis svo hér mun söfnunarféð nýtast sem framlag til námskeiðahaldsins. Mynd frá afhendingu gjafarinnar
Öll fréttin
5.5.2009
Stjórnarformaður kvaddur
Jóhann Óli Guðmundsson hefur látið af störfum sem stjórnarformaður Öldungs hf. Jóhann Óli hefur verið aðaleigandi Öldungs hf., frá stofnun félagsins sem var stofnað árið 2000. Markmiðið var að taka þátt í útboðsverkefni heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytisins um ,,Hjúkrunarheimili – einkaframkvæmd”, byggingu og rekstur í 25 ár. Félagið hefur rekið hjúkrunarheimilið Sóltún samkvæmt þjónustusamningi við ríkið síðan í ársbyrjun 2002 og hefur starfsemin verið farsæl. Stjórnendur og starfsfólk Sóltúns þakka Jóhanni Óla fyrir merkt brautryðjendastarf og traust og gott samstarf í þágu aldraðra.
Öll fréttin
17.4.2009
Glæsilegur vorfagnaður
Íbúar, ættingjar þeirra og starfsfólk skemmti sér vel á vorfagnaði Sóltúns 16.apríl. Þema vorfagnaðar var ,,hattaþema" og kom fólk saman í móttöku í miðju hússins kl. 18 þar sem boðið var uppá gleði í glasi og gott í munni. Síðan var borin fram kvöldverður á vegum Sótúnseldhússins í 12 borðstofum hússins og voru 160 manns í mat. Ítalska tríóið skemmti í samkomusalnum með frábærum söng og gamanmálum. Veittar voru viðurkenningar fyrir flottustu hattana.Svipmyndir frá vorgleðinni
Öll fréttin
16.4.2009
Utankjörstaðakosning til Alþingis í Sóltúni
Í dag var utankjörstaðakosning á vegum Sýslumannsins í Reykjavík til Alþingiskosninga í Sóltúni. Góð þátttaka var og mældist hún 40%. Þjónusta embættisins er til fyrirmyndar og gerir íbúum hjúkrunarheimila kleift að nota kosningarétt sinn og taka þar með þátt í mótun samfélagins til framtíðar.
Öll fréttin
8.4.2009
Gleðilega páska
Komið er út nýtt fréttabréf1. tbl.2009. Margt spennandi er á döfinni á næstunni. Sóltún óskar íbúum, starfsfólki, ættingjum þeirra og samfélaginu öllu gleðilegrar páskahátíðar. Guðþjónusta verður á föstudaginn langa kl.14 í Sóltúni.
Öll fréttin
31.3.2009
Skroppið í Blómaval
Hópur íbúa á 1. hæð skrapp á Sóltúnsbílnum í Blómaval í Skútuvogi. Tilhlökkun lá í loftinu, þar sem fregnir voru af því að búið væri að setja fram fermingar- og páskaskreytingar. Nauðsynlegt er að fylgjast með tískunni í þessum efnum og tíðarandanum. Heldur kalt var í veðri en loðhúfur og góðar kápur björguðu málum. Það var glatt fólk sem kom til baka og höfðu sumir verslað til að punta inni hjá sér.
Öll fréttin
30.3.2009
Kosningabaráttan hafin- Framsókn í heimsókn
Tveir fulltrúar Framsóknarflokksins í Reykjavík komu í Sóltún í hádeginu og heilsuðu uppá íbúa og starfsfólk. Menn voru mishrifnir af heimsókninni og mættu stjórnmálamennirnir ýmist glaðværð eða voru ekki virtir viðlits. Síðan var gert grein fyrir stefnumálum með framsögu í hádegishléi starfsfólks og var henni varpað út í sjónvörp hússins.
Öll fréttin
23.3.2009
Mikil aðsókn í sumarvinnu
Eins og áður er mikill áhugi hjá nemendum í heilbrigðisgreinum að ráða sig í sumarafleysingar í Sóltún. Ráðið hefur verið í allar stöður fyrir sumarið. Velkomið er þó að setja inn umsókn ef fólk vill vera á biðlista.
Öll fréttin
23.3.2009
Til hamingju með stjórnarsetuna
Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir og Rannveig E. Arnar sjúkraþjálfarar Sóltúns eru báðar komnar í stjórn Félags sjúkraþjálfara í öldurnarþjónustu næsta kjörtímabil. Markmið félagsins er að stuðla að fræðslu og forvarnarstarfi aldraðra, framhaldsmenntun og rannsóknum í sjúkraþjálfun og efla samskipti sjúkraþjálfara innanlands sem erlendis.
Öll fréttin
22.3.2009
Útivist
Góð tíð að undanförnu hefur örvað íbúa og starfsfólk til daglegrar útivistar. Farnar eru gönguferðir í Sóltúnsgarðinum, eða skroppið í bíltúr á bílnum okkar. Vinsælt er að fara í ökuferðir og skreppa á tónleika. Nýlega fóru á annan tug íbúa á hádegistónleika í Hafnarborg þar sem Sigrún Hjálmtýsdóttir söng.
Öll fréttin
17.3.2009
Heimsókn frá Pace University, New York
Í dag heimsóttu 14 nemendur í hjúkrunar- sem og í framhaldsnámi frá Pace Univeristy New York, Sóltún. Fyrir hópnum fóru hjúkrunarfræðingarnir David Ekstrom PhD, RN og Susan Gordon PdD,RN.Áhugi hópsins beindist að því að kynna sér öldrunarhjúkrun, notkun upplýsingatækni í starfi, hugmyndafræði og stjórnun. Anna Birna Jensdóttir hélt fyrirlestur um Sóltúns módelið og hjúkrunarstjórarnir Marta Jónsdóttir, Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir og Guðrún Björg Guðmundsdóttir fræddu þau um starfsemina.
Öll fréttin
17.3.2009
Innheimta greiðsluþátttöku fyrir Tryggingastofnun
Villandi frétt birtist á mbl.is 16.03.2009. Dvalarkostnaður á hjúkrunarheimilum er greiddur með daggjöldum sem ákveðin eru af heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingaráðuneytinu hverju sinni. Daggjöldin eru greidd af Tryggingastofnun ríkisins til hjúkrunarheimila.Þátttaka vistmanna í dvalarkostnaði er tekjutengd og óháð því hjúkrunarheimili sem viðkomandi býr á. Ef mánaðartekjur vistmanns eru að jafnaði 65.005 kr. eða meira eftir skatta (greiðslur frá Tryggingstofnun ekki meðtaldar) tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem eru umfram það. Greiðsluþátttaka vistmanna verður þó aldrei hærri en 262.313 kr. á mánuði.
Öll fréttin
4.3.2009
Heimsókn frá þingkonu Evrópuþingsins
Catherine Stihler þingkona sem situr fyrir Skotland á Evrópuþinginu heimsótti Sóltún ásamt dr. Catriona Burness ráðgjafa. Með þeim voru Rúna Magnúsdóttir og Claudia Vennemann frá alþjóðanefnd FKA. Gestirnir höfðu sérstakan áhuga á að kynna sér hugmyndafræði og nýsköpun í starfsemi hjúkrunarheimilisins. Heimsóknin var ánægjuleg og tóku íbúar sérstaklega vel á móti gestunum m.a. með söng.
Öll fréttin
1.3.2009
Þemamánuður ,,Mögnuð þjónusta" (Magnet)
Þema marsmánaðar verður ,,Mögnuð þjónusta" sem byggir á aðferðafræðinni ,,The Pathway to Excellence" og ,,Magnet hugmyndafræðinni". Hjúkrunarheimilið stefnir að því að útfæra aðferðafræðina enn frekar með skipulögðum hætti á næstu þremur árum og tryggja hjúkrunarheimilinu þar með þann sess að vera í fremstu röð í þjónustu. Haldnir verða vikulegir fræðslufundir í mars til undirbúnings. Verkefnið er mjög spennandi og hafa hjúkrunarstjórnendur sótt viðbótarþekkingu til the American Nursing Credentialing Center (ANCC) Magnet Program til undirbúnings.
Öll fréttin
5.2.2009
Vel heppnað þorrablót
Árlegt þorrablót heppnaðist vel að venju. Íbúa- og vinaráðið skipulagði þorrablótið. Borðhald var í 12 borðstofum heimilisins og hófst kl 18. Íbúar buðu til sín alls 64 ættingjum og vinum að þessu sinni. Boðið var uppá ljúfan þorramat frá Kjarnafæði og SS, sem rennt var niður með pilsner og brennivínssnapsi. Eftir kvöldmatinn safnaðist fólk saman í samkomusalnum þar sem Júliana Sigurveig Guðjónsdóttir stýrði blótinu fram eftir kvöldi. Ólafur Ólafsson harmonikuleikari og söngvari skemmti og stýrði fjöldasöng. Þórdís S. Hannesdóttir fór með minni karla og Jón Jóhannsson með minni kvenna.
Öll fréttin
10.1.2009
Ný bók um hjúkrunarheimili komin út
HJÚKRUNARHEIMILI. Leiðbeiningar og fróðleikur fyrir fjölskyldur á tímamótum.Í bókinni er fjallað um mismunandi hliðar á þjónustu við aldraða í heimahúsi og gert grein fyrir hvernig best sé að snúa sér, ef til þess kemur að sækja þurfi um búsetu á hjúkrunarheimili og hvernig æskilegast sé að standa að vali á heimili. Sagt er frá heilsufari og daglegu lífi íbúa á hjúkrunarheimilum og hlut fjölskyldu þeirra í umönnun.Sögu öldrunarheimila, uppbyggingu þeirra og rekstri eru gerð skil í bókinni og eins eru lífsgæða íbúa skoðuð frá ýmsum sjónarhornum.mynd af bókinni
Öll fréttin
2.1.2009
Gleðilegt nýtt ár- dagskrá simenntunar komin út
Fræðslunefnd hefur gefið út dagskrá símenntunar í Sóltúni veturinn 2009. Fræðslan er á miðvikudögum kl. 13:30 í fræðslusal hjúkrunarheimilisins og er hún opin starfsfólki, íbúum og ættingjum þeirra. Þemamánuður verður í mars undir yfirskriftinni ,,Mögnuð þjónusta" Dagskráin
Öll fréttin
24.12.2008
Sóltúni færður altarisdúkur á aðfangadegi jóla
Í guðsþjónustunni í dag var helgaður altarisdúkur við hátíðlega athöfn. Altarisdúkurinn er gjöf frá Aðalheiði Friðbertsdóttur til minningar um eiginmann sinn Óskar Kristjánsson sem lést þann 29.október 2005 og sem virðing og þökk fyrir samfélag og samstarf.
Öll fréttin
23.12.2008
Gleðileg jól
Stjórn og starfsfólk Sóltúns óskar íbúum og ættingjum þeirra og samfélaginu öllu gleðilegra jóla.
Öll fréttin
12.12.2008
Mannauðurinn er auðlind starfseminnar í Sóltúni
Á aðventunni á hverju ári kemur samstarfsfólkið í Sóltún saman á aðventunni. Flestir vinna vaktavinnu í mismunandi starfshlutfalli,ýmist á morgunvöktum, kvöldvöktum, nætur-og/eða helgarvöktum. Það er því glatt á hjalla þegar á annað hundrað samstarfsmenn hittast. Þá eru veittar starfsaldurviðurkenningar og viðurkenningar fyrir námsgráður sem sérstaklega nýtast í þágu íbúanna hér í Sóltúni. Mannauðurinn er mesta auðlind starfseminnar í Sóltúni. Sóltúnseldhúsið á allan heiður skilið fyrir frábærar veitingar, sem endranær.
Öll fréttin
5.12.2008
Nýtt fréttabréf er komið út
Í 5. tbl. 2008 er að finna fjölbreytta dagskrá í boði fyrir íbúa Sóltúns á aðventunnisjá fréttabréfið
Öll fréttin
4.12.2008
Jólahlaðborðin á aðventunni
Íbúar og ættingjar þeirra koma saman á aðventunni í jólahlaðborði. Flutt er hugvekja og fólk gefur sér stund til að borða góðan mat, njóta tónlistar og syngja jólasálma. Eldhúsið í Sóltúni hefur útbúið glæsilegan matseðil. Íbúar á 1. hæð komu saman 2.desember og íbúar á 3.hæð þann 4. desember og mættu um 70 manns í hvort skipti. Íbúar á 2. hæð verða síðan með sitt jólahlaðborð þann 9. desember.
Öll fréttin
6.11.2008
Leiksýningin Aðventa
Minningasjóður Sóltúns bauð íbúum, ættingjum og starfsfólki á leiksýningu Möguleikhússins ,,Aðventa" eftir Gunnar Gunnarsson í samkomusal Sóltúns 6. nóvember. Pétur Eggerz leikari sagði frá svaðilförum Fjalla-Bensa á Mýrdalsöræfum með miklum tilhrifum. Sagan er klassísk og fjallar um náungakærleika og fórnfýsi.Það er mikilvægt tækifæri að eiga þess kost að fá ferðaleiksýningu á hjúkrunarheimilið.myndir
Öll fréttin
30.10.2008
Glæsilegur haustfagnaður
Íbúar, ættingjar þeirra og starfsfólk naut þess að koma saman til hátíðarkvöldverðar að hætti Sóltúns eldhússins og hlusta á ógleymanlegan söng og ljóðaflutning Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur í samkomusalnum. Íbúa-og vinaráð Sóltúns skipulagði fagnaðinn.Meira um haustfagnaðinn
Öll fréttin
24.10.2008
Djáknanemar í starfsþjálfun í Sóltúni
Allt frá opnun Sóltúns hafa nemar verið úr hinum ýmsum fag-og starfsgreinum. Nú á haustönn bregður svo við að það eru þrír djáknanemar í einu sem allir hafa lokið 30 eininga framhaldsnámi í djáknafræðum. Þær eru Ingigerður Konráðsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Ásdís Pétursdóttir Blöndal, leikskólakennari og Margrét Gunnarsdóttir, framhaldskólakennari. Hluti af námi í djáknafræðum er að ljúka starfsþjálfun undir handleiðslu valinna djákna í starfi og í nokkrum tilvikum presta. Starfsþjálfun felst í að djáknanemar kynnist og taki þátt í starfi djáknans og kynnist starfsumhverfi hans, verkefnum og samstarfsaðilum.
