Sjúkraþjálfun Sóltúns safnar fyrir hjóli

 

 

 

Sjúkraþjálfarar óska eftir aðstoð við að kaupa nýtt hjól.

 

Í sjúkraþjálfun Sóltúns er til eitt svona hjól. Það er mjög vinsælt og er svo komið að aðsóknin er mun meiri en þetta eina hjól nær að anna.

 

Hjólið er búið ýmsum góðum kostum.  Það er hægt að velja mismunandi gír eða þyngd og svo er hægt að fá ýmsar upplýsingar á meðan hjólað er t.d. hversu langt er hjólað, hve lengi og hvor fóturinn er meira notaður.

 

Einn mikilvægur kostur hjólsins er að ef einstaklingur ræður ekki við að hjóla sjálfur þá getur hjólið tekið við. Þannig fær viðkomandi góða hreyfingu sem stuðlar að vellíðan, vinnur á móti vöðvastífni og kreppum í liðum.

 

Hjólið kostar 750.000

 

Tekið er á móti framlögum í minningasjóð Sóltúns

kt. 600300-5390

banki: 0101-26-5390

 -skýring: hjól

 

Við vonum að sem flestir geti séð sér fært að aðstoða okkur við þessa söfnun.

 

                                          Sjúkraþjálfarar Sóltúns