24.6.2010
Páfagaukur heimsótti Sóltún
Miðvikudaginn 23. júní kom óvæntur gestur í heimsókn í Sóltún. Lítill grænn og gulur páfagaukur flaug inn og lenti á höfði starfsmanns. Vakti hann kátínu hjá starfsmönnum og íbúum og var komið fyrir í lánsbúri. Lýst var eftir eigendum fuglsins á hinum ýmsu útvarpsstöðum og sem leiddi til þess að þeir höfðu samband daginn eftir.
Voru þau að vonum fegin að endurheimta minnsta fjölskyldumeðliminn sem hafði verið á flakkinu á þriðja sólarhring.fjölskyldan.páfagaukurinn
Til baka |