Öll fréttin
23.10.2008
Sláturgerð í Sóltúni
Fyrir hádegi þann 23. október tóku íbúar Sóltúns slátur. Unnið var í iðjuþjálfunarsalnum og boðið upp á dýrindis sherry og góða tónlist á meðan á framkvæmdinni stóð. Eldhúsdömurnar höfðu daginn áður saumað vambir af miklum dugnaði og um morguninn skorið niður mör og hrært hráefninu saman. Því var lítið annað að gera en að troða í vambirnar og sauma fyrir.
Öll fréttin
10.10.2008
Efnahagsmálin rædd
Anna Birna Jensdóttir hélt í morgun fund með íbúum og starfsfólki um efnahagskreppuna og starfsemina í Sóltúni. Sóltún er með samning við íslenska ríkið til 2027 um reksturinn. Starfsemi og stefna er alveg skýr, þó ráðdeildar sé þörf sem aldrei fyrr. Sóltún hefur verið afar lánsamt í starfsmannamálum og er það verðmætasti fjársjóðurinn þegar tryggja á gæði þjónustunnar. Við erfiðar aðstæður skiptir máli að starfsfólk, íbúar og ættingjar þjappi sér saman og standi vörð um líðan og hag fólks. Þó breytinga sé ekki að vænta í Sóltúni, getur bjátað á í fjölskyldum íbúa og starfsfólks sem valdið getur kvíða. Sóltún býður því uppá stuðningsviðtöl hjá djákna og hjúkrunarfræðingum.vel mætt í salinn
Öll fréttin
3.10.2008
Háþrýstidæla bræddi úr sér
Brunavarnakerfi Sóltúns gerði viðvart í nótt. Við athugun reyndist reykur í kjallara sem kom frá háþrýstidælu sem bræddi úr sér í lokuðu þvottarými. Slökkvilið kom á staðinn og reykræsti. Íbúum og starfsfólki varð ekki meint af.
Öll fréttin
19.9.2008
Heimsókn frá Gotland kommun, Svíþjóð
Forráðamenn öldrunar-og félagsþjónustu Gotland kommune í Svíþjóð komu í heimsókn í Sóltún. Frá Félagsmálaráði þau Gustaf Hoffstedt formaður, Anna-Karin Hellström og Sonja Landin ásamt Mariann G. Luthman (alderomsorgchef), Lena Lager (socialdirektör)og Hanna Hallegard. Unnið er að endurskipulagningu á hugmyndafræði og framtíðaruppbyggingu í sveitarfélaginu. Fengu þau kynningu hjá Mörtu Jónsdóttur hjúkrunarstjóra um uppbyggingu og starfsemi Sóltúns, stefnu- og skorkort og árangur í þjónustu og mannauðsmálum.
Öll fréttin
17.9.2008
Nýtt fréttabréf
Komið er út nýtt fréttabréf. Það hefur að geyma upplýsingar um þá dagskrá sem þegar er skipulögð fyrir komandi mánuði; símenntunarprógram, guðþjónustur, haustfagnað, jólahlaðborð og fleira. Jafnframt eru fréttir frá starfi gróðurklúbbsins, sjá nánar í 3.tbl.2008, 7.árg.
Öll fréttin
2.9.2008
Dagskrá símenntunar fyrir haustið 2008
Fræðslunefnd hefur gefið út dagskrá fyrir símenntun starfsfólks, íbúa og aðstandenda haustið 2008. Þetta er 12 dagskráin sem gefin er út frá opnun Sóltúns 2002. Símenntun er mikilvægur liður í því lærdómsumhverfi sem Sóltún er. Sjá dagskrá
Öll fréttin
12.8.2008
Biðlisti eftir störfum í Sóltúni
Mikil eftirspurn er eftir störfum í Sóltúni eins og svo oft áður. Búið er að ráða í allar stöður fyrir veturinn, en áhugasamir geta fyllt út atvinnuumsókn sem fer þá á biðlista ef einhverjar vaktir skyldu losna.
Öll fréttin
5.8.2008
Frábært sumarstarfsfólk
Veðrið hefur leikið við íbúa og starfsfólk Sóltúns í sumar. Fólk hefur notið útiveru og fallega skjólsæla garðsins umhverfis Sóltún. Svalir hafa einnig verið vel nýttar til sólbaða og útivistar. Grillveislur hafa verið reglulega og í öll skiptin hefur verið snætt úti. Heimilið hefur verið svo lánsamt að hafa fengið til liðs frábært ungt fólk í sumarafleysingar. Flest þeirra eru að mennta sig í heilbrigðisgreinum eða í framhaldsskóla. Störf þeirra, framkoma og virðing hefur verið til fyrirmyndar og munu sum þeirra starfa með okkur í vetur með námi.
Öll fréttin
7.7.2008
Tónlistarskemmtun
Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland kom í heimsókn í Sóltún mánudaginn 7. júlí og flutti íbúum og starfsfólki frumsamin lög og texta. Spilaði hann bæði á gítar og munnhörpu. Sverrir er þátttakandi í verkefninu ,,Skapandi sumarstarf" á vegum Hins hússins og kallar hann sig hirðskáld Hins hússins.Það var ánægjulegt að fá Sverri í heimsókn.
Öll fréttin
6.6.2008
Fyrsta grillveisla sumarsins
Grilldagur í Sóltúni!
Öll fréttin
3.6.2008
Kvennahlaup Sóltúns, Sjóvá og ÍSÍ 2008
Þann 2. júní fór fram árlegt kvennahlaup Sóltúns, Sjóvá og ÍSÍ. Það þessu sinni tóku milli 60-70 manns þátt; íbúar, aðstandendur og starfsfólk. Ólafur B.Ólafsson harmonikkuleikari hélt uppi stemningu og karlar afhentu konunum viðurkenningarpening.
Öll fréttin
20.5.2008
Írskir dagar í Sóltúni
Sóltún hefur staðið fyrir þemadögum undanfarin ár, þar sem ákveðið land hefur orðið fyrir valinu hverju sinni. Dagskrá er skipulögð með tilliti til menningar og lista, matarhefðar og húsið skreytt. Góðir gestir eru fengnir í heimsókn. Að þessu sinni verða írskir dagar 21.-22.maí og mun m.a., ræðismaður íra á Íslandi Davíð Sch. Thorsteinsson heiðra Sóltún með heimsókn sinni og Pauline Mc Carthy syngja keltnesk lög.Sjá nánari dagskrá Írskir dagar
Öll fréttin
9.5.2008
Fundur vegna fjölmiðlaumræðu
Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri hélt í morgun opinn fund með íbúum Sóltúns, aðstandendum og starfsfólki til að fara yfir úrtakskönnun Ríkisendurskoðunar á skráningu fagstétta í Sóltúni. Athugasemdir voru gerðar í úrtakskönnuninni við skráninguna á tveimur þáttum, þ.e. um fjölda mínútna í þjálfun (sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun) og tveimur atriðum um vökva- og/eða lyfjagjöf í æð af nærri fjögur hundruð heildaratriðum RAI matstækisins. RAI matstækið er safn gagna byggt á mati hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa og lækna um heilsufar, umönnunarþarfir, sjúkdómsgreiningar og lyfja- og þjálfunarmeðferðir aldraðra íbúa á hjúkrunarheimilum. Matstækið er þannig mikilvægur hluti af því safni upplýsinga sem mynda sjúkraskrá viðkomandi íbúa.
Öll fréttin
8.5.2008
Yfirlýsing vegna úrtakskönnunar Ríkisendurskoðunar
Á ári aldraðra 1999 ákvað ríkið að koma á fót hjúkrunarheimili sem gæti tekið á móti sjúklingum með mikla hjúkrunarþyngd af sjúkrahúsum. Sóltún tók að sér hluta þessa verkefnis með samningi við heilbrigðisráðuneytið að undangengnu útboði. Verkkaupinn, ríkið, velur vistmenn inn á Sóltún. Flestir koma þeir af Landspítala og þurfa mikla umönnun. Af þessu leiðir að hjúkrunarþyngd á Sóltúni er meiri en á öðrum hjúkrunarheimilum og þjónustustigið hátt. Í samningi ríkisins og Sóltúns er mælt fyrir um mat á hjúkrunarþyngd skv. sérstöku kerfi (RAI-mati). Greiðslur fyrir þjónustu Sóltúns aukast fari hjúkrunarþyngd fram úr umsömdum mörkum.
Öll fréttin
29.4.2008
"Heil og sæl í vinnunni"
Árviss viðburður er að tileinka maímánuði heilsueflingu. Heilsumánuðurinn að þessu sinni mun takast á við að efla alhliða heilsu starfsfólks, hvort heldur er líkama, sál eða félagsveruna.Dagskrárbrot
Öll fréttin
19.4.2008
Framsöguerindi frá ráðstefnu Sóltúns
Framsöguerindi frá ráðstefnu Sóltúns þann 17. janúar 2008 eru nú aðgengileg á heimsíðunni, undir þjónusta og gæðamat. Erindin fjalla um RAI mat, gæðaumbótastarf og störf gæðateyma s.s.næringarteymi, verkjateymi, líknarteymi o.fl.
Öll fréttin
18.4.2008
Vel heppnuð vorgleði
Vorgleðin í gærkvöldi heppnaðist sérlega vel, auk 92 íbúa heimilisins tóku þátt 69 gestir þeirra og starfsfólk. Klukkan 18 kom sparibúin hópur saman í fordrykk í miðjusvæði hússins. Þar var einnig boðið uppá kokteilbita. Síðan var sest að borðum í öllum 12 borðstofum heimilisins. Eldhús Sóltúns fékk mikið hrós fyrir púrtvínslegið lambafille sem borið var fram með dijonsósu, léttsteiktu grænmeti á saltbeði og kartöflum. Í eftirrétt var karamellu-súkkulaðipíramídi og kaffi. Að loknum kvöldverði skemmtu þau Ragnheiður Hauksdóttir söngkona og Kristinn Valdimarsson í samkomusalnum.
Öll fréttin
16.4.2008
Ímyndarverkefni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sóltún leggur ímyndarverkefni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ,,Þegar mest á reynir" lið. Mikilvægt er fyrir íslenskt samfélag að laða ungt fólk til starfa við hjúkrun til að geta tryggt landsmönnum heilbrigðisþjónustu , sjá nánar á www.hjukrun.is
Öll fréttin
10.4.2008
Í stjórn AFA aðstandendafélags aldraðra
Fimmtudaginn 10. apríl 2008 hélt AFA - Aðstandendafélag aldraðra sinn annan aðalfund í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði. Kosnir voru tveir nýir meðlimir í stjórn þær Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri og Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri í Sóltúni. Stjórn AFA er nú þannig skipuð:
Öll fréttin
7.4.2008
Nýtt fréttabréf er komið út
Nýtt fréttabréf er komið út og hefur það að geyma fréttir frá starfsemi gróðurklúbbsins árið 2007 1. tölublað 2008
Öll fréttin
1.4.2008
Skiptinemar frá Danmörku í námsdvöl í Sóltúni
Þrír skiptinemar frá Danmörku verða hér í Sóltúni frá 1. apríl til 1. maí. Þetta er samstarfsverkefni sjúkraliðabrautar Fjölbrautaskólans við Ármúla og Humanica, Social- og Sundhedsuddannelserne, styrkt af menntaáætlun Evrópusambandsins (Leonardo da Vinci, college of basic social and health training programmes). Ákveðnir sjúkraliðar heimilisins fylgja nemunum eftir og gefa svo viðkomandi umsögn í lok tímabilsins en námsdvölin er metin til eininga.
Öll fréttin
25.3.2008
Söngveisla í Sóltúni
Það var sannkölluð söngveisla í Sóltúni þriðjudaginn 25.mars. Þá streymdi að prúðbúin söngsveit karla og kvenna úr Óperukór Hafnarfjarðar. Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona stjórnaði kórnum á upplífgandi hátt undir píanóleik Peter Máté. Verndari kórsins frá upphafi er Þuríður Pálsdóttir. Íbúar, gestir þeirra og starfsfólk þakka kærlega fyrir yndislega og gefandi heimsókn snilldar tónlistarfólks.
Öll fréttin
15.3.2008
Minningasjóður kaupir skutlur
Minningasjóður Sóltúns hefur það að lykilmarkmiði að bæta aðbúnað íbúa og vinnuumhverfi starfsfólks. Nýlega færði sjóðurinn heimilinu þjár skutlur, eina fyrir hverja hæð sjá mynd af skutlunni. Skutlurnar nýtast íbúum vel við að komast milli staða í húsinu og létta umönnun starfsfólks. Skutlurnar voru keyptar hjá Fastus.
Öll fréttin
11.3.2008
Hjúkrunarstjórnendur frá Noregi í námsheimsókn
Tólf hjúkrunarstjórnendur frá hjúkrunarheimilunum Okern og Lilleborg í Osló Noregi komu í heimsókn þann 11. mars 2008. Markmið heimsóknarinnar var að skoða heimilið og kynnast uppbyggingu starfseminar og fræðast um árangur okkar í starfi (m.a. í starfsmannamálum). Þau voru mjög áhugasöm um Vigil hjúkrunarvöktunarkerfið ekki síst m.t.t. þeirra sem þjást af heilabilun. Þau lýstu ánægðju með heimsóknina og höfðu á orði að þau hefðu fengið góðar hugmyndir með sér heim.mynd af hópnum
Öll fréttin
10.3.2008
Niðurstöður könnunar ,,Heil og sæl í vinnunni"
Niðurstöður könnunar um hvernig stjórnun heilsueflingar á vinnustaðnum Sóltúni er háttað sýndi samtals 93 stig. Ef niðurstöður eru á bilinu 75-100 þá stendur vinnustaðurinn sig frábærlega vel þegar kemur að því að efla heilsu og forvarnir í þeim fjórum þáttum sem lögð er áhersla á í átaksverkefni Lýðheilsustöðvar og Vinnueftirlitisins ,,Heil og sæl í vinnunni".
Öll fréttin
8.2.2008
Gjöf í minningu Guðnýjar Kristrúnar Níelsdóttur
Börn Guðnýjar Kristrúnar Níelsdóttur, þau Páll Ólafur Stefánsson, Hildur Stefánsdóttir og Soffía Stefánsdóttir færðu sambýlum á 2. hæð Sóltúni tvo glæsilega leður hægindastóla í minningu hennar. Stólarnir hafa heldur betur slegið í gegn enda eru þeir ákaflega þægilegir að sitja eða halla sér í og eru í miklu uppáhaldi hjá íbúum. Er fjölskyldunni færðar kærar þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf frá íbúum og starfsfólki heimilisins.mynd af stólnum
Öll fréttin
25.1.2008
Þorrinn blótaður á bóndadaginn
Íbúar,aðstandendur og starfsfólk skemmtu sér á þorrablóti 25.janúar síðastliðinn. Í hádeginu var snæddur gómsætur þorramatur og hákarlinn smakkaðist vel með brennivínsstaupinu.Ólafur Ólafsson harmonikkuleikari spilaði og Ingibjörg Ólafsdóttir söngkona tók nokkur lög. Sigurjón Guðnason og Sigurður Elí Haraldsson leiddu fjöldasöng, Jón Jóhannsson fór með minni kvenna og Þórdís S. Hannesdóttir fór með minni karla.Svipmyndir
Öll fréttin
18.1.2008
Vel heppnuð ráðstefna Sóltúns
Um 80 manns sóttu ráðstefnu Sóltúns um gæðavísa og gæðaumbætur í öldrunarþjónustu í gær þrátt fyrir ófærð og afleitt veður. Í framahaldi af fundinum hefur Sóltún ákveðið að birta niðurstöður gæðavísa á heimilinu og er fyrst íslenskra hjúkrunarheimila sem það gerir. myndir og dagskrá
Öll fréttin
7.1.2008
Fullt á ráðstefnu Sóltúns um gæðaumbætur 17.jan
Ráðstefna Sóltúns um gæðavísa og gæðaumbætur sem haldin verður 17. janúar hefur hlotið það góðar viðtökur að biðlisti hefur myndast. Ekki er því hægt að taka á móti frekari skráningu í bili.
Öll fréttin
7.1.2008
6 ár frá opnun Sóltúns 7. janúar 2002
Sóltún fagnar í dag 6 ára farsælu starfi í þágu eldri borgara. Hjúkrunarheimilið hefur verið lánsamt í starfsmannamálum og hefur mannauðurinn verið meginstoðin í þjónustunni.
Öll fréttin
24.12.2007
Gleðileg jól og blessunarríkt nýtt ár
Stjórn og starfsfólk Sóltúns óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og guðs blessunar á nýju ári. Þökkum hlýhug í garð heimilisins og starfseminnar.Nýtt fréttabréf er komið út, sjá: 4. tbl. 2007
Öll fréttin
12.12.2007
Nýtt fréttabréf er komið út
Út er komið nýtt fréttabréf, þar sem meðal annars er að finna dagskrána á aðventunni, kynning á stuðningshópastarfi fyrir aðstandendur og frásögn frá námsferð starfsfólks til Færeyja3.tbl.2007
Öll fréttin
12.12.2007
Jólahlaðborð haldið þrisvar sinnum á aðventunni
Íbúar, aðstandendur (200 manns) og starfsfólk í Sóltúni hafa notið aðventunnar með því að koma saman í jólahlaðborði í samkomusalnum. Jón Jóhannsson djákni flutti hugvekju og tónlistarmenn sungu og spiluðu.Svipmyndir frá jólahlaðborðunum
Öll fréttin
1.12.2007
Starfsfólk Sóltúns í námsferð til Færeyja
Starfsfólk Sóltúns heimsótti frændur okkar Færeyinga í haust til að kynna sér starfsemi hjúkrunarheimila.Þær tóku saman skemmtilega grein um námsferðina.Grein um Færeyjarferðina
Öll fréttin
16.11.2007
Dagur íslenskrar tungu
Heimsókn barna frá leikskólanum Dvergasteini.
Öll fréttin
13.11.2007
Starfsmannafélagið með námskeið í konfektgerð
Þann 13. nóvember sl. stóð STÖLD fyrir námskeiði í jólakonfektgerð og fékk til liðs við sig Halldór Sigurðsson konditormeistara. Kvöldið heppnaðist mjög vel og fóru þáttakendur heim með dýrindis jólakonfekt.
Öll fréttin
13.11.2007
Íbúaþing haldið 6. starfsárið í röð
Góð mæting var á 6.íbúaþing Sóltúns sem haldið var í samkomusal Sóltúns í dag. Fjölmargir fylgdust einnig með útsendingu af þinginu í innanhúss sjónvarpskerfinu. Stjórnendur Sóltúns; Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri, hjúkrunarstjórarnir; Marta Jónsdóttir, Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir og Guðrún Björg Guðmundsdóttir og Aðalbjörg Íris Ólafsóttir frá sjúkraþjálfun, Hildur Þráinsdóttir frá iðjuþjálfun, Jón Jóhannsson fyrir sálgæslu og Þórdís S. Hannesdóttir fyrir húsumsjón, ræstingu oh eldhús greindu frá upplýsingum um þjónustu, mannauð, gæða- og umbótaverkefni og fjármálarekstur í starfseminni. Farið var yfir þau mál sem eru í deiglunni s.s. framtíðaruppbyggingu, viðhald, þróunarverkefni, stefnumörkun, skipulag fram að áramótum, þátt íbúa- og vinaráðs og fleira. Íbúar tóku einnig til máls og komu með ábendingu og færðu þakkir fyrir góða þjónustu.
Öll fréttin
9.11.2007
Ráðuneytisstjóri HTR heimsækir Sóltún
Berglind Ásgeirsdóttir nýr ráðuneytissjtóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu heimsótti Sóltún í dag. Hitti hún Önnu Birnu Jensdóttur framkvæmdastjóra og Jóhann Óla Guðmundsson stjórnarformann og fór yfir starfsemi og árangur í starfi heimilisins. Í framhaldi af því heilsaði hún uppá íbúa og starfsfólk á 1.hæð.
Öll fréttin
7.11.2007
Hjúkrunarfræðingar í diplomanámi við H.Í.
Á annan tug hjúkrunarfræðinga í diplomanámi í öldrunarhjúkrun við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands heimsóttu Sóltún í dag. Heimsóknin hófst með því að snæða saman í glæsilegri kaffiteríu heimsilins í hádeginu. Síðan heimsóttu nemendur sambýlin og kynntu sér hjúkrunarþjónustuna, árangursstjórnun gengum skorkort Sóltúns og rafræna sjúkraskráningu. Athyglisvert var að sjá að nemendur höfðu í fórum sínum matstæki ,,Sjáanlegar vísbendingar um gæði öldrunarhjúkrunar" sem Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarforstjóri Sóltúns og Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri þjónustu við minnisskerta íbúa Sóltúns þýddu og staðfærðu fyrir allnokkrum árum ásamt Ingibjörgu Hjaltadóttur og Hlíf Guðmundsdóttur forsvarsmönnnum hjúkrunar á öldrunarsviði LSH. Áhugavert verður að sjá niðurstöður þeirra. Hópurinn endaði heimsókn sína með því að hlýða á framsögu í fræðslusal með starfsfólki, íbúum og aðstandendum á vikulegum símenntunardegi i Sóltúni.
Öll fréttin
3.11.2007
Árshátíð starfsfólks heppnaðist vel
Árshátíð starfsmanna var haldin laugardaginn 3/11, 2007 á hótel Loftleiðum. 116 veislugestir voru skráðir til leiks og nutu yndislegrar kvöldstundar. Veislustjórar voru þeir Stefán Íslandi, Davíð Ólafsson og Helgi Hannesson spilaði á píanó. Það var samdóma álit veislugesta að þeir hefðu hreinlega farið á kostum.
Öll fréttin
1.11.2007
Hádegistónleikar í Hafnarborg
Íbúar og starfsfólk (alla 9 manns) fóru héðan frá Sóltúni á hádegistónleika Í Hafnarborg fimmtudaginn 1.nóvember.Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona var gestur Antoníu á þessum tónleikum, á efnisskrá voru þýsk verk.Hafnarborg, hefur frá í ágúst 2003 staðið fyrir tónleikum í hádegi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Frá upphafi hefur Antonía Hevesi píanóleikari verið listrænn stjórnandi þessara tónleikaraðar og hafa íbúar Sóltúns farðið héðan í litlum hópum á svo til flesta tónleika.
Öll fréttin
26.10.2007
Heimsókn frá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Sautján hressir starfsmenn öldrunardeildar komu í heimsókn í Sóltún 26. október 2007 til að kynna sér starfsemi heimilisins og aðstöðu.
Öll fréttin
25.10.2007
Aldrei fleiri á haustfagnaði
Fimmtudagskvöldið 25. október var árlegur haustfagnaður í Sóltúni. Um 200 manns; íbúar, ættingjar þeirra og starfsfólk gæddu sér á bláberjakryddlegnu og steiktu lambafille með villibráðasósu og tilheyrandi meðlæti í aðalrétt og skyrtertu með berjum, púrtvíni og kaffi í eftirrétt. Kvöldverðurinn fór fram í öllum 12 borðstofum heimilisins frá kl. 18-19:30. Eftir það var boðið uppá tónleika í samkomusalnum þar sem Hulda Björk Garðarsdóttir óperusöngkona söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara. Síðan bættust nokkrar söngsystur úr röðum starfsfólks í Sóltúni við og leiddu þær fjöldasöng fram eftir kveldi. Kvöldið var afar vel heppnað.
Öll fréttin
19.10.2007
Hátíðarstund í Sóltúni
Það var fagnaðar- og hátíðarblær yfir október guðsþjónustunni okkar hér í Sóltúni. Ekki einungis fengum við að fagna góðum gesti, sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur, sem í byrjum október tók við prestsembætti í Dómkirkjunni. Því þennan sama dag var einnig fagnað nýrri þýðingu Biblíunnar með hátíðarstund í Dómkirkjunni kl 11:00 þar sem forseta Íslands og öðrum í æðstu embættum þjóðfélagsins var afhent fyrstu eintök Biblíunnar. Kl 14:00 var svo guðsþjónusta hér í Sótúni þar sem við á sérstakan hátt með þátttöku íbúa, aðstandenda og starfsfólks fögnuðum og tókum í notkun hina nýju útgáfu Biblíunnar. Tónlist var í umsjá Gunnars Gunnarssonar og Þorvaldar Þorvaldssonar, fluttu þeir meðal annars sálminn fallega “Góður engill Guðs oss leiðir” við lag eftir Ísólf Pálsson, afa sr.Önnu Sigríðar.
Öll fréttin
18.10.2007
Fréttabréf 2.tbl.2007 komið út
Nýtt fréttabréf er komið út. Í blaðinu er að finna fréttir af innra starfi í Sóltúni og tilkynningar um haustfagnað, fræðslufundi og guðþjónustur fram að áramótum.2.tbl.2007
Öll fréttin
18.10.2007
Sláturgerð í Sóltúni
Íbúar og starfsfólk komu saman til sláturgerðar 18. október. Það er alltaf góður andi yfir sláturgerðinni þar sem fólk rifjar upp framkvæmd hennar fyrr á árum um leið og það saumar vambir, brytjar mör og hrærir hefðbundna blóðmör og lifrarpylsu. Einnig var búin til blóðmör með rúsínum.Slátrið var síðan soðið og smakkað á því í hverju sambýli.
Öll fréttin
15.10.2007
Skokkhópur starfsfólks
Frá 1. október sl. hefur verið starfræktur skokkhópur starfsmanna Sóltúns. Hópurinn hefur það að markmiði að byrjendur geti skokkað 5 km samfellt eftir 10 vikna þjálfun. Hópurinn hittist alla mánudaga og miðvikudaga kl. 16:10 við Laugardalslaug. Skokkað er í Laugardalnum og æfingu lýkur kl. 16:50.
Öll fréttin
1.10.2007
Ný standgrind í sjúkraþjálfun
Minningarsjóður Sóltúns keypti nýlega standgrind (Easystand Ovation Strap stand)til notkunar í sjúkraþjálfun. Innflutningsaðili er STS hf.Standgrindin kemur fyrst og fremst til góða fyrir þá íbúa hjúkrunarheimilisins sem bundnir eru hjólastól, en það á við um ríflega helming íbúa. Standgrindin gerir fólki sem ekki getur staðið sjálft, kleift að standa upprétt. Ávinningur þess að geta staðið vinnur á móti kreppum í mjöðmum, hjám og ökklum. Það vinnur ennfremur á móti vöðvastífni (spasma)og beinþynningu. Það hefur jákvæð áhrif á blóðrásina, öndun og styrkir bolvöðva. mynd
Öll fréttin
26.9.2007
Vel sóttur námsdagur starfsfólks
Fræðslunefnd Sóltúns stóð fyrir árlegum fræðsludegi fyrir starfsmenn 26. september 2007. Dagarnir hafa verið sannkölluð næring fyrir líkama og sál. Þema dagsins að þessu sinni var hugurinn, sterkasta aflið. Fyrirlesari var Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur. Fjallað var m.a. um afstöðu hugarfarsins og heilbrigði, hvað mótar hugsun fólks og hvers vegna neikvæðar hugsanir hafa svo mikil áhrif.Að loknum fyrirlestrum var boðið upp á veisluborð að hætti Sóltúns. Einnig voru viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í fræðslu síðastliðinn vetur afhent.
Öll fréttin
22.9.2007
Starfsmannafélagið í fjölskylduferð
Þann 22. september sl. bauð Öldungur starfsfólki ásamt fjölskyldum í árlega fjölskylduferð. Ferðinni var heitið á Sólheima í Grímsnesi og í dýragarðinn Slakka í Laugaási. Ferðin heppnaðist í alla staði mjög vel og 65 manns tóku þátt í henni. Á Sólheimum var vel tekið á móti hópnum og naut hann leiðsagnar um staðinn. Á heimleiðinni var svo komið við í Slakka þar sem STÖLD grillaði pylsur og börnin nutu þess að skoða dýrin.
Öll fréttin
20.9.2007
Söngleikurinn ,,Ást"
Tuttugu manna hópur, íbúar, aðstandendur og starfsfólk fór að sjá söngleikinn ,,Ást" í Borgarleikhúsinu þann 20.september. Anna Kristín frá Borgarleikhúsinu sá til þess að allir fengju góð sæti og vel færi um fólk. Borgarleikhúsinu og Landsbankanum eru færðar kærar þakkir fyrir að bjóða eldri borgurum að gera sér glaðan dag með söng og gleði ásamt kaffi og kleinum í hléinu. Boðið var uppá sérstakt afsláttarverð og frían akstur. Allir skemmtu sér vel.
Öll fréttin
20.9.2007
Kartöflu- og rófuuppskera
Börn úr Laugarnesskóla komu 20. september og hjálpuðu íbúum og starfsfólki að taka upp kartöflur og rófur úr matjurtagarðinum. Kalt var í veðri, en hópurinn lét það ekki á sig fá. Boðið var uppá heitt kakó á eftir. Samvinnan milli kynslóðanna er ómetanleg.
Öll fréttin
18.9.2007
Hjúkrunarforstjórar funda um RAI mat
Hjúkrunarforstjórar hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu funduðu í dag um RAI mat. Farið var yfir forsendur þyngdarstuðlaútreikninga og ræddar leiðir við framkvæmd matsins. svipmynd
Öll fréttin
1.9.2007
Fræðslunefnd kynnir símenntunardagskrá haustsins
Dagskrá símenntunar fyrir haustið 2007 er komin út. Í boði verða áhugaverðir fyrirlestrar, sjá: Dagskrá
Öll fréttin
1.8.2007
Félagsmálaráðherra heimsótti Sóltún
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsótti Sóltún í dag ásamt Ragnhildi Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra og Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni sínum. Þau kynntu sér starfsemi heimilisins og heilsuðu uppá á íbúa og starfsfólk.
Öll fréttin
11.7.2007
Jazzkvintettinn Tepokar með útitónleika í Sóltúni
Jazzkvintettinn Tepokar stóðu fyrir útitónleikum fyrir íbúa og starfsfólk Sóltúns í dag. Veðrið var frábært og tónlistin ómaði, setið var á öllum svölum og í garðinum.svipmyndir
Öll fréttin
3.7.2007
Grillað í góða veðrinu
Slegið var upp grillveislu í Sóltúnsgarðinum í frábæru júlí veðri. Boðið var uppá marinerað lambajöt, sumarsalat, kartöflusalat og íspinna í eftirrétt.svipmyndir
Öll fréttin
30.6.2007
Ríkisendurskoðun með úrtakskönnun
Ríkisenurskoðun framkvæmir úrtakskönnun í Sóltúni þessa dagana. Áður hefur Ríkisendurskoðun framkvæmt tvær stjórnsýsluskoðanir á samningum við Sóltún og á starfsemi heimilisins.
Öll fréttin
13.6.2007
Kvennahlaup ÍSÍ og Sóltúns 2007
Konur í Sóltúni tóku í annað sinn þátt í kvennahlaupi ÍSÍ. Formlega voru 38 skráðir til þátttöku en 74 fóru hins vegar hlaupið, og að sjálfsögðu var heimilishundurinn Stemma með. Elsti þátttakandinn var 97 ára og langömmubarn hennar 5 ára var sú yngsta. Þær voru báðar að fara hlaupið í fyrsta sinn. Starfsfólk og ættingjar óku þeim sem voru í hjólastólum. Karlar tóku á móti og afhentu verðlaunapening fyrir þátttökuna.Í samkomusalnum tróð síðan upp Jazzkvintettinn Tepokar. Þetta var frábær dagur. myndir
Öll fréttin
21.5.2007
Kartöflurnar settar niður í Sóltúnsgarðinum
Íbúar Sóltúns fengu góða heimsókn þegar krakkarnir úr Laugarnesskóla komu í heimsókn og hjálpuðu til við að setja niður kartöflur.svipmyndir
Öll fréttin
18.5.2007
Norskir dagar í Sóltúni 16-17.maí 2007
Sóltún stóð fyrir norskum dögum 16.-17.maí. Húsið var skreytt að norskum hætti og norska fánanum flaggað.Garðar Cortes og óperukórinn söng með íbúum í samkomusalnum.Norski sendiherrann Guttorm Vik heiðraði íbúa Sóltúns með því að koma við og taka lagið með fólkinu.Á uppstigningardag og þjóðhátíðardegi Norðmanna var norsk/íslensk guðþjónusta í samkomusalnum. Sr.Björgvin Snorrason þjónaði ásamt Jóni Jóhannssyni djákna.Einsöngvari var Elva Lind Þorsteinsdóttir og undirleikari Katrín Brynjólfsdóttir. Guðjón Snorri Björgvinsson flutti ritningalestur.
Öll fréttin
4.5.2007
Óvissuferð starfsfólks 4.maí
Starfsmannafélagið STÖLD stóð fyrir óvissuferð í framhaldi af aðalfundi þann 4.maí síðastliðinn. Þema ferðarinnar var rautt. Hitað var upp með danskennslu og síðan haldið í siglingu um sundin blá. Heilsað var uppá birgja sem tóku vel á móti hópnum með fræðslu og veitingum. Sóltún bauð síðan upp á grillveislu í Garðaholti. Þar var spáð í fólk, sungið og skemmt sér vel fram á nótt.myndir
Öll fréttin
1.5.2007
Sóltún rannsóknarefni erlends háskóla
Hugmyndafræði og mannauðsstjórnun í Sóltúni hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Tveir prófessorar í hjúkrun þær Ann Bossen og Janet Specht hafa heimsótt Sóltún í tvígang, fyrst árið 2006 og aftur 2007. Í framhaldi af því ákvaðu þær í samstarfi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Sóltún að vinna rannsóknarverkefni um efnið, þar sem þær telja að það eigi erindi til annarra.rannsakendahópurinn
Öll fréttin
10.4.2007
Stjórnmálaflokkar kynna stefnuskrár
Utankjörfundaatkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga verður í Sóltúni 2. maí kl. 16-18. Stjórnmálaflokkar kynna stefnuskrá sína og heilsa uppá íbúa og starfsfólk sem hér segir:
Öll fréttin
20.3.2007
Nemendur frá Pace University heimsækja Sóltún
Í nokkur ár hafa nemendur komið frá Pace University, New York í námsheimsókn í Sóltún ásamt David N. Ekstrom kennara sínum.sjá mynd þakkarbréf
Öll fréttin
14.3.2007
1.tölublað 2007. 6 árgangur
Komið er út nýtt fréttabréf Sóltúns 1.tbl.2007
Öll fréttin
23.2.2007
Sóltún tók þátt í vetrarhátíð í Reykjavík
Boðið var upp á góukaffi í samkomusalnum í tilefni að vetrarhátíð í Reykjavík. Ekki færri en 1000 rjómapönnukökur voru bakaðar og ilmurinn fyllti húsið. Yfir 40 manna kór eldri borgara í Gerðubergi söng fyrir íbúa og starfsfólk undir stjórn Kára Friðrikssonar í samkomusalnum. Með þeim í för var Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður og Guðrún Kristjánsdóttir borgarstjórafrú.
Öll fréttin
10.2.2007
Íbúar Sóltúns styrkja ABC barnahjálpina
Handverkshópur iðjuþjálfunardeildar í Sóltúni gaf ABC barnahjálp ágóða af jólasölu handverksmuna síðastliðinna tveggja ára. Upphæðin nam 40.000.- kr.og valdi hópurinn að framlagið skyldi notað til uppbyggingar á heimavist og kojum fyrir 4 stúlkur í Úganda, en þar eru ungar stúlkur sem ekki hafa öruggt skjól í mikilli áhættu að smitast af alnæmi.
Öll fréttin
9.2.2007
Hreinlæti og öryggi haldast í hendur
Yfirskrift árlegrar þemaviku í Sóltúni sem hefst um helgina er ,,Hreinlæti og örugg heilbrigðisþjónusta haldast í hendur".Unnið verður með fræðslu og vitunareflingu um mikilvægi forvarna í daglegu starfi. Á hverjum degi verður lögð áhersla á mikilvægi ákveðinna þátta s.s. handþvottar, byltuvarna, umgengni við lyf og öryggi í lyfjagjöf, sýkingavarnir og umgengni við matvæli.
Öll fréttin
8.1.2007
5. ára starfsafmæli fagnað í Sóltúni
Þann 7. janúar fögnuðu íbúar, aðstandendur og starfsfólk 5 ára starfsafmæli Sóltúns. Yfir eitt hundrað manns komu saman til hátíðarguðþjónustu í samkomusalnum. Þeir sem veikir voru og treystu sér ekki í salinn nutu stundarinnar með því að fylgjast með í innra sjónvarpskerfi hússins.Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt prófasti Jóni Dalbú Hrjóbjartsyni, sóknarpresti Hildi Eir Bolladóttur og Jóni Jóhannssyni djákna Sóltúns. Ávarp flutti Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri Sóltúns.Kvartett Þorvaldar Þorvaldssonar söng undir píanóleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Í framhaldi af altarisgöngu var boðið til afmæliskaffisamsætis.svipmyndir
Öll fréttin
6.1.2007
Sóltún lánsamt í starfsmannamálum
Fá upphafi starfs hefur Sóltún verið afar lánsamt í starfsmannamálum. Hingað hefur valist umhyggjusamt og reynslumikið starfsfólk sem leitt hefur hið daglega starf, hjúkrun, þjálfun, sálgæslu og alla meðferð er snýr að íbúunum. Í stoðþjónustu hefur tryggðin ekki verið síðri og er það sterkur hópur sem annast eldhúsrekstur, ræstingu og húsumsjón. Mannauðurinn er helsti fjársjóður íbúanna og starfseminnar, árið 2006 mældist starfsmannavelta aðeins 16,7% sem er mjög góður árangur ekki síst í ljósi þenslu í samfélaginu.
Öll fréttin
3.1.2007
Sóltún fagnar 5 ára starfsafmæli 7.janúar 2007
Á sunnudaginn kemur eru 5 ár frá opnun hjúkrunarheimilisins að Sóltúni. Starfsemin hefur verið farsæl og hefur eftirspurn eftir hjúkrun og búsetu verið mikil. Starfsfólk hefur laðast að þeirri hugmyndafræði og vinnuumhverfi sem hér er og hefur á þessum 5 árum ekki skort starfsfólk til starfa þrátt fyrir þennslu í samfélaginu. Haldið verður uppá daginn með hátíðarguðþjónustu og messukaffi.
Öll fréttin
21.12.2006
Jóla- og áramótamatseðill Sóltúns
Komin er úr jóla- og áramótamatseðill Sóltúns jóla- og áramótamatseðill
Öll fréttin
28.11.2006
Aðventudagskráin gefin út
Í fjórða tölublaði fréttabréfs Sóltúns er að finna aðventudagskrána, en að venju er mikið um að vera í Sóltúni. Jólahlaðborð, lesið úr jólabókum, tónlist, góðar heimsóknir og bæjarferðir eru meðal þess sem er á dagskrá. 4.tölublað
Öll fréttin
27.11.2006
Dagskrá símenntunar 2007 komin út
Fræðslunefnd Sóltúns hefur gefið út dagskrá símenntunar fyrir vetur og vor 2007. Fræðslunefndina skipa Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri á 2. hæð, Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir sjúkraþjálfari og Jón Jóhannsson djákni.Dagskráin er mótuð í samræmi við þarfagreiningu og óskir starfsfólks, íbúa og aðstandenda hverju sinni.Fræðslufundirnir eru á miðvikudögum kl. 13:30 í fræðslusal og eru opnir íbúum, starfsfólki og aðstandendum. Dagskrá símenntunar 2007
Öll fréttin
23.10.2006
Slátur tekið í 5.sinn í Sóltúni
Að taka slátur er gamall siður sem við er haldið í Sóltúni.Allt frá því að Sóltún opnaði árið 2002 hefur verið tekið slátur þar sem íbúar og starfsfólk vinna saman í sláturgerðinni.myndir
Öll fréttin
19.10.2006
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra í heimsókn
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti Sóltún ásamt Vilborgu Ingólfsdóttur skrifstofustjóra öldrunarmála í heilbrigðisráðuneytinu. Áttu þær fund með Jóhanni Óla Guðmundssyni stjórnarformanni og Önnu Birnu Jensdóttur framkvæmdastjóra. Jafnframt heilsuðu þær upp á íbúa og starfsfólk og kynntu sér aðbúnað.myndir frá heimsókninni
Öll fréttin
10.10.2006
Öldrunarráð Rogaland fylkeskommune í heimsókn
Félag eldri borgara í Reykjavík heimsækir Sóltún í dag með öldrunarráði Rogaland fykleskommune í Noregi til að kynna sér starfsemina og aðbúnað.
Öll fréttin
9.10.2006
Færeyskir dagar heppnuðust vel
Íbúar og starfsfólk í Sóltúni hélt færeyska daga 21.-22.september síðastliðinn. Húsið var skreytt með færeyska fánanum og skjaldarmerki. Matseðilinn var færeyskur og fékkst góð liðveisla frá Færeyingafélaginu á Íslandi við að setja hann saman og lána uppskriftir. Haldin var myndasýning sem sýndi land og þjóð og sagt var frá náttúru eyjanna og menningu. Stórmyndin ,,Barbara" eftir sögu Jörgen-Frantz Jacobsen var sýnt í tveimur hlutum í samkomusal. Myndin fjallaði um prestekkjuna Barböru sem samtímis heillaði og hneykslaði samfélagið í Færeyjum um 1700. Eins og siður er í Fjáreyjum, þá voru kindur mættar í Sóltúns garðinn íbúum og starfsfólki til mikillar gleði og streymdu endurminningar fram við það tækifæri, enda margir íbúar uppaldir í sveit á árum áður.
Öll fréttin
15.9.2006
Færeyskir dagar í Sóltúni 21.- 22.september
Með færeyskum dögum ætla íbúar og starfsfólk Sóltúns að kynna sér menningu frændþjóðar okkar í Færeyjum. Sjá nánari dagskrá í nýjasta tölublaði fréttabréfsins3.tölublað 2006
Öll fréttin
14.9.2006
Heimsókn frá Euro-diakonia samtökunum
Í dag, heimsótti Sóltún, Heidi Paakjaer Martinussen framkvæmdastjóri evrópsku kærleikssamtakanna Eurodiakonia.
Öll fréttin
5.9.2006
Norðmenn í námsheimsókn í Sóltúni
Tveir hópar norðmanna voru í heimsókn í Sóltúni í vikunni. Frá Sandness kommune komu hjúkrunarfræðingar frá hjúkrunarheimilum og heimahjúkrun að kynna sér hugmyndafræði og starfssemi Sóltúns. Ennfremur komu tveir hjúkrunarfræðingar frá Félagi öldrunarhjúkrunarfræðinga í Noregi.
Öll fréttin
23.8.2006
1, uppskerudagur
Í okkar fallega garði hefur gróðurinn í sumar sprottið sem aldrei fyrr og er 1.uppskerudagur fyrirhugaður á morgun fimmtudag 24.ágúst (ef veður leyfir). Fyrir hádegi reynum við að ná inn sem mestu af rifsberjum/rababara. Allir sem vettlingi geta valdið eru velkomnir til aðstoðar, því af nógu er að taka. Eftir hádegi reiknum við með að vinna úr uppskerunni (sulta) í kaffiteríunni og enn óskum við eftir áhugasömum, jafnvel þótt aðeins sé til að dást að uppskerunni.
Öll fréttin
15.8.2006
Dagskrá símenntunar fyrir haustið 2006
Nú er fræðslunefnd búin að setja saman dagskrá fyrir fræðsluna í haust (Dagskrá). Hún verður eins og áður á miðvikudögum kl. 13:30. Dagskráin byrjar 27. september en viku fyrr eða 20. september verður fræðsludagur starfsmanna. Þá verður lengri dagskrá með efni sem er sérsniðið að starfsmönnum, gott kaffi, viðurkenningaskjöl afhent o.fl. Endilega takið daginn frá. Dagskráin verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Öll fréttin
20.7.2006
Garðveisla í Sóltúni
Sóltúnsgarðurinn býður upp á góða aðstöðu til útiveru. Í góða veðrinu var slegið upp garðveislu með litlum fyrirvara. Grillað og snætt úti. Aðalheiður Þorsteinsdóttir spilaði á píanóið og stjórnaði söng.sjá myndir
Öll fréttin
29.6.2006
Jazz kvartettinn Tepoki skemmti íbúum Sóltúns
Ungir tónlistarmenn komu í skemmtilega heimsókn í Sóltún og spiluðu jazz fyrir íbúa og starfsfólk við góðar undirtektir.sjá myndir
Öll fréttin
22.6.2006
Frábær grillveisla
Í blíðviðrinu var slegin upp grillveisla, Ólafur B. Ólafsson harmonikkuleikari skemmti.sjá myndir
Öll fréttin
8.6.2006
40 konur tóku þátt í kvennahlaupi
40 konur á aldursbilinu, yngst 9 ára og elst 98 ára fóru kvennahlaup ÍSÍ og Sóltúns í ágætu veðri í dag. Á leiðarenda biðu herrar sem afhentu stoltum konum viðurkenningarpening hlaupsins Myndir af hópnum
Öll fréttin
9.5.2006
Nýtt fréttabréf er komið út
Í fréttabréfinu er greint frá Vorgleði íbúa, heilsueflingarmánuði starfsfólks og kosningum til sveitarstjórnar 2.tbl.2006
Öll fréttin
28.4.2006
Heilsuefling starfsfólks
Að venju stendur Sóltún fyrir heilsueflingu í maí mánuði fyrir starfsfólk Sóltúns. Boðið er upp á fjölbreytt prógramm Dagskrá heilsueflingar og fjölbreytt og heilsusamlegt fæði og fræðslu í kaffiteríu Matseðlar í kaffiteríu
Öll fréttin
5.4.2006
Komið er út nýtt fréttabréf
Nýtt fréttabréf segir m.a. frá breskum degi í Sóltúni, stofnun kvæðamannahóps og fleiru 1.tbl.2006.5.árg
Öll fréttin
15.3.2006
Breskur dagur í Sóltúni 15.mars
Íbúar, starfsfólk og aðstandendur gerðu sér glaðan dag þann 15.mars. Húsið var skreytt með bresku fánalitunum og ýmsu sem tengist breskri menningu. Breska sendiráðið lagði á ráðin með okkur um matseðil dagsins. Í morgunverð var ristað brauð með osti og marmelaði, beikon, hrærð egg og pylsur(Toast with chees and marmelade, bacon, scrambled eggs and sausages). Klukkan 11 kom Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari sem stjórnaði fjöldasöng í samkomusalnum. Sungið var m.a. ,,My Bonny is over the ocean", ,,Kvöldið er fagurt" enskt þjóðlag með texta Ingólfs Þorsteinssonar og ,,Í sal hans hátignar".
Öll fréttin
25.2.2006
Píanónemendur úr Suzuki skólanum
Ungir píanónemendur frá Suzuki skólanum komu í Sóltún og spiluðu fyrir íbúa og starfsfólk þann 24.febrúar. Börnin stóðu sig mjög vel og er þeim þakkað kærlega fyrir heimsókninaMyndir frá heimsókninni
Öll fréttin
2.2.2006
Gerðubergskórinn í heimsókn
Gerðubergskórinn heimsótti Sóltún 1.febrúar og gladdi íbúa og starfsfólk með söng sínum. Gott samstarf hefur verið með eldri borgurum í Gerðubergi allt frá því að unnið var að opnun heimilisins. Reglulega njótum við heimsókna þeirra okkur til skemmtunar. Boðið var upp á nýbakaðar vöfflur með kaffinuMyndir
Öll fréttin
21.1.2006
Glæsilegt þorrablót í Sóltúni
Á bóndadaginn var haldið glæsilegt þorrablót í Sóltúni. Íbúar og gestir þeirra nutu þorramatar sem borin var fram í trogum ásamt hákarli og brennivíni að íslenslum sið. Boðið var uppá innanhúss skemmtiatriði og fór Þórhallur Guttormsson þar fremstur í flokki. Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona ásamt Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanóleikara héldu tónleika í samkomusalnum að borðhaldi loknu og stjórnuðu samsöng. Kvöldið var 5 stjörnu að mati þátttakenda.
Öll fréttin
12.1.2006
Fríðuhúskórinn í heimsókn
Kór dvalargesta í Fríðuhúsi heimsóttu íbúa Sóltúns fimmtudaginn 12.janúar. Skemmtu þeir íbúum með söng og píanóleik í samkomusalnum og eru þeim færðar kærar þakkir fyrir.
Öll fréttin
9.1.2006
Þingflokkur Framsóknarflokksins heimsótti Sóltún
Nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins kynntu sér starfsemi Sóltúns í dag og heilsuð upp á íbúa og starfsfólk. Í hópnum voru Guðni Ágústsson landbúnaðráðherra og þingmennirnir Magnús Stefánsson, Dagný Jónsdóttir og Kristinn H. Gunnarsson.
Öll fréttin
7.1.2006
Sóltún fagnar 4 ára starfsafmæli
Þann 7. janúar 2002 opnaði hjúkrunarheimilið Sóltún og hefur því starfað í 4 ár. Starfsemin hefur einkennst af mikilli uppbyggingu á innra starfi og góðum árangri. Gæðateymi eru starfandi í öllum helstu viðfangsefnum hjúkrunar og þjálfunar, góður árangur hefur náðst af því starfi. Stöðugleiki er í öflugum hópi starfsfólks og er það lykillinn að góðum árangri. Eftirspurn eftir þjónustu er sífellt vaxandi og mikil þörf eftir að komast í hjúkrunarrými. Sóltún hefur því lagt fram umsókn um rekstrarleyfi til heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytis fyrir 109 hjúkrunarrýmum til viðbótar á lóðinni Sóltún 2-4.
Öll fréttin
24.12.2005
Gleðileg jól
Sóltún óskar íbúum,aðstandendum, starfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og blessunar á nýju ár. Árið sem er að líða hefur verið annasamt en gott ár í starfsemi heimilisins sem hefur átt því láni að fagna að hafa gott starfsfólk og vel mannað þrátt fyrir þenslu í þjóðfélaginu. Fyrir það erum við þakklát því fátt er mikilvægara heimilisfólkinu sem er háð umönnun annarra en stöðugleiki í hinum góða hópi starfsfólks.
Öll fréttin
23.12.2005
Teppi gefin í Sóltún
Helga Helgadóttir og Guðrún Jónsdóttir úr Gerðubergi komu færandi hendi þegar þær gáfu heimilinu hekluð teppi og mynd. Ekki er vafi á að teppin munu ylja og gleðja heimilisfólkið. Sjá frétt sem birtist í Morgunblaðinu í morgun Ekki henda garninu
Öll fréttin
24.11.2005
Aðventudagskrá í Sóltúni
Að venju verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á aðventunni fyrir íbúa, aðstandendur og starfsfólk Sóltúns eins og sést á yfirlitinuAðventudagskrá
Öll fréttin
10.11.2005
Danskir dagar í Sóltúni
Síðastliðinn þriðjudag héldum við starfsfólk og íbúar danskan dag.Tilgangurinn var að breyta til, skemmta okkur og auka á lífsgleði okkar allra. Skreytt var með danska fánanum. Við byrjuðum daginn með að fá rúnstykki með spægipylsu. Síðan var ýmislegt á dagskránni s.s. hlustað á danska tónlist og sungið. Einnig var ýmiss upplestur, fróðleikur um Danmörk, ævintýri um HC Andersen að ógleymdu spjalli um konungsfjölskylduna.
Öll fréttin
7.11.2005
Í boði Laugarnessafnaðar
Allt frá því að Sóltún opnaði hefur Lauganessöfnuður boðið íbúum Sóltúns og fjölskyldum þeirra í guðsþjónustu í Lauganeskirkju á Allra heilagra messu og í kaffiveitingar á eftir.
Öll fréttin
7.10.2005
Haustfagnaður í Sóltúni
Þann 6.október héldu íbúar, aðstandendur og starfsfólk haustfagnað í Sóltúni. Fagnaðurinn hófst með borðhaldi þar sem um 160 manns nutu hátíðarmatseðils úr Sóltúns-eldhúsinu. Að því loknu var komið saman í samkomusalnum þar sem kráarstemmning ríkti. Bergþór Pálsson söngvari kom og söng nokkur lög við undirleik Þorsteins Gauta. svipmyndir
Öll fréttin
5.10.2005
Flutningur foreldra með heilabilun á hjúkrunarheim
Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri á 2.hæð Sóltúns varði í gær meistararitgerð sína við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.Heiti ritgerðarinnar er: Reynsla dætra af flutningi foreldra sem þjást af heilabilun á hjúkrunarheimili.Rannsóknin var framkvæmd á fimm hjúkrunarheimilum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og var Sóltún undanskilið þar sem J.Sigurveig starfar hér. Öldungur hf., óskar Júlíönu Sigurveigu til hamingju með áfangannÚtdráttur rannsóknarinnar
Öll fréttin
1.10.2005
Gjöf frá Thorvaldsen félaginu
Þann 29. september komu félagskonur í Thorvaldsenfélaginu og kynntu sér starfsemi hjúkrunarheimilisins Sóltúns. Færðu þær heimilinu óskir um farsælt starf og gáfu íbúum málverkið ,,Berjaaldan" að gjöf.myndir
Öll fréttin
30.9.2005
Nýtt fréttabréf komið út
Öll fréttin
1.9.2005
Dagskrá fræðslufunda haustið 2005
Fræðslunefnd Sóltúns hefur sent frá sér dagskrá fræðslufunda fyrir haustið 2005. Spennandi fræðsluerindi eru í boði og er starfsfólk, íbúar og aðstandendur hvattir til að nýta sér þau.Dagskrá fræðsluerinda
Öll fréttin
27.8.2005
Fjölskyldudagur starfsmanna
Starfsmannafélagið STÖLD stóð fyrir fjölskyldudegi laugardaginn 27.08.2005. Ferðin hófst með því að tveggja hæða strætisvagn sótti hópinn í Sóltún og fór með hann í skoðunarferð um Reykjavík. Veðrið var sérstaklega gott og leiðsögnin fróðleg. Síðan var haldið í Nauthólsvík þar sem fólk naut veðurblíðunnar við að svamla í volgu vatninu, leika sér og spjalla saman. Grillaðir voru hamborgarar og pylsur.Myndir frá fjölskyldudeginum
Öll fréttin
13.7.2005
Nýtt fréttabréf komið út
Komið er út nýtt fréttabréf þar sem meðal annars er að finna skemmtilegar fréttir frá gróðurhóp Sóltúns2.tbl.2005
Öll fréttin
29.6.2005
Ný stjórn Öldungs hf.
Á aðalfundi 29.júní lét Hannes Guðmundsson af stjórnarsetu í Öldungi hf., eftir farsælt starf. Ný stjórn var skipuð Jóhanni Óla Guðmundssyni, Ólafi G. Einarssyni, Pálma Matthíassyni,Grími Sæmundssen og Stefáni Friðfinnssyni.
Öll fréttin
14.6.2005
Grillveisla í sólskinsveðri
Þann 2.júní var voru sumarblómin gróðursett í Sóltúni. Síðan var slegið upp grillveislu í hádeginu. Á matseðlinum var marínerað lambakjöt með kartöflugratíni, kaldri sósu og hrásalati.Íspinni var í eftirrétt. Þorvaldur Björnsson harmonikkuleikari spilaði og Guðmunda Steingrímsdóttir stjórnaði fjöldasöng.Myndir frá grillveislunni
Öll fréttin
7.6.2005
Kartöflurnar settar niður
Gróðurhópurinn setti niður kartöflur í Sóltúnsgarðinum með góðri aðstoð barna úr Laugarnesskóla. Boðið var upp á grillaðar pylsur á eftir. Myndir
Öll fréttin
27.4.2005
Ítalskir dagar í Sóltúni
Ítölsk stemning sveif yfir 1. hæðinni dagana 19. og 20. apríl síðastliðinn og var öll hæðin skreytt af þessu tilefni.
Öll fréttin
18.4.2005
Vorfagnaður í Sóltúni
Íbúar og gestir þeirra fögnuðu vorkomunni ásamt starfsfólki Sóltúns fimmtudagskvöldið 14.apríl. Á matseðlinum var kalkúnn með heslihnetusósu og kartöflugratin og ómótstæðileg súkkulaðiterta með rjómatoppi og jarðaberjum í eftirrétt. Ólafur B. Ólafsson skemmti með harmonikkuspili, söng og píanaóundirleik. Hildur Vala Einarsdóttir idol stjarna kom og söng sig inn í hjörtu fólks. Þema kvöldsins voru hattar eða höfuðföt að eigin vali og kenndi þar margra skemmtilegra höfuðfata.
Öll fréttin
12.4.2005
Nýtt rafmagnshjól í sjúkraþjálfun
Sóltún hefur keypt nýtt og mjög tæknivætt rafmagnshjól Motomed Viva til notkunar í sjúkraþjálfun. Tækið eykur möguleika þeirra sem ekki geta notað hefðbundið hjól til þjálfunar og hentar því vel t.d. minnisskertu fólki og þeim sem ekki geta stýrt hjóli sjálfir. Hjólið vinnur gegn stífni (spasma) í vöðvum, samhæfir vöðvakraft og mælir árangur þjálfunar. Tækið nær einnig að þjálfa veikustu vöðvana og hefur sjálfvirkan öryggisstoppara. Tækið hefur hlotið góðar viðtökur hjá íbúum. Söluaðili er Eirberg.
Öll fréttin
23.3.2005
Höfuðbeina- og spjaldhryggjajöfnun
Í febrúar var byrjað að bjóða íbúum Sóltúns upp á höfuðbeina- og spjaldhryggjajöfnun. Tilgangur meðferðarinnar er að losa spennu sem veldur verkjum og kvíða og stuðla að betri líðan og jafnvægi. Meðferðin hefur mælst vel fyrir af íbúum og er komin biðlisti. Helga Björg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari veitir meðferðina.
Öll fréttin
23.3.2005
Tónlistarmeðferð
Tónlistarmeðferð íbúa með heilabilun hefur verið virkur þáttur í þjónustu Sóltúns. Tilgangur tónlistarmeðferðar er að vinna gegn einmanaleika, vonleysi og aðgerðaleysi. Draga úr kvíða og óróleika, örva mál og efla hæfni einstaklings til að velja. Stuðla að betri líðan og jafnvægi,og efla félagslega samveru og lífsgæði.Tónlist höfðar mjög til fólks með minnissjúkdóma, sérstaklega þegar hún er í samræmi við tónlistarsmekk viðkomandi. Guðríður Björnsdóttir þroskaþjálfi hefur umsjón með meðferðinni.
Öll fréttin
4.2.2005
52 starfsmenn fá starfsaldursviðurkenningu
Í kaffisamsæti 3. febrúar færði Sóltún þeim starfsmönnum sem hafa starfað frá opnun Sóltúns s.l. 3 ár, viðurkenningu. Stöðugleiki í starfsmannahaldi hefur mikla þýðingu fyrir gæði þjónustunnar og hefur heimilið verið lánsamt í þeim efnum. Starfsmannavelta var 13% árið 2003 og 18% árið 2004. Myndir frá afhendingunni
Öll fréttin
26.1.2005
Kb-banki með málverkasýningu í Sóltúni
Kb-banki styður við starfið í Sóltúni með málverkasýningu. Sýnd eru listaverk eftir íslenska listamenn. Almenn ánægja er með framtakið hjá íbúum og starfsfólki og fær Kb-banki kærar þakkir fyrir.
Öll fréttin
17.12.2004
Viðurkenningar veittar í jólaboði starfsfólks
Nú líður að því að fjórða starfsár Sóltúns hefjist þann 7. janúar 2005. Sjötíu starfsmenn hafa starfað í Sóltúni frá opnun og tíu til viðbótar sem hófu störf við undirbúning að opnun heimilisins seinustu mánuði ársins 2001. Í árlegu jólaboði starfsfólks þann 17.desember voru þeim veittar viðurkenningar. Fjórir starfsmenn luku námi þann 17. desember; þær Valdís Oddgeirsdóttir og Guðmunda Steingrímsdóttir luku framhaldsnámi fyrir sjúkraliða í öldrunarhjúkrun. Aðalbjörg Karlsdóttir lauk sjúkraliðanámi og Jóhannes S. Soffíuson matartækninámi.Myndir frá jólaboðinu
Öll fréttin
1.12.2004
Sótt um leyfi fyrir viðbótar hjúkrunarrýmum
Sóltún hefur sótt um framkvæmdar- og rekstrarleyfi til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis til að stækka hjúkrunarheimilið að Sóltúni 2 og reisa fjögurra hæða nýbyggingu fyrir hjúkrunartengda þjónustu á Sóltúni 4. Tengibygging verður milli húsanna. Framtíðaráformin voru til umræðu á íbúaþingi 19.nóvember síðastliðin, en starfsfólk Sóltúns hefur unnið að þessum tillögum í 7 framtíðarhópum. Tillögurnar fengu góðan hljómgrunn meðal íbúa. Ívar Örn Guðmundsson er arkitekt að nýbyggingunni.Mikill skortur er á hjúkrunarrýmum í Reykjavík og eftirspurn til að komast að í Sóltúni.
Öll fréttin
11.11.2004
Breyting á deiliskipulagi í Sóltúni og Ármannsreit
Nú er til kynningar á vegum skipulags-og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar breyting á deiliskipulagi í Sóltúni. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir hækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns um eina hæð og fjögurra hæða nýbyggingu fyrir hjúkrunartengda þjónustu á lóðinni Sóltún 4, ásamt einnar hæðar tengibyggingu milli húsanna.Tengibyggingin er ætluð fyrir íbúa beggja heimilanna sem og þjónustuhús fyrir íbúa hverfisinsTillagan
Öll fréttin
8.11.2004
Íbúar Sóltúns í Laugarneskirkju
Íbúar í Sóltúni, aðstandendur þeirra og starfsfólk (yfir 50 manns) sótti sóknarkirkjuna í Laugarnesi heim á allra heilagra messu sunnudaginn 7. nóvember. Stefán Birnir Stefánsson fermingadrengur úr Grafarvogskirkjusókn spilaði forspil og eftirspil. Sóknarpresturinn séra Bjarni Karlsson ásam djáknum Sóltúns, þeim Jóhönnu K. Guðmundsdóttur og Jóni Jóhannssyni þjónuðu fyrir altari.
Öll fréttin
3.11.2004
Árshátíð starfsfólks í Skíðaskálanum 30.október
Á árshátíðina mættu 110 manns og skemmtu sér hið besta. Umsjón var í höndum starfsfólks á 1. hæð. Öldungur hf. bauð upp á fordrykk í Sóltúni og síðan var haldið með rútum í Skíðaskálann. Veislustjóri var Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur og hjómsveit hússinns spilaði undir dansi. Söngmeyjar úr Graduale Nobili hrifu alla með söng, en tvær þeirra starfa í Sóltúni. Glæsilegir happdrættisvinningar völdu lukku. Matseðillinn státaði af sjávarréttasúpu, heilsteiktu lambalæri með rjómapiparsósu og í eftirrétt var heit súkkulaðiterta með vanilluís.Glæsilegur hópur árshátíðargesta dansaði fram á rauða nótt.Myndir frá árshátíðinni
Öll fréttin
20.10.2004
Haustfagnaður haldin með myndarbrag
Íbúar, aðstandendur og starfsfólk fagnaði hausti með fagnaði þann 14. október síðastliðinn. Eitt hundrað og sjötíu manns tóku þátt í borðhaldi þar sem kjúklingabringur með furuhnetusveppasósu og volg eplakaka með þeyttum rjóma léku aðalhlutverkið. Á eftir flutti Vilborg Tryggvadóttir sannsögla frásögn og kvæði. Ingibjörg Marteinsdóttir söngkona flutti söngprógram ásamt Einari píanóleikara og söngvara. Vinabandið stýrði síðan söng og dansi. Vinabandið skemmti
Öll fréttin
24.9.2004
Fyrsta golfmót starfsmanna í Sóltúni
Golf nýtur vaxandi vinsælda og tóku nokkrir starfsmenn í Sóltúni sig saman og héldu golfmót á Bakkakotsvelli þann 13. september. Þrátt fyrir nokkra háforgjafarmenn tókst mótið vel og spilað var í blíðskapar veðri. Ákveðið hefur verið að halda tvö mót á næsta ári.Myndir frá golfmótinu
Öll fréttin
14.9.2004
Endurgreiðslu virðisaukaskatts hafnað
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu Öldungs hf. um endurgreiðslu virðisaukaskatts af aðkeyptri þjónustu. Önnur hjúkrunarheimili fá virðisaukaskatt af aðkeyptri þjónustu endurgreiddan óháð því hvort um sjálfseignastofnanir, fjölskyldufyrirtæki eða heimili í eigu opinberra aðila sé að ræða.
Öll fréttin
8.9.2004
Finnar í námsheimsókn í Sóltúni
Helstu forsvarsmenn hjúkrunarheimila sem rekin eru af City of Helsinki, Social Services & Health Department komu í námsheimsókn í Sóltún ásamt verkefnastjórum frá finnsku rannóknarstofnuninni STAKES. Finnar hafa unnið að innleiðslu RAI matskerfisins og komu til að kynna sér notkun þess í daglegu starfi hjúkrunarheimilisins. Þeir höfðu sérstakan áhuga á notkun gæðavísa, og mælingum á árangri í hjúkrun.
Öll fréttin
7.9.2004
Norðmenn í námsheimsókn í Sóltúni
Á vegum KPL tryggingafélagsins í Noregi komu 58 forsvarsmenn í öldrunar- og annarri heilbrigðisþjónustu víðs vegar í Noregi í námsheimsókn í Sóltún. Hópurinn kynnti sér sérstaklega gæðakerfi Sóltúns, notkun á RAI-mælitækinu, gæðavísum og hvernig unnið er að gæðaumbótum. Ennfremur kynnti hópurinn sér stefnumiðað árangursmat heimilisins og notkun skorkorts til að ná árangursmarmkiðum Sóltúns.
Öll fréttin
2.9.2004
Dagskrá fyrir fræðslufundi haust og vetur 2004
Fræðslunefnd hefur sent frá sér áætlun um fræðslufundi fyrir haustið og veturinn 2004. Fræðslan er alla miðvikudaga kl. 13.30 í fræðslusal og er hún ætluð starfsfólki, íbúum og aðstandendum.Fræðsludagskrá 2004
Öll fréttin
9.8.2004
Námsheimsókn frá Hawai eyju í Kyrrahafi
Prófesor Charon A. Pierson frá Department of Geriatric Medicine, Univeristy of Honululu, Hawai heimsótti Sóltún ásamt föruneyti í fylgd Dr. Margrétar Gústafsdóttur dósents við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.Hópurinn kynnti sér sérstaklega hvernig húsnæði er hannað til að mæta hugmyndafræði Sóltúns og þróunar mönnunarmódels til að ná hámarksárangri í þjónustu við íbúa.
Öll fréttin
4.8.2004
Nýtt fréttabréf komið út
Komið er út 2.tölublað 3.árgangur af fréttabréfi Sóltúns. Fréttabréfið gefur innsýn í sumarstarfið.2.tbl.2004
Öll fréttin
16.7.2004
Breytingar á stjórn Öldungs hf.
Á hluthafafundi nýlega urðu breytingar í stjórn Öldungs hf. Fulltrúar eigenda skipa stjórnina: Hannes Guðmundsson stjórnarformaður og Grímur Sæmundsen frá Frumafli hf., og Gunnar Sverrisson frá ÍAV.
Öll fréttin
8.6.2004
Finnar í námsheimsókn í Sóltúni
Stjórnendahópur frá Folkhalsan, Finnlandi kom í námsheimsókn til Sóltúns. Folkhalsan rekur heilbrigðis- og félagsþjónustu víðs vegar í sænskumælandi hluta Finnlands. Hópurinn kynnti sér starfssemi Sóltúns og sérstaklega notkun RAI mælitækisins og gæðakerfi.
Öll fréttin
4.6.2004
Aðalfundur starfsmannafélagsins STÖLD
Aðalfundur STÖLD var haldinn 21. mai 2004. Veittar voru veitingar í boði Sótúns.
Öll fréttin
18.5.2004
Samvinnuverkefni Sóltúns og leikskólans Hofs
Í vetur fór af stað þróunarverkefni milli Sóltúns og leikskólans Hofs í Laugarneshverfi. Þetta verkefni fólst í því að börnin heimsóttu íbúa 2. hæðar Sóltúns.
Öll fréttin
12.5.2004
Vorgleði
Vorgleði Sóltúns var haldin síðastliðið fimmtudagskvöld. Vinabandið, sönghópurinn Blikandi stjörnur og Jóhannes Kristjánsson eftirherma skemmtu. Guðrúnu Jóhannsdóttur var veitt viðurkenning Öldrunarráðs Íslands og Sóltúns fyrir sjálfboðin störf
Öll fréttin
11.5.2004
Fræðslubæklingur um meðferðarmöguleika
Líknarteymi Sóltúns hefur gefið út fræðslubækling um meðferðarmöguleika við lífslok. Tekið er mið af leiðbeiningum Landlæknisembættis um takmörkun meðferðar
Öll fréttin
5.4.2004
Stuðningsteymi kynnir starfsreglur
Á starfsmannafundi 2.apríl kynnti Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir starfsreglur stuðningsteymis Sóltúns Stuðningsteymi
Öll fréttin
2.4.2004
Góugleði
Haldin var góugleði í Sóltúni 25.mars síðastliðinn. Hátíðakvöldverð snæddu 180 manns, íbúar og gestir þeirra, starfsfólk og sjálfboðaliðar. Á matseðlinum var íslenskt lambalæri með kartöflugratín og grænmeti. Á eftir var borin ostakaka og kaffi. Samkoma var í salnum á eftir þar sem Vinabandið spilaði fyrir dansi og söng. Vinabandið fékk viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands og Sóltúns fyrir sjálfboðin störf í þágu aldraðra í Sóltúni 2002-2004 en hljómsveitin kemur reglulega og gleður fólk með söng og hljómslist. Söngkonurnar og systurnar Guðrún Árný Karsdóttir og Soffía Sigríður Karlsdóttir sungu við góðar undirtektir. Ómar Ragnarsson og Haukur Hreiðar undirleikari skemmtu.
Öll fréttin
10.2.2004
Viðurkenningar veittar fyrir sjálfboðin störf
Öldrunarráð Íslands og hjúkrunarheimilið Sóltún veittu viðurkenningar fyrir sjálfboðin störfVinir Sóltúns
Öll fréttin
4.2.2004
Stefnumörkun í starfsmannamálum
Marta Jónsdóttir hjúkrunarstjóri kynnti stefnumörkunarvinnu Sóltúns í jafnréttismálum, fjölskyldumálum og heilsueflingu starfsfólks á fjölmennum fundi 03.02.2004.Neðangreindar stefnur voru samþykktar á fundinum.
Öll fréttin
3.2.2004
Sýkingavarnaáætlun
Sóltún hefur sett fram áætlun í sýkingavörnum. Guðrún Björg Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri kynnti hana á fjölmennum starfsfólksfundi í dag og var hún samþykkt samhljóða.Sýkingavarnaáætlun
Öll fréttin
6.1.2004
Jólaball STÖLD
Starfsmannafélag Sóltúns-Stöld hélt glæsilegt jólaball fyrir börn starfsfólks þann 5. jan s.l. Um 70 manns komu og skemmtu sér við að ganga í kringum jólatré og syngja jólasöngva. Veitingum úr Sóltúnseldhúsinu voru gerð góð skil og að sjálfsögðu fengum við jólasvein í heimsókn með gott í poka.
Öll fréttin
23.12.2003
Gleðilega hátíð
Stjórn og starfsfólk hjúkrunarheimilisins Sóltúns óska landsmönnum gleðilegra jóla og guðs blessunar á nýju ári.
Öll fréttin
8.12.2003
Hæstaréttardómur hjúkrunarfræðingum í vil
Hæstiréttur dæmdi þann 4. desember 2003, í máli Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga gegn hjúkrunarfræðingi í Sóltúni. Forsaga málsins er sú að héraðsdómur viðurkenndi 11. maí 2003, rétt hjúkrunarfræðingsins til að greiða í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga eftir að hafa ráðið sig til Öldungs hf. Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar, sem kvað upp sinn dóm í gær um það að dómur héraðsdóms frá 11. maí 2003 skuli standa.
Öll fréttin
12.11.2003
Ræktunarfréttir 2003-seinni hluti
21. julí. Stillt veður, en rigning allan daginn og kom hún á góðum tíma því að ekki hafði rignt í marga daga. En sólfar verið mikið og mjög hlýtt. Kartöflugrösin orðin með því besta,sem gerist,en rófur og kál ekki eins þroskamikið.
Öll fréttin
28.10.2003
Starfsfólk Sóltúns í námsferð til Danmerkur
Hópur starfsfólks sem starfar að þjónustu við minnisskerta íbúa Sóltúns hélt nýverið í árangursríka námsferð til Danmerkur. Heimsóttu þau m.a. Pilehuset, Lotte hjemmet og Absalons hus. Vel var tekið á móti íslenska hópnum og var hann með kynningu fyrir íbúa og starfsfólk Sóltúns þegar heim kom. Á þessu heimilum voru íbúarnir í hávegum og lögðust allir starfsmenn á eitt óháð stétt um að veita þeim sem besta þjónustu. Námsferðin í myndum
Öll fréttin
17.9.2003
Málþing um missi og aðlögun að breyttum aðstæðum
Sóltún stóð fyrir málþingi um missi og aðlögun að breyttum aðstæðum 17.september. Málþingið var sérstaklega ætlað aðstandendum og starfsfólki. Rúmlega 20 manns sóttu fundinn. Jón Jóhannsson djákni fjallaði um missi, Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir hjúkrunarstjóri kynnti rannsóknir um stuðningshópa og áhrif þeirra, Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir djákni sagði frá reynslu af stuðningshópastarfi fyrir aðstandendur minnissjúkra íbúa í Sóltúni. Gestur fundarins var Guðrún Kristín Þórsdóttir djákni í Áskirkju. Guðrún kynnti stuðningsstarf kirkjunnar og fór sérstaklega í 12 spora kerfið.
Öll fréttin
5.9.2003
Gjafir frá Vinum Sóltúns
Í tilefni af Breiðholtsdeginum sem er í dag 5.september komu vinir Sóltúns í Gerðubergi færandi hendi í Sóltún er þeir færðu heimilinu 13 jólasokka. Einn fyrir hvert sambýli með nafni Sóltúns saumað í. Vinatengsl "Vinir Sóltúns frá Gerðubergi" er þróunarstarf sem á eftir að eflast og styrkjast á komandi tímum og verða öðrum fyrirmynd sagði í kveðjunni frá þeim.
Öll fréttin
18.8.2003
Viðurkenning fyrir fallega lóð
Skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkurborgar hefur veitt hjúkrunarheimilinu Sóltúni viðurkenningu fyrir fallega og vel skipulagða lóð. Vandað hefur verið til við allan yfirborðsfrágang og gróðurval, sem myndar fallega og snyrtilega umgjörð um bygginguna. Útisvæði hjúkrunarheimilisins eru skjólsæl og nýtast vel segir í fréttatilkynningu frá borgaryfirvöldum.
Öll fréttin
17.7.2003
RÆKTUNARFRÉTTIR 2003
15.apríl - Sendar voru í Sóltún, útsæðiskartöflur, sem geymdar höfðu verið í Skipasundi 45 um veturinn. Kartöflurnar voru orðnar mjög spíraðar, of heitt hafði verið í geymslunni, vegna hlýinda um veturinn. Kartöflurnar voru látnar í kæli í Sóltúni.
Öll fréttin
27.6.2003
Hjúkrunarfræðingar í Sóltúni, rétt á aðild í LH
Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 11.júní 2003 eiga hjúkrunarfræðingar í Sóltúni rétt að aðild að Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga.
Öll fréttin
18.6.2003
Ný stjórn starfsmannafélagsins Stöld
Á aðalfundi félagsins var kosin ný stjórn starfsmannafélagsins STÖLD. Stjórnina skipa:
Öll fréttin
14.5.2003
IM-Skorkort í Sóltúni
Sóltún hjúkrunarheimili hefur tekið í notkun IM-Skorkort, og undirrituðu Ragnar Bjartmarz framkvæmdastjóri IM og Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri Öldungs hf. samning þess efnis í gær. Ætlunin með skorkortinu er að fylgja eftir stefnu hjúkrunarheimilisins með markvissum hætti. IM-Skorkort nýtist stjórnendum til að byggja upp og fylgja eftir stefnumótun og markmiðasetningu og veitir aðgengilegum sýn á mælanlegan árangur. Sóltún er fyrst aðila í íslenskri heilbrigðisþjónustu til að taka í notkun IM-Skorkort.
Öll fréttin
7.5.2003
Kosning utan kjörfundar
Kosið var utan kjörfundar fyrir alþingiskosningar þann 10. maí 2003 í Sóltúni í gær 6.maí og nýttu 53% íbúa sér það að kjósa. Undanfarnar vikur hafa frambjóðendur Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Samfylkingar heimsótt íbúa og starfsmenn og kynnt stefnuskrár sínar.
Öll fréttin
14.4.2003
Komið er út nýtt fréttabréf
Nýtt fréttabréf 1. tölublað 2003 er komið út
Öll fréttin
14.3.2003
Ljóðavika
Íbúa- og vinafélagið stóð nýlega fyrir ljóðaviku. Íbúar og starfsmenn völdu sér ljóð og fluttu þau í sínum sambýlum ákveðna stund á hverjum degi vikunnar. Ljóðskáld voru einnig fengin til að lesa ljóð sín. Ljóðin voru síðan rædd og krufin til mergjar. Í lok ljóðavikunnar voru úrvalsljóð vikunnar lesin í samkomusalnum. Á annað hundrað manns tóku þátt í ljóðavikunni sem þótti heppnast vel.
Öll fréttin
29.1.2003
Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Sóltúns
Sjóðnum er ætlað að bæta aðbúnað og afþreyingu íbúa í Sóltúni, veita styrki til námskeiðahalds, útgáfustarfsemi og annars sem tengist íbúum og hugmyndafræði Sóltúns á einn eða annan hátt. Móttaka hjúkrunarheimilisins Sóltúns annast afgreiðslu minningarkortanna í síma 590 6000.
Öll fréttin
24.1.2003
Sjúkraliðanemar í starfsþjálfun
Tólf nemendur í sjúkraliðanámi við Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru nú í starfsþjálfun í Sóltúni. Íbúar og starfsmenn hafa tekið þeim vel og er ánægjulegt að fá svona áhugasamanhóp á heimilið.
Öll fréttin
24.12.2002
Gleðileg Jól
Íbúar, starfsmenn og stjórn Sóltúns óska landsmönnun gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Öll fréttin
1.11.2002
Upplýsingar til aðstandenda
Þeir aðstandendur sem vilja fá sendar auglýsingar um uppákomur í Sóltúni geta fengið auglýsingu senda á tölvupósti. Vinsmlegast hafið samband við móttöku sími 5906000 eða sendið tölvupóst til soltun@soltun.is
Öll fréttin
28.10.2002
Haustfagnaður í Sóltúni
Íbúar,aðstandendur og starfsmenn kvöddu sumar og fögnuðu vetri föstudagskvöldið 25.október s.l. Um það bil 170 manns nutu kvöldverðar saman og skemmtu sér í samkomusalnum að honum loknum. Léttsveit Reykjavíkur söng sig inn í hjörtu fólks undir stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Ungur trúbador Gunnar Örn Heimisson spilaði undir fjöldasöng og Þórður Jónsson flutti vísur eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Öll fréttin
11.10.2002
Námsheimsókn frá Svíþjóð
Hjúkrunarfræðingar frá Nockeby vaardhjem Stokkhólmi í heimsókn í Sóltúni
Öll fréttin
11.10.2002
Haustverkin í Sóltúni
Íbúar og starfsmenn í Sóltúni hafa undanfarnar vikur notið haustverka. Kartöfluuppskeran var góð, og er búið að taka frá í útsæði fyrir næsta vor. Nýuppteknar karföflur með hýði þóttu afbragð með matnum. Vinsælt var að gera rabbabarasultu úr rabbabaranum og þurfti að fá viðbótarrabbabara frá velunnurum til að mæta eftirspurn meðal íbúa. Sultukrukkur voru skreyttar og merktar. Annað grænmeti úr matjurtargarði Sóltúns hefur einnig smakkast vel. Íbúar Sóltúns hafa þessa dagana verið í sláturgerð þar sem reyndar hendur hafa töfrað fram slátur eins og það gerist best.
Öll fréttin
11.9.2002
Símenntunarprógramm Sóltúns
Fræðslunefnd Sóltúns kynnti í dag fræðslufundi vetrarins. Á hverjum miðvikudegi kl. 14.30 eru fræðslufundir fyrir starfsfólk, íbúa og aðstandendur í fræðslusal Sóltúns á 1. hæð. Fræðslufundir eru ein af leiðum Sóltúns til að ná markmiði sínu að vera ávallt í fremstu röð meðal hjúkrunarheimila þar sem haldgóð þekking leiðir störf og þjónustu við íbúa.
Öll fréttin
3.9.2002
Norrænn fundur í Sóltúni
Dagana 4. til 6. september verður norrænn vinnufundur rannsakenda í öldrunarþjónustu á Íslandi. Fundurinn hefst 4. september með 15 manna vinnufundi í fræðslusal Sóltúns þar sem unnið er með rannsóknaverkefni RAI-í bráðaþjónustu, en það er þróun matstækis sem metur heilsufar og umönnunarþarfir aldraðra með bráð veikindi.
Öll fréttin
26.8.2002
Samkeppni um störf í Sóltúni
Mikil eftirspurn er eftir störfum í Sóltúni og er biðlisti í öll störf. Þar á meðal eru 10 umsóknir hjúkrunarfræðinga, 1 frá sjúkraþjálfara, á annan tug í umönnun og nokkrar umsóknir í skrifstofustörf og eldhús.
Öll fréttin
24.8.2002
Mikill áhugi fyrir Sóltúni
Mikill áhugi er fyrir hjúkrunarheimilinu Sóltúni meðal almennings og fagfólks í öldrunarþjónustu. Sóltún getur ekki tekið á móti gestum nema í samráði við íbúa þess, enda um heimili þeirra að ræða og brýnt að gæta persónuverndar og einkalífs þeirra. Heimsóknir stórra hópa getur verið mikið álag og hefur það verið markmið heimilisins að mæta óskum eftir aðstæðum hverju sinni. Helst er tekið á móti stórum hópum í fræðslusal og starfsemin kynnt í máli og myndum. Eftirtaldir hópar hafa komið í heimsókn: Sjúkraðliðanemar frá Fjölbraut í Ármúla, hjúkrunarfræðinemar frá Háskóla Íslands, starfsmenn frá Heilbrigðisstofnun Selfossi, deild forstöðumanna elli og hjúkrunarheimila í FSIÖ, hjúkrunarfræðingar á kjörári á LSH, starfsmenn endurhæfingardeildar LSH, Félagar í Félagi aðstandenda Alzheimersjúklinga, Félag sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu, fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga í FÍH, eldri borgarar í félagsstarfi Neskirkju og Vesturgötu og starfsmenn heimahjúkrunar í Kópavogi. Tveir erlendir hópar hafa komið frá Svíþjóð og einn frá Danmörku, sem og hjúkrunarfræðingar frá USA og Svíþjóð í meistaranámi við Hí og háskólann í Iowa.
Öll fréttin
24.8.2002
Íbúar Sóltúns
Íbúar í Sóltúni eru 92. Þeir koma langflestir frá Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Meðalaldur er yfir áttrætt og er elsti íbúinn 98 ára. Konur eru 67 og 25 karlar. Sex hjón búa í Sóltúni. Íbúar hafa aðlagast nýju heimili með ágætum, þrátt fyrir þá erfiðleika sem óhjákvæmilega eru við að flytja á nýtt heimili af heilsufarsástæðum. Margir þeirra eru mjög veikir og hafa nokkrir þeirra látist frá áramótum. Öðrum hefur farið mikið fram og náð að bæta heilsu og getu. Dæmi eru um að íbúar hafi getað sleppt hjólastól og náð göngugetu á ný. Mikil gróska er í félagsstarfi og eru áhugasvið margvísleg. Í spilaklúbbnum er spilað á þremur borðum vikulega. Gróðurklúbbur hefur sáð fræjum og plantað blómum. Settar hafa verið niður kartöflur og grænmeti og styttist í uppskeruhátíð. Viðgerðarklúbbur hefur verið settur á fót og annast hann minni háttar viðgerðir á starfsmannafatnaði. Aðrir klúbbar eru endurminningahópur, bocchia iðkendur, prjónaklúbbur og listklúbbur.
Öll fréttin
7.8.2002
Heimsókn frá Japan
Prófessor Kazuko Enomoto frá Japan heimsótti Sóltún í fylgd Hrafns Pálssonar hrá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Prófessor Kazuko er í vinasambandi við Íslendinga á sviði félags- og heilbrigðisvísinda.
Öll fréttin
4.4.2002
Starfsmannafélagið STÖLD stofnað í Sóltúni
Starfsmenn stofna með sér starfsmannafélgið STÖLD. Starfsmannafélagið myndar stjórn sem skiptir með sér verkum. Á vegum STÖLD verður m.a. skipuð skemmtinefnd, tilnefndir tveir fulltrúar í öryggisnefnd Sóltúns og tveir fulltrúar í íbúa- og vinaráð. Íbúa og vinaráð á síðan fulltrúa í stjórn Sóltúns. Stjórn var kosin: Aðalbjörg Karlsdóttir, Dagmar Jónsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir, Jóhannes Soffíuson og Hekla Vilhjálmsdóttir. Varamenn í stjórn eru Elín Brynjólfsdóttir og Gyða Þórólfsdóttir.
Öll fréttin
8.3.2002
Reglugerðarbreyting til hagsbóta fyrir aldraða
Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið með breytingu á reglugerð nr.331/2000, um vörugjald af ökutækjum að niðurfelling vörugjalds af bifreiðum sem sérútbúin eru fyrir aldraða fatlaða íbúa hjúkrunarheimila verði heimil. Sóltún mun í kjölfarið taka í notkun glæsilega Ford Transit bifreið til að auðvelda íbúum Sóltúns að fara erinda sinna utan heimilisins.
Öll fréttin
8.3.2002
Upplýsingatækninýjungar
Sóltún, hefur tekið í notkun viðamikil hugbúnaðarkerfi frá eMR hugbúnaði hf og Tölvumiðlun hf. eMR hugbúnaður leggur Sóltúni til sjúkra- og hjúkrunarskrárkerfið SÖGU og legudeildakerfið LEGU. Saman skapa SAGA og LEGA faglega fullkomin starfsskilyrði fyrir starfsfólk Sóltúns. Sóltún notar H-launaforritið og SFS2001 bókhaldskerfi frá Tölvumiðlun. eMR og Tölvumiðlun hafa með kerfunum náð að mæta þeim þörfum sem Sóltún hefur og þar með auka gæði þeirrar þjónustu sem viðskiptavinir heilbrigðisstofnana njóta.Sóltún hefur ennfremur samið við Tölvumiðlun um rekstrarþjónustu tölvukerfanna.
Öll fréttin
7.1.2002
Opnun Sóltúns
ÖLDUNGUR hf. opnaði hjúkrunarheimilið Sóltún 7. janúar 2002 og rekur heimilið samkvæmt þjónustusamningi við ríkið. Íbúar heimilisins eru 92. Markmið Sóltúns er að veita þeim bestu hjúkrun og aðra þjónustu sem völ er á á hverjum tíma og vera aðlaðandi starfsvettvangur. Allir þættir varðandi hönnun húsnæðis og val á hús- og tækjabúnaði hefur miðast við það. Myndir frá opnun Sóltuns
Öll fréttin
3.1.2002
Gleðilegt nýtt ár
Öldungur hf. - Sóltún hjúkrunarheimili óskar verðandi íbúum og aðstandendum þeirra, starfsfólki og samstarfsaðilum gleðilegs nýs árs og þakkar gott samstarf við undirbúning að opnun heimilisins á árinu sem er að líða.
Öll fréttin
17.12.2001
Matshópur Reykjavíkur heimsækir Sóltún
Matshópur Reykjavíkur á fulltrúa í samráðshópi um innlagnir í Sóltún. Hópurinn kom í heimsókn og skoðaði og fræddist um heimilið 3 vikum fyrir opnun þess.
Öll fréttin
12.12.2001
Fyrsta erlenda námsheimsóknin
Sænskir hjúkrunarfræðingar undir forystu Jonas Allenbrant frá Nockeby hjúkrunarheimilinu, Stokkhólmi komu í heimsókn í Sóltún, þrátt fyrir að ekki væri búið að opna heimilið.
Öll fréttin
30.11.2001
Hjúkrunarheimilið Sóltún velur Philips símstöð
Hjúkrunarheimilið Sóltún skrifaði nýlega undir samning við Samband - Samskiptalausnir ehf um kaup á Philips iS3000 símstöð fyrir starfsemi hjúkrunaheimilisins að Sóltúni 2.
Öll fréttin
26.10.2001
Samráðshópur sem sér um úthlutun íbúða skipaður
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað 3ja manna samráðshóp sem sér um úthlutun íbúða og hjúkrunarþjónustu í Sóltúni. Samráðshópinn skipa:
Öll fréttin
8.10.2001
Nýir starfsmenn
Marta Jónsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunarstjóri á 1. hæð Sóltúns. Marta hefur áralanga reynslu í öldrunarhjúkrun og stjórnun og starfaði síðast sem deildarstjóri öldrunarteymis öldrunarsviðs Landspítala- háskólasjúkrahúss. Marta hefur störf 1. desember 2001.
Öll fréttin
25.8.2001
Sóltún semur við Vaktaskipan um kaup á Time Care
Hjúkrunarheimilið Sóltún gerir samning við Vaktaskipan um kaup á hugbúnaði; Time Care. Hugbúnaðurinn byggir á þeirri hugmyndafræði að samræma þarfir fyrirtækja á að laga sig að breytingum í eftirspurn og óskir starfsfólks um eigin vinnutíma. Markmið Sóltúns að vera aðlaðandi vinnustaður næst m.a. með því að bjóða vinnuumhverfi þar sem tekið er tillit til þarfa einstaklingsins samhliða því markmiði að samræma mönnun og þjónustueftirspurn á hverjum tíma fyrir sig.Time Care er markaðsleiðandi í Svíþjóð og með sterka stöðu í Bretlandi en auk þess er kerfið notað í Hollandi, Noregi, Finnlandi og Belgíu. Útbreiðsla kerfisins hefur verið mikil undanfarin ár og eru nú skipulagðar í kerfinu yfir 90. milljónir klukkustunda árlega.Dæmin hafa sýnt ótvíræðan ávinning bæði fyrir starfsfólk og atvinnurekendur. Sem dæmi um félagslegan ávinning má nefna aukið jafnvægi milli starfs og einkalífs, aukin umráð og ábyrgð yfir eigin vinnutíma, minni streita, betri hópvinna og meiri starfsánægja. Efnahagslegur ávinningur skýrist einkum af meiri sveigjanleika, betri þjónustu við skjólstæðinga, auðveldara að halda og ráða starfsfólk, minni starfsmannavelta og síðast en ekki síst hafa dæmin sýnt mikla lækkun í kostnaði, þ.e fjarvistar-, yfirvinnu- og afleysingarkostnaði.www.vaktskipan.is
Öll fréttin
25.8.2001
Kaupsamningur við Jóhann Ólafson hf
Sóltún hefur gert kaupsamning við Jóhann Ólafson hf. um kaup á búnaði frá Zanussi fyrir móttökueldhús hjúkrunarheimilisins.
Öll fréttin
22.8.2001
Kaupsamningur við Austurbakka h.f
Sóltún hefur gert kaupsamning við Austurbakka h.f. um kaup á öllum hjúkrunarrúmum og tengdum búnaði fyrir heimilið.
Öll fréttin
2.6.2001
Fréttir 2. Júli 2001
Milli 80-90 umsóknir um störf hafa borist frá 15. maí. Nú þegar er búið að staðfesta ráðningar í ýmsar stöður s.s. hjúkrunarstjóra, skrifstofustjóra og skrifstofumanns, umsjónarmann tækja og eigna, sjúkraþjálfara, starfsmanna í eldhúsi, hjúkrunarfræðinga 4, hjúkrunarfræðinga 3, verkefnastjórastöður sjúkraliða og mjög reyndra sjúkraliða, og þroskaþjálfa.
Öll fréttin
23.5.2001
Ráðningar hafnar
Ráðningar eru hafnar í 90 störf við hjúkrun, þjálfun, sálgæslu, eldhús og húsumsjón. Frá 15. maí hafa borist 55 umsóknir um störf í samtals 37 stöðugildi. Flestar umsóknir hafa borist frá hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. Tíu umsóknir hafa borist um eldhússtörf og álíka um starf umsjónarmanns hússins. Ein umsókn er komin í sjúkraþjálfun en engin í iðjuþjálfun. Ennfremur vantar umsóknir frá hárgreiðslumeistara og fótaaðgerðarfræðingi. Nokkrar umsóknir eru um störf á skrifstofu Sóltúns og í sálgæslu.Starfsviðtöl fara fram þessa daganna.Störf í boði falla út eftir því sem ráðið er í stöðurnar.
Öll fréttin
23.3.2001
Fréttir af framkvæmdum
Uppsteypu byggingarinnar er um það bil að ljúka þessa dagana og er unnið við að loka byggingunni ásamt frágangi utanhúss. Frágangur innanhúss er hafinn og miðar vinnu við stofnlagnir og lagnir í kjallara vel. Hitaveitu hefur verið hleypt á og unnið er við uppsetningu aðaltöflu.
Öll fréttin
18.1.2001
Fréttir af framkvæmdum
Framkvæmdir við Hjúkrunarheimili Sóltúni 2 miðar vel. Uppsteypu hefur miðað vel síðustu vikurnar og nú er hafin uppsteypa veggja á 2. hæð en byggingin mun samtals verða 3 hæðir auk tæknirýmis á 4. hæð. Einnig er unnið við plötu yfir 1. hæð. Íslenskir aðlverktakar hafa lagt kapp á að flýta framkvæmdum við byggingu hjúkrunarheimilisins og hafa m.a. fengið finnska aðila til forsmíða léttar útveggjaeiningar sem fluttar verða til landsins í janúar n.k.
Öll fréttin
28.4.2000
Samið við Öldung um einkaframkvæmd
Samið við Öldung um einkaframkvæmd - 92 hjúkrunarrými fyrir aldraða í Reykjavík.
Öll fréttin
|